Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2009, Blaðsíða 52
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 85. árg. 200948
þekkja og tileinka sér réttar aðferðir til að
ráða fram úr erfiðleikum sem þau standa
frammi fyrir, geta sagt hvernig þeim líður
og ekki síður að geta sýnt öðrum börnum
samkennd og stuðning þegar við á.“
Stálheppin með vinum Zippýs
Lýðheilsustöð vinnur að þessu meðal
annars með því að leggja grunnskólum
til Vini Zippýs sem er alþjóðlegt
lífsleikninámsefni sem er ætlað að
efla geðheilbrigði ungra barna í fyrstu
bekkjum grunnskóla. Guðrún hefur
haft með höndum það hlutverk að
sinna verkefninu um Vini Zippýs og
segist þar vera stálheppin. Námsefnið
hefur verið vandlega árangursmetið af
sérfræðingum og er útkoman góð bæði
hér á landi og í þeim fimmtán löndum til
viðbótar þar sem það hefur verið kennt.
Námsefnið er kennt í eitt skólaár og
stuðlar að því að gera ung börn færari
en ella um að takast á við erfiðleika í
lífinu. Félagsþroski og sjálfsöryggi eflist
og börnin verða færari og fúsari til að
hjálpa öðrum sem á þurfa að halda.
„Kennarar, sem hafa kennt námsefnið hér
á landi, segja að Vinir Zippýs fari mjög vel
saman með öðrum forvarnaverkefnum
sem kennd eru í grunnskólum, til dæmis
Olweusaráætluninni gegn einelti,“ segir
Guðrún „Niðurstöður rannsókna hafa leitt
í ljós að bæði kennarar og foreldrar hafa
tekið eftir jákvæðum breytingum í fari
barna sem kynnst hafa námsefninu Vinir
Zippýs og eiga börnin auðveldara með að
tjá tilfinningar sínar og ræða um þær við
aðra. Börnin eiga þannig betri samskipti
við aðra, þau lenda sjaldnar í rifrildi eða
slagsmálum og geta sjálf komist að
raun um hvernig best er að leiða til lykta
ágreiningsmál á jákvæðan hátt.“
Þjóðin er dofin
Næstliðnir mánuðir hafa verið íslensku
þjóðinni þungir í skauti. Fjarri fer að áhrif
efnahagshrunsins séu komin fram og á
marga mun vísast reyna í fyllingu tímans
„Ég tel að við eigum eftir að finna fyrir
aukinni vanlíðan meðal almennings þegar
til lengri tíma er litið og atvinnuleysið fer
að sverfa að. Þjóðin er í rauninni dofin eftir
fall fjármálakerfisins. Jákvæðu hliðarnar
eru hins vegar þær, ef svo má að orði
komast, að fólk heldur meira saman bæði
í fjölskyldu og vinahópum, samkennd
virðist vera að aukast í samfélaginu og
gildismat að breytast. Það eitt og sér er
að mínum dómi frábær forvörn sem bætir
lýðheilsu íslensku þjóðarinnar.“
Taktu þátt í aðalfundi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
sem verður haldinn 12. maí 2009 á Grand hótel Reykjavík
Vilt þú hafa áhrif?
• Hverjir sitja í stjórn og nefndum
• Stefnumótun og starfsáætlun
• Félagsgjöld
• Önnur mál
Skráðu þátttöku á www.hjukrun.is fyrir 5. maí til að öðlast atkvæðisrétt
A fundinum getur þú meðal annars haft áhrif á