Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2009, Page 56
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 85. árg. 200952
til upplýstrar ákvarðanatöku (Anderson og Funnell, 2000;
Sigurdardottir og Jonsdottir, 2008). Anderson og Funnell
(2000) leggja áherslu á að þó að kennsla og umönnun sé veitt
eftir hugmyndafræði sjálfseflingar verði heilbrigðisstarfsfólk að
veita sömu upplýsingar og áður, til dæmis um tengsl fylgikvilla
og blóðsykurstjórnunar. Fræðimennirnir Paterson (2001) og
Coates (1999) telja að umönnun, sem byggð er á kenningum
um sjálfseflingu, sé heppileg hjá fólki með langvinnan sjúkdóm
eins og sykursýki en aðrir hafa sýnt fram á að erfitt geti reynst
að taka upp starfshætti sem byggðir eru á hugmyndum
sjálfseflingar í vestrænum heilbrigðiskerfum (Adolfsson o.fl.,
2004). Fólki með sykursýki er ætlað í samvinnu við fagfólk að
sjá um meðferðina við sjúkdómnum þar sem hinn sykursjúki
ber meginþungann af daglegri umönnun.
SJÁLFSUMöNNUN Í SyKURSýKI
Eðli sykursýki er slíkt að sjálfsumönnunar er þörf. Fólk þarf að
taka tillit til sjúkdómsins í daglega lífinu, til dæmis með því að
samræma mataræði, hreyfingu og insúlíngjöf og slíkt krefst
aftur þekkingar á sykursýkinni og sjálfsþekkingar og hæfni til
að taka mið af umhverfi og aðstæðum (Hanas, 1998; Mensing
o.fl., 2006). Klínískar leiðbeiningar og rannsóknir meðal fólks
með sykursýki staðfesta að sjálfsumönnun taki til ákveðinna
hegðunarlegra þátta sem og persónubundinna þátta (Funnell
o.fl., 2008; IDF, 2006; Mensing o.fl., 2006). Til að gefa betri
mynd af því hve flókin sjálfsumönnun er og um leið að skoða
þætti, sem áhrif hafa á sjálfsumönnun, var sjálfsumönnun í
sykursýki skipt upp í svið sjálfsumönnunar og persónubundna
þætti eftir ýtarlega greiningu á lesefni, sjá mynd 1. Svið
sjálfsumönnunar tengjast hegðun og hæfni en þau eru: a)
aðlögun næringar að daglegum þörfum (mataræði), b) mæling
á blóðsykri, c) rétt lyfjameðferð, d) hreyfing (Hanas, 1998;
Mensing o.fl., 2006; Mulcahy o.fl., 2003). Rannsóknir staðfesta
að persónubundnir þættir, sem allir eru samtvinnaðir, hafa áhrif
á sjálfsumönnun á hinum fjórum sviðum sjálfsumönnunar, en
persónubundnu þættirnir eru: a) þekking á sykursýkinni, b)
líkamleg færni og umhirða, c) streita. Fyrst verður fjallað um
svið sjálfsumönnunar.
Mataræði
Aðlögun næringar að daglegum þörfum er hornsteinn
sjálfsumönnunar í sykursýki. Þar er markmiðið að halda
viðunandi þyngd og ná góðri stjórn á blóðsykri ásamt blóðfitu
(Choudhary, 2004). Nú til dags er ekki talað um sérstakt fæði
fyrir fólk með sykursýki, það á að fylgja manneldismarkmiðum,
en æskilegt er að neyslu kolvetna sé dreift yfir daginn og
neyslu mettaðrar fitu sé haldið í lágmarki. Meira frjálsræði er
einnig í neyslu sykurs sem má þó ekki fara yfir 10% af orkuþörf
(Choudhary, 2004; Kunar, 2002; Ulchaker, 2003). Klínískar
leiðbeiningar gera ráð fyrir að hver einstaklingur með sykursýki
fái leiðbeiningar frá næringarfræðingi til að aðlaga fæðuval og
venjur að eðlilegum markmiðum um góðar matarvenjur (IDF,
2006; Mensing o.fl., 2006).
Mæling á blóðsykri
Markmið blóðsykurmælinga er að fá upplýsingar um blóðsykur
á mismunandi tímum til að auðvelda fólki með sykursýki að
taka upplýsta ákvörðun um fæðuval, hreyfingu og aðlögun
insúlínsmagns að blóðsykri og lífsháttum. Blóðsykurmælingar
hafa sannað gildi sitt fyrir fólk með sykursýki af tegund 1
(DCCT, 1993) og fólki með sykursýki af tegund 2, sem notar
margar insúlínsprautur á dag, er ráðlagt að nota slíkar mælingar
(IDF, 2006). Í leiðbeiningum frá Alþjóðasykursýkissambandinu
er mælt með að blóðsykurmælingar séu tiltækar öllum sem
nýlega hafa greinst með sykursýki af tegund 2 og öllum
sem nota insúlín. Annars er mælt með blóðsykurmælingum
meðal fólks með sykursýki af tegund 2 við veikindi eða við
breytingar á lífsstíl (IDF, 2006). Rannsóknir, sem hafa snúist
um árangur af blóðsykurmælingum meðal fólks sem ekki notar
insúlín, sýna misvísandi niðurstöður. Welschen og félagar
(2005) greindu sex meðferðarrannsóknir sem snerust um áhrif
blóðsykurmælinga meðal fólks með sykursýki af tegund 2
sem ekki notaði insúlín. Welschen og félagar sýndu fram á að
langtímablóðsykursgildið lækkaði um 0,39% og var það álitið
hafa klíníska þýðingu. Fremantlerannsóknin leiddi í ljós allt
aðrar niðurstöður. Rannsóknin tók til 1286 einstaklinga með
sykursýki af tegund 2. Niðurstöðurnar voru að ekki var hægt
að sýna fram á árangur af blóðsykurmælingum ef horft var á
langtímablóðsykursgildið. Hvorki blóðsykurmælingar né tíðni
þeirra hafði áhrif á langtímablóðsykursgildið (Davis o.fl., 2006).
Ráðleggingar IDF (2006) um blóðsykurmælingar miðast við að
ef fólk notar margar insúlínsprautur á dag eigi að framkvæma
blóðsykurmælingar þrisvar eða oftar á dag. En litlar sannanir
eru fyrir gagnsemi blóðsykurmælinga meðal þeirra sem sprauta
sig með insúlíni einu sinni á dag, nota blóðsykurlækkandi töflur
eða haga mataræði til að hafa áhrif á sykursýkina (Davis o.fl.,
2006). Klínískar leiðbeiningar frá landlæknisembættinu taka
mið af þessum ráðleggingum (Arna Guðmundsdóttir, 2004).
Rétt lyfjameðferð
Sykursýki einkennist af háum blóðsykri sem meðhöndlaður
er með lyfjum þegar lífsstílsbreytingar hjá fólki með sykursýki
af tegund 2 nægja ekki til að ná blóðsykri í eðlilegt horf (IDF,
2006). Nú til dags eru nægar sannanir til fyrir því að það að
fylgja ráðlagðri lyfjameðferð er gagnlegt bæði fyrir fólk með
sykursýki af tegund 1 (DCCT, 1993; EDIC study group, 2003)
og tegund 2 (UKPDS, 1998).
Rannsóknir, sem hafa beinst að því hvort fólk fer eftir ráðlagðri
lyfjameðferð, sýna flestar að svo er (Toljamo og Hentinen,
2001; Toobert o.fl., 2000; Weinger o.fl., 2005). Rannsókn
Sarkar og félaga (2006) sýndi að 64% af úrtakinu (n = 408)
sagðist ekki hafa misst úr neina lyfjagjöf síðustu 7 daga og
flestir (n = 554) í rannsókn Weinger o.fl. (2005) töldu sig fylgja
leiðbeiningum um lyfjainntöku mjög vel.
Hreyfing
Hreyfing er mikilvægur hluti af sjálfsumönnun í tengslum við
sykursýkina. Sífellt koma fleiri staðfestingar á gagnlegum
áhrifum hreyfingar til að auka almennt heilbrigði, hafa hemil
á þyngd og bæta blóðsykurstjórn og blóðfitu hjá fólki með
sykursýki (Shaw o.fl., 2007; Thomas o.fl., 2007). Klínískar
leiðbeiningar gera ráð fyrir að frætt sé um hvers vegna