Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2011, Blaðsíða 29
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 87. árg. 2011 25
Helst er að nefna þrjár tegundir
minninga vinnu.
Minningameðferð: Þá er upprifjun
minninga notuð með einstaklingum í
því skyni að ráða bót á geðrænum
vanda. Algengt form hennar er svonefnd
æviyfirlit (life review) þar sem æviferillinn
er skoðaður í heild og reynt er að vinna
úr gömlum og nýjum flækjum. Flestir eru
sammála um að þeir sem vinna slíka
vinnu þurfi menntun og reynslu á sviði
geðmeðferðar eða sálgæslu.
Almenn minningavinna: Hún fer oftast
fram í hópum, þó er það ekki algilt. Hún
er stunduð í margvíslegum tilgangi en er
oft skilgreind sem upp byggileg virkni og
dægradvöl. Markmiðið getur verið að allir
í hópnum eigi saman ánægjulega stund,
kynnist og myndi tengsl. Ekki er síður
mikilvægt að starfsfólk fái persónulega
sýn á skjólstæðinga sína og fræðist um og
fræði um lífshætti liðins tíma.
Lífssögugerð: Þessi aðferð hefur verið
vinsæl með fólki með heilabilun. Með
aðferðinni er safnað upplýsingum um
æviferilinn og þær eru síðan gjarnan
settar fram sem úrklippumöppur eða
veggspjald. Höfundur ræðir um nokkur
atriði sem hafa ber í huga áður en
vinna hefst með minningahópum. Afar
mikilvægt er að þeir sem taka þátt í
hópnum geri það af fúsum og frjálsum
vilja. Fá þarf samþykki og stuðning
yfirmanna og samstarfsfólks.
Aldrað fólk, sem tekur þátt í minninga
vinnu, er oft með einhverja fylgihluti,
svo sem göngugrindur, hjólastóla og
súrefniskúta.
Starfsmenn, sem vinna þessa hópvinnu,
þurfa að gæta þess að allir fái athygli og
komist að og jafnvel að aðstoða fólk,
einkum í byrjun. Þó má búast við að fólk
sé misjafnlega virkt.
Betra er að hafa frekar færri en fleiri í
hóp, hæfilegur fjöldi er 68 manns. Oft er
leitast við að hafa fólk í hóp sem er ekki
mjög ólíkt.
Að lokum þarf að íhuga hvað skal
ræða í hópunum og fer það val oft eftir
samsetningu hópsins. Höfundur leggur til
að velja efni eftir aðstæðum.
Bókin skiptist í nítján kafla og er ætlað
að veita innsýn í daglegt líf Íslendinga
á árunum 19251955. Efni kaflanna
eru margvísleg, nefna má efni 1. kafla,
Framfarir, sem skiptist í: Vegir og bílar,
siglingar, flugið, rafmagnið kemur og
síminn. Í 17. kafla er fjallað um stríðið og
ástandið, Bretavinnuna og daglegt líf á
stríðsárunum.
Í lok hvers kafla eru nefnd hugsanleg
umræðuefni og hugsanlegar
minningakveikjur sem gætu þá verið
ljósmyndir, bréf eða hlutir sem minna á
umræðuefnið.
Í bókinni er tekinn saman alþýðlegur
fróðleikur og eru meginheimildir höfundar
annálar tímabilsins, einkum úr bókunum
Öldin okkar eftir Gils Guðmundsson og
Ísland í aldanna rás eftir Illuga Jökulsson.
Þessi bók er skrifuð sem leiðbeiningabók
fyrir starfsfólk á heimilum og stofnunum
þar sem aldrað fólk kemur eða býr. Það
hefur ekki verið einfalt að finna hugðarefni
sem henta öldruðu fólki sem komið er á
hjúkrunarheimili. Með þessari bók er
komið skemmtilegt tómstundaefni sem
opnar fyrir betri samskipti fólks á öllum
aldri, skilning og sjálfsvirðingu. Bókin er
mjög fróðleg og skemmtileg aflestrar.
Valgerður Jónsdóttir er hjúkrunar fræðingur,
MSc, hætt störfum og býr á Akureyri.
Ein af fyrstu ráðstefnunum, sem haldin verður
í Hörpu, er 41. fundur Evrópufélagsins um
atferlismeðferð (EABCT). Hið íslenska Félag
um hugræna atferlismeðferð tekur þátt í
undirbúningnum. Ráðstefnan verður haldin dagana
31. ágúst til 3. sept ember.
Hugræn atferlismeðferð hefur reynst góð viðbót
við starfsaðferðir hjúkrunarfræðinga og er hún
sérstaklega notuð innan geðhjúkrunar. Nokkrir
hjúkrunarfræðingar taka þátt í starfi Félags um
hugræna atferlismeðferð.
Á ráðstefnunni er gert ráð fyrir um þúsund þátttakendum.
Stef ráðstefnunnar er forvarnir og verður fjallað um hvernig
fyrirbyggja megi tilfinningavanda. Farið verður yfir árangur
meðferðar og nýjustu rannsóknir á sviðinu kynntar.
Fjölmargir af færustu fagmönnum heims á sviði hugrænnar
atferlismeðferðar munu flytja þar erindi.
Harpa, nýja tónleika- og ráðstefnuhúsið við höfnina í
Reykjavík, verður formlega opnuð 13. maí nk. Fyrstu
tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands í nýjum heimkynnum
verða reyndar 4. maí. Fyrsta ráðstefnan er bókuð í lok maí.