Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2011, Blaðsíða 30
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 87. árg. 201126
Forsaga fylgdar
Í framhaldi af miklum umræðum um hina ýmsu
þætti líknarmeðferðar var í júní árið 1997
farið af stað með fylgd fyrir aðstandendur
þeirra sem misstu ástvin sinn á 11E. Fylgd
þýðir að syrgjendum er veittur stuðningur
og fræðsla eftir andlát ástvinar. Allt frá
greiningu sjúkdóms hefur fjölskyldan staðið
sjúklingnum næst í umönnun og þekkir best
þarfir hans og væntingar. Tíðar innlagnir og
oft langar verða veruleikinn þegar sjúkdómur
versnar og nær dregur ævilokum. Aðstoð
og nærvera aðstandenda í sjúkrahúslegunni
veitir sjúklingnum öryggi og leiðir til náinna
tengsla við starfsfólk deildarinnar.
Samkvæmt skilgreiningu Alþjóðaheil
brigðismálastofnunarinnar (WHO) er litið á
sjúklinginn og fjölskylduna sem eina heild og
mikilvægur þáttur líknarmeðferðar er að veita
aðstandendum fræðslu og stuðning í aðlögun
að breyttum aðstæðum í lífinu eftir missi (WHO,
2010). Fylgd við syrgjendur er veitt með ólíkum
hætti innan þjónustueininga Landspítalans
sem sinna krabbameinssjúklingum sem og
hjá hjúkrunar og ráðgjafaþjónustunni Karitas.
Skipulag fylgdar á 11-E
Meginmarkmið líknarmeðferðar er sam kvæmt
skilgreiningu WHO „að stuðla að sem bestum
lífsgæðum sjúklinga og fjölskyldna þeirra.
Unnið er að því að varðveita lífið, en jafnframt
er litið á dauðann sem eðlileg þáttaskil. Áhersla
er lögð á heildræna einkennameðferð til að
hjálpa sjúklingnum að lifa innihaldsríku lífi.
Einnig er mikilvægt að styðja fjölskylduna til
sjálfsbjargar í sjúkdómsferlinu og sorginni.“
Í júní árið 1997 var fyrsta fylgdarsamveran
haldin. Sr. Bragi Skúlason sjúkrahúsprestur og
Svandís Íris Hálfdánardóttir hjúkrunarfræðingur
SYRGJENDUM FYLGT
EFTIR OG MIKILVÆGI
FJÖLSKYLDUHJÚKRUNAR
Á krabbameinslækningadeild Landspítalans, deild 11E,
höfum við spurt aðstandendur látinna: Hverjar eru þarfir
þeirra sem mæta sorginni? Þegar svörin við spurningunni
liggja fyrir, þá er fyrst hægt að leita leiða til að uppfylla
þær þarfir.
Sigrún Anna Jónsdóttir og sr. Bragi Skúlason, sigranna@landspitali.is
Sigrún Anna Jónsdóttir
er hjúkrunarfræðingur á
krabbameinslækningadeild
11E á Landspítala.
Sr. Bragi Skúlason
er sjúkrahúsprestur á
Landspítala.