Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2009, Page 47

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2009, Page 47
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 85. árg. 2009 43 niðurstöður rannsóknarinnar feli í sér mikilvæg skilaboð til skóla og foreldra auk fjölmiðla um ábyrgð þeirra á því að útskýra og fræða börn um ofbeldi. Í lokaorðum greinarinnar er rætt um nauðsyn þess að dóms­, félags­, mennta­ og heilbrigðisstofnanir ásamt félagasamtökum, sem sinna ungu fólki, hafi umfjöllun um ofbeldi á stefnuskrám sínum og leggi sitt af mörkum til að hindra kynbundið ofbeldi í nánum samböndum (Guðrún og Ingibjörg, 2008). Ég verð vör við vaxandi umræðu og umfjöllun um ofbeldi í fjölmiðlum og víðar. Margir leggja þar hönd á plóg auk fagfólks í heilbrigðis­ og félagsþjónustu, til dæmis „Blátt áfram“, Stígamót, Kvennaathvarfið og Rauði kross Íslands. Ég vil nota hér tækifærið og benda á að börn eru meidd (beitt ofbeldi!) í heilbrigðiskerfinu í tengslum við ýmsar aðgerðir sem þau þurfa að gangast undir. Það að halda barni á meðan verið er að sauma eða framkvæma aðrar aðgerðir tel ég geti verið afar skaðlegt fyrir börn. Barn, sem sýnir ótta, hjálparleysi, hrylling eða æsta og ruglingslega hegðun á meðan það er meitt, er samkvæmt skilgreingu um áföll – að upplifa áfall (Dziegielewski, 2002). Þar með er komin upp hætta á þróun áfallastreituröskunar sem eins og áður sagði er vanmetinn vandi hér á landi. Ég finn í störfum mínum aukna þörf fyrir fræðslu til foreldra, barna og unglinga um ofbeldi og tel að efla þurfi enn frekar opinskáa umræðu um eðli og afleiðingar andlegs, líkamlegs og kynferðislegs ofbeldis. Húkrunarfræðingar og ljósmæður geta haft mikil áhrif á þessa umræðu í heilbrigðisþjónustunni, sérstaklega í tengslum við starf sitt með foreldrum, unglingum og börnum í mæðravernd, ungbarnavernd, skólahjúkrun, heilsugæsluhjúkrun, barna­ og fjölskylduhjúkrun. Ég sé einnig tækifæri fyrir hjúkrunarfræðinga í heilsugæsluhjúkrun og víðar í heilbrigðisþjónustunni að sérhæfa sig í sálrænum meðferðarformum og veit um nokkra sem hafa gert það nú þegar. Í framtíðinni sé ég fyrir mér að heilsugæslan bjóði upp á meðferðarúrræði hjá hjúkrunarfræðingi fyrir þá sem þjást vegna ofbeldis í nánum samböndum eða hafa orðið fyrir öðrum áföllum. Að lokum hvet ég hjúkrunarfræðinga að taka höndum saman um að takmarka eins og hægt er að börn upplifi áfall innan heilbrigðisþjónustunnar en ef það er óumflýjanlegt þarf að fylgja barninu eftir og bjóða upp á viðeigandi stuðning í kjölfarið. Margrét Blöndal er hjúkrunarfræðingur og starfar á Áfallamiðstöð Landspítala í Fossvogi. Heimildir Dziegielewski, S.F. (2002). DSM-IV-TR in action. New york: John Wiley & Sons. Ingólfur V. Gíslason (2008). Ofbeldi í nánum samböndum. Orskir, afleiðingar, úrræði: Heilbrigðiskerfið. Reykjavík: Félags­ og trygg­ ingamálaráðuneytið. Ziegler, M.F., Greenwald, M.H., DeGuzman, M.A., og Simon, H.K. (2005). Posttraumatic stress responses in children: awareness and practice among a sample of pediatric emergency care providers. Pediatrics, 115 (5), 1261­1267. Weinstein, D., Staffelbach, D., og Byaggio, M. (2000). Attention­deficit hyperactivity disorder and post traumatic stress disorder: differential diagnosis in childhood sexual abuse. Clinical Psychology Review, 20, 3, 359­378. Fr ét ta pu nk tu r Í tillögunum felst að stofnanir haldi sig innan fjárheimilda ársins í stað þess að stefna í umtalsverðan halla. Niðurskurður nemur 9,5% af fjárlögum á St. Jósefsspítala, 5,2% á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og 5,6% á Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Starfsemi helst í megindráttum óbreytt og er þar með úr sögunni ákvörðun fyrrverandi heilbrigðisráðherra um breytingar á St. Jósefsspítala og skerta fæðingarþjónustu á Selfossi og í Keflavík. Ráðherra telur sig með þessu hafa hlustað á grasrótina en á Suðurlandi mótmæltu 4.300 manns boðuðum breytingum og í Hafnarfirði 14.000 manns. Markmið ráðherra er að forðast hópuppsagnir en í staðinn taka starfsmenn þessara stofnana á sig talsverða launaskerðingu. Ekki er gengið á kjarasamningsbundin réttindi en dregið er úr yfirvinnu, vaktageiðslum, akstursgreiðslum og námsleyfis­ og ferðakostnaði. Kom það fram í ræðu heilbrigðisráðherra að fleiri hópar eru nú að taka á sig launaskerðingu. Á Ísafirði hafa læknar ákveðið að vinna bakvaktir endurgjaldslaust og sérfræðilæknar hafa tilkynnt að þeir muni fresta að taka 9,8% launahækkun sem átti að koma til framkvæmda 1. apríl samkvæmt kjarasamningi. Samtals þarf að spara 6,7 milljarða í heilbrigðiskerfinu en ekki fékkst uppgefið á blaðamannafundinum hversu mikið þessar breytingar munu spara. Vinna við að samræma starfsemi kragasjúkrahúsanna og Landspítala mun halda áfram og er markmiðið að hagræða til framtíðar frekar en að spara tímabundið. Stjórn Ljósmæðrafélags Íslands fagnaði í yfirlýsingu ákvörðun heilbrigðisráðherra að halda fæðingarþjónustu óskertri á Suðurlandi og Suðurnesjum. Stjórnin fagnaði jafnframt samráði heilbrigðisyfirvalda við nærsamfélag og fagfólk.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.