Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2010, Blaðsíða 16
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 86. árg. 201012
Rannsakendur í þrjátíu löndum
Við meðferð á geðfötluðum geta niður
stöður komið að góðum notum til að
mynda við gerð meðferðaráætlana,
árangursmælinga, kostnaðargreininga
og gæða vísa. Einnig eru klínískar leið
beiningar í vinnslu hjá interRAI og munu
nýtast við gerð leiðbeininga hér á landi.
InterRAI er hópur rannsakenda í yfir
30 löndum sem stefna að því að bæta
heilbrigðis og félagsþjónustu fyrir aldrað
fólk, langveika og fatlaða einstaklinga að
sögn Rakelar. Heilbrigðisráðuneytið er
yfir interRAI kerfum á Íslandi og hefur séð
um að fjármagna vinnu við uppsetningu
kerfanna hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Stika.
Landlæknisembættið er eftirlitsaðili.
Leiðandi í faglegri þróun
Yfirmenn geðsviðs Landspítala hafa verið
leiðandi í faglegri þróun interRAI Mental
Health matstækisins eftir sameiningu
Sigurður Bogi Sævarsson, sigbogi@simnet.is
MEÐFERÐ OG MARKMIÐ FÁ STERKARI
STOÐ TIL ÁRANGURS
„Sá árangur sem við höfum náð með notkun
heildræns geðheilbrigðismats, interRAI Mental
Health, er mjög góður nú þegar. Sjúklingar verða
meira meðvitaðir um þá þætti sem takast þarf á
við þegar þeir eru þátttakendur í upplýsingaöflun
og eigin meðferðaráætlunum ásamt því að
þekkja þau markmið sem þeir hafa sett sér í
samvinnu við meðferðaraðilana. Á endurhæfingu
geðsviðs hafa niðurstöður styrkt okkur í að meta
hvar þjónustuþörfin er mest og hefur verið að
nokkru hægt að breyta áherslum í samræmi við
það. Í framtíðinni verður hægt að forgangsraða
enn þá betur inn á deildirnar og í önnur
úrræði, miðað við eðli og einkenni sjúkdóma,“
segir Rakel Valdimarsdóttir verkefnastjóri og
hjúkrunarfræðingur á geðsviði Landspítala.
sjúkrahúsanna árið 2000. Fyrstu skrefin
að innleiðingu interRAI kerfa á Íslandi tók
Pálmi Jónsson öldrunarlæknir sem kom
með hugmyndina á öldrunarsvið um 1991.
Árið 1999 var stofnaður samstarfshópur
með þremur hjúkrunarfræðingum og lækni
við geðdeild Sjúkrahúss Reykjavíkur til að
vinna að þróun interRAI Mental Health
matskerfisins fyrir geðfatlaða. Halldór
Kolbeinsson, yfirlæknir og geð læknir, hefur
verið þátttakandi í verkefninu frá 1999 og
er félagi í interRAI alþjóðasamtökunum
ásamt Rakel og Pálma en Pálmi situr einnig
í stjórn interRAI. Í október 2009 var árleg
ráð stefna interRAI Network of Excellence
in Mental Health haldin á Íslandi í umsjón
geðsviðs Landspítala.
Stefna að auknum lífsgæðum
Matstækið InterRAI Mental Health and
Care Planning System hefur verið í
notkun á geðsviði Landspítala undanfarin
ár. Á árinu 2002 var innleidd skráning á
nokkrum deildum þar sem notast var við
hand skráða upplýsingaöflun. Í maí 2007
hófst síðan rafræn skráning á legudeildum
endurhæfingar geðsviðs og í ágúst
sama ár á legudeildum bráðaþjónustu
geðsviðs við Hringbraut. Brátt kom í ljós
að matstækið var of veigamikið fyrir þá
sem liggja stutt inni á bráðadeildum og
er í uppsetningu annað styttra matstæki
sem áætlað er að innleiða á bráðadeildir
fyrir þá sem hafa stutta innlögn.
Matskerfi interRAI eru um það bil fimmtán
og hafa fjögur þeirra verið í rafrænni
notkun á Íslandi, tvö hafa verið notuð í
rannsóknarvinnu, eitt er í uppsetningu
og tvö eru í forprófun. Á geðsviði er auk
interRAI Mental Health verið að setja
upp kerfi hjá Stika fyrir bráðaþjónustu
geðsviðs (interRAI Emergency Screener
for Psychiatry, ESP). Einnig eru í forprófun
matstæki fyrir samfélagsgeðþjónustu,