Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2010, Side 57

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2010, Side 57
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 86. árg. 2010 53 Ritrýnd fræðigrein tryggingamálaráðherra heimild sveitarfélaga og dvalarheimila til að fjölga meðal annars hvíldarinnlagnarrýmum fyrir aldraða en fjöldi hvíldarinnlagnarrýma hefur verið breytilegur milli ára (Félagsmálaráðuneytið, 2008b). Hvíldarinnlagnir eru þjónustuúrræði sem stendur öldruðum einstaklingum og aðstendum þeirra til boða. Þeir sem nýta sér þær eru aldraðir einstaklingar sem búa heima og þurfa mikla aðstoð eða eftirlit við daglegar athafnir. Þá hvílir jafnan mikil umönnunarbyrði á aðstandendum (Molyneux o.fl., 2008). Aldraðir í heimahúsum geta átt erfitt með að kalla eftir þjónustu sem þeir þarfnast, því er mikilvægt að starfsmenn heilbrigðis­ og félagsþjónustunnar veiti upplýsingar um hvaða þjónusta og stuðningur er í boði (Ekwall o.fl., 2007). Í könnun, sem Landlæknisembættið lét gera meðal aldraðra einstaklinga (N= 242) sem voru á biðlista eftir að komast á hjúkrunarheimili í lok september 2006, kom fram að um 47% þeirra sem svöruðu sögðust hafa nýtt sér hvíldarinnlögn og þriðjungur hafði nýtt sér dagvistun. Flestir þeir sem sögðust ekki hafa nýtt sér þessa þjónustu vildu það ekki eða töldu sig ekki þurfa á þjónustunni að halda (Landlæknir, 2006). Breytingar á líkamlegu og andlegu atgervi hins aldraða geta haft áhrif á getu hans til að sinna grundvallarþáttum sjálfsumönnunar (Ebersole o.fl., 2005, Tooth o.fl., 2008). Öldrunarbreytingar geta ásamt sjúkdómum valdið hrörnun á skynjun, hreyfigetu og hugrænni getu. Þessar breytingar geta leitt til þess að aldraðir eigi erfiðara með að sinna daglegum athöfnum á öruggan og þægilegan hátt (Fielo og Warren, 2001). Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) (2001) hefur sett fram hugmyndafræði sem tekur til færni og fötlunar en það er „The International Classification of Functioning, Disability and Health“ (ICF). Þessi hugmyndafræði lýsir því hvernig færni og fötlun einstaklingsins skýrist af mörgum samverkandi þáttum, svo sem heilsu, umhverfi og einstaklingsbundnum þáttum (WHO, 2001). Með hvíldarinnlögnum er sérstaklega hægt að styrkja tvo þætti sem hjálpa öldruðum að dveljast lengur heima, annars vegar heilsu hins aldraða með endurhæfingu og hins vegar umhverfi hans með því að hvíla aðstandendur sem koma að umönnun. Líkamlegar, andlegar og félagslegar þarfir þeirra sem nýta sér hvíldarinnlagnir hafa lítið verið skoðaðar og rannsakendur að mestu einblínt á þarfir aðstandenda (Shaw o.fl., 2009). Þekking á þörfum og væntingum aldraðra og aðstandenda þeirra sem bíða eftir hvíldarinnlögn er mikilvæg við skipulagningu og framkvæmd slíkrar þjónustu. Tilgangur þessarar rannsóknar var að fá lýsandi mynd af líkamlegri, andlegri og félagslegri færni og þörfum aldraðra sem biðu eftir hvíldarinnlögn á öldrunarsviði Landspítala vorið 2007. Einnig var leitast við að kanna væntingar aldraðra og aðstandenda til þjónustunnar. AÐFERÐ Rannsóknin var megindleg þverskurðarrannsókn með lýsandi sniði auk eigindlegs þáttar sem fól í sér eina opna spurningu þar sem leitað var eftir væntingum hins aldraða og nánasta aðstandanda hans til hvíldarinnlagnar. Notað var matstækið RAI­Home Care sem er staðlað form spurninga þar sem upplýsingum er aflað með viðtölum og mati hjúkrunarfræðings. Í þverskurðarrannsókn er fyrirbærum eða sambandi milli fyrirbæra lýst á ákveðnum tímapunkti (Polit og Beck, 2006). Lýsandi snið er notað þegar athuga á tíðni ákveðinna þátta eða einkenna (Polit o.fl., 2001). Rannsóknarvinnan hófst í lok árs 2006 og lauk í maí 2007. Þátttakendur voru heimsóttir á tímabilinu janúar til mars 2007. Þátttakendur Úrtakið var þægindaúrtak 30 aldraðra einstaklinga, 67 ára og eldri, af biðlista eftir hvíldarinnlögn á öldrunarsviði Landspítala. Heildarfjöldi á biðlista var um 50 einstaklingar. Hjúkrunarfræðingur á göngudeild öldrunarsviðs á Landakoti hafði milligöngu um að hringja í fólk á biðlista og óska eftir þátttöku þeirra. Af þeim 30 einstaklingum, sem samþykktu þátttöku, féllu sex út af ýmsum ástæðum. Einn var kominn með pláss á hjúkrunarheimili, tveir lágu á bráðadeildum sjúkrahúsa, einn hafði fengið pláss í hvíldarinnlögn annars staðar, einn var hættur við og einn vissi ekki til þess að hann væri á biðlista eftir hvíldarinnlögn. Matstækið var var því lagt fyrir 24 einstaklinga í allt. Þátttakendur voru á aldrinum 70 til 97 ára, 13 karlar og 11 konur. Matstæki Við öflun gagna var notað RAI­Home Care matstækið (RAI­HC), 8. útgáfu, en það er gert fyrir heimaþjónustu (Pálmi Jónsson, 2003) til þess að meta þarfir viðkomandi fyrir heilbrigðis­ og félagsþjónustu (Morris o.fl., 2003). RAI­HC­matstækið skiptist í 20 kafla (A­T) þar sem fjallað er um eftirfarandi þætti: persónuupplýsingar; bakgrunnsupplýsingar; vitræna getu; tjáskipti og sjón; hugarástand; andlega og félagslega líðan; líkamlega færni; stjórn á þvagi og hægðum; sjúkdómsgreiningar; heilsufarsástand; munn­ og næringarástand; ástand húðar; lyfjanotkun; meðferð og aðgerðir; ábyrgð og yfirlýsingar; félagslegt stuðningskerfi; umhverfisaðstæður; möguleika á útskrift og almennt ástand; útskrift; upplýsingar um matið. Kaflarnir skiptast síðan í um 230 atriði sem metin eru en í flestum tilfellum er um nafn­ eða raðbreytur að ræða. (InterRAI, e.d.). RAI­HC var fyrst áreiðanleikaprófað og notað hérlendis árið 1997. Áreiðanleikaprófunin sýndi að 50% af breytunum höfðu næstum fullkomið samræmi (kappagildi≥0,81), 38% höfðu í meðallagi til þó nokkuð samræmi (kappagildi = 0,41­0,80) og í 12% af breytunum var samræmi einungis lítið eða undir meðallagi (kappagildi≤0,40) (Anna Birna Jensdóttir o.fl., 1999). Nú er þetta matstæki notað af Miðstöð heimahjúkrunar og Félagsþjónustunni í Reykjavík við samræmt mat á þjónustuþörf skjólstæðinga þeirra (Siv Friðleifsdóttir, 2006). Hugtakið daglegar athafnir (hér eftir skammstafað sem ADL) felur í sér grundvallarþætti sjálfsumönnunar, svo sem að matast, klæðast, fara á salernið, baða sig og geta hreyft sig um (Ebersole o.fl., 2005; Morris o.fl., 1999). Flóknari daglegar athafnir (hér eftir skammstafað sem IADL) fela í sér hæfni til að sjá um fjármál, innkaup, heimilisstörf, að ferðast á milli staða, nota síma og geta séð sjálfur um lyfjatöku, það er að taka rétt lyf í réttum skammti á réttum tíma (Lawton og Brody, 1969). Með formlegum stuðningi er átt við heilbrigðis­ og

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.