Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2013, Qupperneq 45

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2013, Qupperneq 45
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 3. tbl. 89. árg. 2013 41 Ritrýnd fræðigrein SCIENTIFIC PAPER hegðun sem nauðsynleg er talin til að viðhalda og bæta heilsu (Redman, 2004). Mikilvægi sjúklingafræðslu á Íslandi endur­ speglast í lögum um réttindi sjúklinga (74/1997) og í siðareglum hjúkrunarfræðinga þar sem kveðið er á um að hjúkrunarfræðingur skuli stuðla að því að skjólstæðingar geti tekið upplýsta ákvörðun (Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, e.d). Eflandi sjúklingafræðsla er hugmyndafræði þar sem litið er á eflingu (e. empowerment) sjúklinga sem markmið sjúklingafræðslu (Leino­Kilpi o.fl., 2005). Þekking er ein af forsendum eflingar og þekking, sem styður eflingu, hefur verið flokkuð í sex svið: lífeðlisfræði, færni, reynslu, siðfræði, félagslega þætti og fjárhag (Rankinen o.fl., 2007). Fræðsla getur aukið þekkingu og sjúklingar geta greint hvaða þekkingu þá skortir og þeir hafa því ákveðnar væntingar til fræðslu þegar þeir hitta heilbrigðisstarfsfólk, til dæmis fyrir skurðaðgerðir. Gervi liðasjúklingar vænta fræðslu á mörgum sviðum, meðal annars á hverju megi eiga von í aðgerðar­ og bataferlinu (Soever o.fl., 2010). Mikilvægt er fyrir árangursríka sjúklingafræðslu að væntingar sjúklinga séu greindar og að með fræðslunni sé leitast við að sinna þeim á einstaklingsbundinn hátt (Suhonen og Leino­Kilpi, 2006). Rannsóknir benda til þess að algengt sé að fræðsluþörfum skurðsjúklinga sé ekki nægilega vel sinnt en þó í mismunandi mæli eftir sviðum (Heikkinen o.fl., 2007; Katrín Blöndal o.fl., 2011; Rankinen o.fl., 2007). Rannsóknir á áhrifum sjúklingafræðslu til skurðsjúklinga almennt og gerviliðasjúklinga sérstaklega gefa til kynna að fræðslan geti haft margvísleg jákvæð áhrif þótt þörf sé á fleiri og vandaðri rannsóknum. Þannig geti hún minnkað kvíða fyrir aðgerð (McDonald o.fl., 2004), aukið þekkingu (Fredericks o.fl., 2010; Johansson o.fl., 2005; Ronco o.fl., 2012) og bætt sjálfsumönnun, þar með talið verkjameðferð (Barksdale og Backer, 2005; Fredericks o.fl., 2010; Kearney o.fl., 2011). Fræðsla hefur einnig verið tengd við styttingu legutíma (Yoon o.fl., 2010) og færri byltur eftir aðgerð (Clarke o.fl., 2012) . Heilsutengd lífsgæði Heilsutengd lífsgæði eru algengt árangursmat þegar árangur gerviliðaaðgerða er metinn og nokkur matstæki hafa verið búin til í þeim tilgangi (Ethgen o.fl., 2004). Hugtakið heilsutengd lífsgæði er margslungið og ekki er til ein viðurkennd skilgreining á því en segja má að matstækin, sem notuð eru, leggi þar línurnar. Gerviliðaaðgerðir bæta heilsutengd lífsgæði sjúklinga, þó frekar hjá sjúklingum sem fara í mjaðmaskipti en hnéskipti, karlmönnum virðist gagnast aðgerðin betur en konum og því verri sem heilsutengd lífsgæði eru fyrir aðgerð því meira batna þau. Mestar framfarir verða á fyrstu 3 til 6 mánuðum eftir aðgerðina (Ethgen o.fl., 2004). Sjúklingar binda miklar vonir við aðgerðina, iðulega mun meiri en skurðlæknarnir (Moran o.fl., 2003). Þegar væntingar eru óraunhæfar hefur verið bent á mikilvægi góðrar fræðslu til að koma til móts við væntingar enda hafi það jafnframt áhrif á ánægju sjúklinga með aðgerðina (Gandhi o.fl., 2010; Nilsdotter o.fl., 2009). Ekki er ljóst hvort og hvaða tengsl eru á milli sjúklingafræðslu og hvernig sjúklingar meta heilsutengd lífsgæði sín og heilsufar. Í rannsókn Leino­Kilpi o.fl. (2005) kom í ljós jákvætt, marktækt samband á milli þekkingar, sem skurðsjúklingar töldu sig hafa öðlast í sjúkrahúsdvölinni, og heilsutengdra lífsgæða stuttu eftir skurðaðgerð. Einnig fannst jákvætt, marktækt samband á milli ánægju með fræðslu í tengslum við gerviliðaaðgerð og sjálfsmats á eigin heilsu, ári eftir aðgerð, í rannsókn Baumann o.fl. (2009). Sjúklingafræðsla er mikilvægur hluti af aðgerðarferli gerviliða­ sjúklinga og virðist geta haft áhrif á bata þeirra og jafnvel árangur aðgerðar. Hjúkrunarfræðingar þurfa að þekkja fræðsluþarfir sjúklinga sinna svo þeir geti mótað fræðsluefni sem dugir sjúklingunum. Efling sem markmið sjúklingafræðslu samrýmist bæði lögum um réttindi sjúklinga og siðareglum hjúkrunarfræðinga þar sem áhersla er lögð á virka þátttöku sjúklinga í meðferð, ábyrgð þeirra á eigin heilsu og aukna sjálfsumönnun. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna hvernig gerviliða­ sjúklingar telja að væntingum sínum til fræðslu hafi verið sinnt á íslenskum sjúkrahúsum, tengslum þess við heilsutengd lífsgæði og hvort mat þeirra breytist eftir hálft ár. Rannsóknin er hluti af samstarfsverkefni fræðimanna í sjö Evrópulöndum um eflandi sjúklingafræðslu meðal sjúklinga sem fá gerviliði. Rannsóknaráætlunin var unnin af hópnum og ábyrgðarmaður var dr. Kirsi Johansson við hjúkrunarfræðideild háskólans í Turku í Finnlandi. Eftirfarandi rannsóknarspurningar voru settar fram: 1. Hverjar eru væntingar sjúklinga, sem eru á leið í gerviliða­ aðgerð, til fræðslu og hvaða bakgrunnsbreytur tengjast þeim? 2. Hvaða fræðslu telja sjúklingar sig hafa fengið á sjúkrahúsinu þegar þeir eru spurðir við útskrift og hálfu ári síðar og hvaða bakgrunnsbreytur tengjast fenginni reynslu af fræðslu? 3. Hver er mismunurinn á væntingum til fræðslu og fenginnar fræðslu, hvaða bakgrunnsbreytur tengjast þeim mismun og verður breyting á mati sjúklinga þegar þeir eru spurðir við útskrift og hálfu ári síðar? 4. Hver eru heilsutengd lífsgæði sjúklinga fyrir, stuttu eftir og hálfu ári eftir gerviliðaaðgerð og hvaða bakgrunnsbreytur tengjast þeim? 5. Hver eru tengsl heilsutengdra lífsgæða og mismun á væntingum til fræðslu og fenginni fræðslu? AÐFERÐ Rannsóknarsnið Þetta er framvirk, lýsandi samanburðarrannsókn með þremur mælipunktum: tími 1 fyrir aðgerð og fyrir formlega fræðslu um aðgerðina, tími 2 við útskrift eftir aðgerð á sjúkrahúsinu eftir útskriftarfræðslu og tími 3 6­7 mánuðum eftir aðgerð. Samkvæmt aflútreikningi, þar sem miðað var við aflstuðul 0,90, staðalfrávik 0,95 og marktektarmörk 0,05, þarf 220 sjúklinga til að finna mun á fræðslu á tíma 1 og 2. Þátttakendur Þýðið var sjúklingar á Íslandi sem fóru í skipulagðar gerviliða­ aðgerðir á mjöðm eða hné vegna slitgigtar. Í úrtaki voru allir

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.