Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2011, Side 24
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 87. árg. 201120
Halla hélt fyrirlestur í Háskólanum í
Reykjavík í febrúar þar sem hún kynnti
niðurstöður rannsóknarverkefnisins
sem var hluti af meistaragráðu hennar í
lýðheilsufræðum (MPH). Í rannsókninni
voru tekin viðtöl við einstaklinga sem
nýlega höfðu misst vinnuna eða lent í
veikindum. Niðurstöðurnar bentu til að
jákvæðni, trú á eigin getu og hvatning
skipti sköpun varðandi áframhaldandi
þátttöku í samfélaginu. Halla upplifði
sjálf skyndileg, alvarleg veikindi haustið
2008 sem síðar höfðu áhrif á verkefnaval
hennar og lokaritgerð.
Halla féllst á að segja lesendum sögu
sína en það er með ólíkindum hversu
vel hún hefur náð sér. Sjálf segist hún
vera heilbrigðari nú og betur á sig
komin heldur en fyrir veikindi.
Námfús ljósmóðir
Halla starfaði fyrst sem ljósmóðir en
bætti við sig námi og lauk prófi frá
Hjúkrunarskóla Íslands árið 1973. Hún
starfaði um tíma á sængurkvennadeild
Landspítalans en hélt síðan til
Danmerkur í eitt og hálft ár. „Maðurinn
minn, Þórarinn Hjaltason verkfræðingur,
fór í framhaldsnám. Ég fékk inni í
framhaldsnámi í hjúkrun þar í landi en
þá stóðum við frammi fyrir því hvort
við ættum að fara heim eða setjast að
í Danmörku í nokkur ár í viðbót. Við
ákváðum að fara heim. Síðan hefur
alltaf blundað í mér að læra meira,“
greinir Halla frá þegar hún er spurð um
starfsferilinn. „Mér finnst lífsnauðsynlegt
að halda mér við í þessu fagi,“ bætir
hún við.
Eftir heimkomu frá Danmörku fékk Halla
starf deildarstjóra á sængurkvennadeild
þar sem hún starfaði í rúm ellefu
ár. „Ég hafði starfað áður en að
því kom sem kennslustjóri í Nýja
hjúkrunarskólanum á meðan hann
var og hét. Þar sá ég um skipulag á
kennsluefni fyrir verðandi ljósmæður
og kenndi einnig áður í Hjúkrunarskóla
Íslands. Síðustu ár hef ég unnið á
sýkingavarnadeild Landspítalans. Þegar
ég var að skipuleggja námið í Nýja
hjúkrunarskólanum var hjúkrunarnámið
að byrja á háskólastigi. Ég tók BS-námið
í hjúkrunarfræði þó miklu seinna, eða
árið 2003. Það stundaði ég með fram
hlutastarfi á Landspítalanum.“
Elín Albertsdóttir, elal@simnet.is
Í LÍFSHÆTTU Í ÓKUNNU LANDI
Halla Halldórsdóttir, ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur, lét draum sinn
um frekara nám rætast þótt hún væri komin nálægt sextugu. Hún fór í
lýðheilsu og kennslufræði við Háskólann í Reykjavík og útskrifaðist þaðan
í janúar sl. þrátt fyrir að lífshættuleg veikindi hafi sett strik í reikninginn.
Halla Halldórsdóttir var nær dauða en lífi en hefur náð sér að fullu og lokið meistaranámi.
Eftir erfið veikindi er Halla nú loksins útskrifuð úr Háskólanum í Reykjavík með meistaragráðu í
lýðheilsufræðum.