Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2011, Page 45
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 87. árg. 2011 41
með að aðlaga sig nýjum aðstæður,
eru hamingjusamari, líður betur andlega,
gengur betur í skóla og eru almennt
sáttari við líf sitt og aðstæður en hinir sem
hafa lakari sjálfsmynd (Mann o.fl., 2004).
Unglingar eru sérstaklega viðkvæmir fyrir
áliti annarra og eru því líklegri til þess
að láta undan hópþrýstingi og stunda
áhættuhegðun til þess að falla inn í
hópinn (Sebastian o.fl., 2008).
Hvernig hefur starf félagsins
gengið fyrir sig?
Nemendur á þriðja og fjórða námsári
hafa séð um forvarnarfræðsluna á vegum
félagsins en þó er öllum nemendum
deildarinnar velkomið að gerast meðlimir
Skjaldar. Fræðsla félagsins var fyrst
hugsuð fyrir nýnema í framhaldsskólum en
Skjöldur hefur til dæmis átt gott samstarf
við Menntaskólann við Hamrahlíð og
Kvennaskólann í Reykjavík síðustu tvö
skólaár. Þar að auki hefur félagið verið
með fræðslu í grunnskólanum Hamraskóla
í Grafarvogi og í fermingarundirbúningi
hjá fermingarbörnum Óháða safnaðarins.
Í framhaldsskólunum hefur Skjöldur
fengið að koma í lífsleiknikennslu og
verið með einnar klukkustundar langa
fræðslu um sjálfsmynd. Fræðslan er
þannig uppbyggð að nemendurnir taka
mikinn þátt með hópavinnu og umræðum
en myndbönd eru til dæmis nýtt sem
kennslugagn. Nemendurnir fá spurningar
sem krefjast þess að þeir velti fyrir sér
mikilvægi sjálfsmyndar og einnig eru þeir
beðnir um að nefna sínar eigin sterku
hliðar. Markmiðið er að kennslustundin
sé skemmtileg og að nemendur njóti sín
og taki til sín boðskap kennslunnar.
Skjöldur hefur á tveimur starfsárum hitt
um þúsund framhaldsskólanemendur
og hefur það gengið vel að sögn
hjúkrunarnema. Fræðslan hefur ekki
einungis jákvæð áhrif á unglinga heldur
er hún mjög gefandi og lærdómsrík fyrir
hjúkrunarnemana sjálfa. Fræðsla og
forvarnir eru mikilvægur þáttur í hjúkrun
og það er gríðarlega góð reynsla fyrir
hjúkrunarnema að fá að taka þátt í
slíku starfi. Hjúkrunarnemarnir, sem
hafa verið þátttakendur í starfinu, hafa
talað um hvað það sé skemmtilegt hvort
sem það er fræðslustarfið eða vinnuferð
félagsins. Það hefur verið gaman að tala
við unglinga sem margir hverjir eru mjög
ánægðir með framtakið. Skemmtilegast
er þó að fá sjónarhorn og skoðanir þeirra
því unglingar eru mjög opnir og tilbúnir
til þess að ræða málin og gaman er
að heyra frá þeim sjálfum að efnið sé
mikilvægt.
Á krossgötudegi 4. árs hjúkrunarnema
við H.Í., sem fjallar um starfsvettvang
hjúkrunarfræðinga og nema, var félagið
kynnt fyrir samnemendum, kennurum
og öðrum gestum. Félagsmenn kynntu
um leið nýtt bókamerki og nýuppsetta
heimasíðu félagsins.
Framtíð félagsins
Framtíðarsýn Skjaldarmanna er að félagið
festist í sessi innan hjúkrunarfræðideildar
H.Í. og þannig geti hjúkrunarnemar
kynnst forvarnarstarfi og verið sýnilegir
í samfélaginu. Starf félagsins hefur
bæði kosti fyrir samfélagið sem og
hjúkrunarnemana sjálfa sem bæði kynnast
innbyrðis, auka þekkingu sína á forvörnum
og vinnu tengdri þeim. Hjúkrunarnemar
og félagar framtíðarinnar fá það verkefni
að viðhalda góðum tengslum við
samstarfsaðila Skjaldar sem vonandi
verða fleiri með tíð og tíma. Reynsla
okkar er sú að Skjöldur er virkur og lifandi
starfsvettvangur hjúkrunarnema sem felur
í sér frábært tækifæri til að láta í sér heyra
í samfélaginu, taka þátt í forvarnarstarfi, fá
góða reynslu í því að ræða við ungmenni
auk þess að styrkja sína eigin sjálfsmynd.
Ragnheiður Halldórsdóttir er formaður Skjaldar
og Kristín Rún Friðriksdóttir er gjald keri
Skjaldar. Báðar eru þær hjúkrunar fræði nemar
á fjórða ári.
Heimildir
Mann, M., Hosman, C.M.H., Schaalma, H.P.,
og de Vries, N.K. (2004). Selfesteem in a
broadspectrum approach for mental health
promotion. Health Education Research, 19 (4),
357372.
Meadus, R.J., og Johnson, B. (2000). The
experience of being an adolescent child of a
parent who has a mood disorder. Journal of
Psychiatric and Mental Health Nursing, 7 (5),
383390.
Sebastian, C., Burnett, S., og Blakemore, S.J.
(2008). Development of the selfconcept
during adolescence. Trends in Cognitive
Sciences, 12 (11), 441446.
Stanhope, M., og Lancaster, J. (2000).
Community and public health nursing. St.
Louis: Mosby.
Vertu ævinlega
fyrsta flokks útgáfa
af sjálfum þér,
en ekki
annars flokks útgáfa
af einhverjum öðrum.
(Judy Garland)
www.skjoldur.net
skjoldurforvarnir@gmail.com
Í síðasta tölublaði Tímarits hjúkrunar-
fræðinga var fjallað um nýja heima-
síðu Skjaldar en þar var gefin upp
röng vefslóð.
Hin rétta er www.skjoldur.net.