Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2011, Side 46
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 87. árg. 201142
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga stóð
fyrir kjarakönnun á meðal félagsmanna
sinna í nóvember 2010. Stærð úrtaksins
var 3.282 hjúkrunarfræðingar, heildarfjöldi
svarenda var 635. Flestir svarendur starfa
á kjarasamningi FÍH við fjármálaráðherra.
Markmið könnunarinnar var að kanna
launakjör hjúkrunarfræðinga. Könnunin
var lokuð vefkönnun þar sem þátttakendur
fengu sendan póst með aðgangsorði
að svarsíðu á netinu. Könnunin var
framkvæmd dagana 2. til 16. nóvember
2010. Ekki reyndist marktækur munur á
könnuninni 2009 og 2010. Samkvæmt
könnuninni haldast grunnlaun óbreytt á
milli ára.
Það voru ákveðin vonbrigði að þátttaka í
könnuninni var ekki eins og vænst hafði
verið þrátt fyrir að þetta væri í annað
skipti sem könnunin var framkvæmd og
er það von okkar að þátttakan í næstu
könnun verði betri. Engu að síður tel ég
könnunina gefa glöggva mynd af kjörum
stéttarinnar.
Þegar spurt var um ábyrgðarsvið í starfi
reyndust 57,1% svarenda vera almennir
hjúkrunarfræðingar, 8,9% voru aðstoðar
deildarstjórar, 10,9% deildar stjórar og
6,4% verkefnastjórar. Þá voru 3,4%
yfirhjúkrunarfræðingar eða hjúkrunar
forstjórar, 2,5% hjúkrunarstjórar en
10,9% í öðru óskilgreindu starfi.
Fyrri könnun félagsins staðfesti þá
tilfinningu að hjúkrunarfræðingar hefðu
aukið við sig starfshlutfall frá því sem
var árið 2008, þetta starfshlutfall hefur
haldist óbreytt á milli áranna 2009 og
2010. Þar tel ég fyrst og fremst tvennt
ráða mestu, annars vegar breytt áhersla
í kjarasamningnum árið 2008, þar sem
dagvinnulaunin hækkuðu á kostnað
yfirvinnutaxtans, og hins vegar áhrif
kreppunnar á kjör og atvinnuöryggi.
Eins ber að geta þess að það er einkar
ánægjulegt að sjá hversu vel menntuð
stéttin er eins og sjá má af fjölda þeirra
sem hafa lokið formlegu viðbótarnámi.
Atvinnuleysi á meðal hjúkrunarfræðinga er
ákveðið áhyggjuefni en hlutfall þeirra sem
hefur verið sagt upp starfi í könnuninni og
fjöldi þeirra sem er á atvinnuleysisskrá er
sambærilegur. Það er alveg ljóst að árið
2011 er og verður erfitt og búast má við
áframhaldandi erfiðleikum á árinu 2012
miðað við þann niðurskurð sem þá þarf
að eiga sér stað í opinberum rekstri.
Kannanir af þessu tagi eru því félaginu
afar mikilvægar svo standa megi vörð um
kjör og réttindi okkar félagsmanna.
Cecilie B.H. Björgvinsdóttir er sviðstjóri
kjara og réttindasviðs hjá Félagi íslenskra
hjúkrunarfræðinga.
Cecilie B.H. Björgvinsdóttir, cissy@hjukrun.is
KJARAKÖNNUN HAUSTIÐ 2010
Í kjarakönnun, sem var gerð sl. haust, komu í ljós
áhugaverðar upplýsingar um laun, starfshlutfall
og menntun hjúkrunarfræðinga. Þetta var í annað
skipti sem Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
framkvæmdi slíka könnun á meðal félagsmanna
sinna en sagt var frá kjarakönnuninni 2009 í
Tímariti hjúkrunarfræðinga, 2. tbl. 2010.