Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2013, Síða 23
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 3. tbl. 89. árg. 2013 19
Elsa B. Friðfinnsdóttir afhendir Ólafi G. Skúlasýni
lyklavöldin að formannsskrifstofunni.
Aðalfundur samþykkti tillögu stjórnar FÍH um
breytingu á félags gjöldum. Félagsgjöld verða
1,4% af dagvinnulaunum hjúkrunarfræðinga
í stað 1,5% og hámarksgreiðsla á ári fyrir
hvern félagsmann verður aldrei hærri en 80
þúsund krónur. Félagsgjöld fagaðila verða
10 þúsund krónur á ári og félagsgjöld
aukaaðila 5 þúsund krónur.
Markmið og starfsáætlun næsta
starfsárs
Markmið og starfsáætlun næsta starfs
árs félagsins voru samþykkt. Helstu
áherslur og verkefni í starfi félagsins
á næsta starfsári verða úrvinnsla og
eftirfylgd verkefnisins Ímynd og áhrif
sem unnið hefur verið að undanfarin
tvö ár. Áhersla er lögð á endurskoðun
á starfsemi, verkefnum og útgáfumálum
félagsins, bæði tímariti og vefsvæði,
auk þess sem samþykkt var að fara í
heildarendurskoðun á lögum félagsins
sem verða lögð fyrir aðalfund árið 2014.
Stofnun styrktarsjóðs Félags
íslenskra hjúkrunar fræðinga
Tillaga um stofnun styrktarsjóðs Félags
íslenskra hjúkrunar fræðinga (SFÍH) var
samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.
Sjóðurinn er stofnaður á grunni bráða
birgða styrktar og sjúkra sjóða FÍH. Allar
eignir þeirra sjóða og skuldir færast yfir
í SFÍH, auk þess sem hann tekur við
þeim skuldbindingum sem þessir tveir
sjóðir hafa gagnvart sjóðs félögum sínum.
Sjóðnum skal varið til þess að styrkja
sjóðsfélaga með fé og koma þannig
til móts við tekju tap vegna ólaunaðrar
fjarveru sjóðs félaga frá vinnu vegna
veikinda sjóðsfélaga, nákominna eða
vegna annarra persónu legra aðstæðna.
Sjóðurinn veitir einnig fæðingar styrki.
Sjóðstjórn setur úthlutunar reglur sem
samþykktar eru af stjórn FÍH. Skulu
þær vera aðgengilegar félags mönnum á
vefsvæði félagsins og á skrifstofu þess.
Starfsreglur nefnda og sjóða
Breyttar starfsreglur orlofssjóðs voru
samþykktar á fundinum. Breytingin felst í
því að svokallað ævigjald lífeyrisþega og
gjald, sem öryrkjar og atvinnuleitendur
gátu greitt til að viðhalda sjóðsaðild, er
fellt niður. Þess í stað er þessum aðilum
gert mögulegt að viðhalda sjóðsaðild
sinni á meðan þeir eiga punkta en um
frekari punktaávinnslu er ekki að ræða.
Þeir geta þá notað þá punkta, sem þeir
eiga inni, en um leið og þeir klárast lýkur
sjóðsaðild viðkomandi. Þá var einnig
samþykkt tillaga stjórnar orlofssjóðs þess
efnis að félagsmenn, þ.e. félagsmenn
með fulla aðild, fagaðild og aukaaðild,
geta leigt bústaði og íbúðir félagsins,
sem ekki hafa leigst út, með skömmum
fyrirvara (miðað við viku) þó svo þeir eigi
ekki punkta.
Fulltrúar svæðisdeilda í stjórn félagsins
Svæðisdeild höfuðborgarsvæðisins – enginn
Vesturlandsdeild – Sigrún Jóhannesdóttir
Vestfjarðadeild – Svanlaug Guðnadóttir
Norðurlandsdeild – Sigríður Kjartansdóttir
Austurlandsdeild – Ragnhildur Rós Indriðadóttir
Suðurlandsdeild – Fjóla Ingimundardóttir
Suðurnesjadeild – Brynja Dögg Jónsdóttir
Siða og sáttanefnd
3 aðalmenn og 2 til vara
Guðbjörg Svava Ragnarsdóttir
Sigurveig Sigurjónsdóttir Mýrdal
Þórgunnur Hjaltadóttir
Varamenn:
Hildur Helgadóttir
Edda Ýr Þórsdóttir
Ritnefnd
4 fulltrúar
Bergþóra Eyjólfsdóttir
Kolbrún Albertsdóttir
Vigdís Hrönn Viggósdóttir
Þórdís Katrín Þorsteinsdóttir
Skoðunarmenn reikninga
2 fulltrúar
Herdís Herbertsdóttir
Þórgunnur Hjaltadóttir
Stjórn orlofssjóðs
5 fulltrúar
Birna Jónsdóttir
Guðrún Ágústsdóttir
Ingibjörg Rósa Friðbjörnsdóttir
K. Hjördís Leósdóttir
Ólöf Sigurðardóttir
Kjörnefnd
3 aðalmenn og 1 til vara
Ásta Möller
Margrét Tómasdóttir
Unnur Þormóðsdóttir
Varamaður:
Margrét Blöndal
Stjórn styrktarsjóðs
3 aðalmenn og 2 til vara
Fríða Björg Leifsdóttir
Guðbjörg Pálsdóttir
Gunnar Helgason
Varamenn:
Aðalheiður D. Matthíasdóttir
Sigrún Barkardóttir
Stjórn Minningarsjóðs
Hans Adolfs Hjartarsonar
Hrund Scheving Thorsteinsson
Eftirtaldir aðilar voru kosnir í stjórn félagsins, nefndir og sjóði.