Þjóðmál - 01.03.2012, Side 4

Þjóðmál - 01.03.2012, Side 4
Ritstjóraspjall Vor 2012 _____________ Þegar þetta hefti Þjóðmála fór í prentun voru réttarhöld hafin yfir Geir H . Haarde í landsdómi . Þótt aðalundirrót þeirra sé sú fyrirætlun forystumanna stjórn­ a rflokkanna að koma höggi á Geir og Sjálf­ stæðisflokkinn þá koma þau eins og ferskur vindur inn í þjóð málaumræðuna . Við hrun bankanna fór stjórnmála um ­ ræðan á Íslandi strax á villigötur . Það mynd­ aðist eins konar bandalag vinstri aflanna og útrásarmanna að klína sök á falli bankanna á Sjálfstæðisflokkinn og ekki síst Davíð Oddsson . Þá varð fólk sem áður hafði verið utangarðs, sumt jafnvel vegna ýmissa bresta og dómgreindarskorts, skyndilega eftirsótt­ ir álitsgjafar . Þetta fólk, ásamt hlutdrægum frétta mönn um og mönnum á snærum útrásarliðsins (sbr . bók ina Sofandi að feigðar ósi), hefur haft mest skoð ana mótandi áhrif á Íslandi allt fram á þennan dag . Inntakið í framlagi þessa fólks til stjórn ­ málaumræðunnar, fyrir utan að skella allri skuld á Sjálfstæðisflokkinn og Davíð, fólst í því að reyna að sann færa landsmenn um að ekki aðeins væru íslenskir stjórnmálamenn gerspilltir og einskis nýtir heldur líka æðstu embættis menn landsins, stjórnsýslan væri gersamlega úti að aka og augljóst væri að við kynnum alls ekki fótum okkar forráð . Erlendis frá voru kallaðir til spekingar, sem ekkert vissu um íslenskar aðstæður, til að staðfesta þessa niðurstöðu . Í þessu fari hefur verið hjakkað frá falli bankanna . Og úr þessum jarðvegi hafa meðal annars sprottið: lélegasta vinstri stjórn í manna minnum, Þráinn Bertelsson, Þór Saari, hinir vitringarnir í Borgarahreyfingunni og grínistinn í borgar stjórastólnum í Reykja­ vík . Í þessu andrúmslofti var rannsóknar ­ skýrsla Alþingis unnin . Höfuðniðurstaða rann sóknarnefndarinnar var þó skýr: bank ­ arnir féllu vegna þess að þeir voru rændir innan frá af eigendum sínum og æðstu stjórn endum . En rannsóknarnefndin taldi sér skylt að þóknast almenningsálitinu, eða öllu heldur álitsgjöfunum sem mest bar á, og dró fram nokkra ráðherra og embættis­ menn, á mjög hæpnum for send um, sem með­söku dólga . Þetta hentu vinstri öflin og álits gjafarnir á lofti og gerðu að aðalniður­ stöðu nefndarinnar . Það varð síðan grund ­ völlur inn að lands dóms ákær unni gegn Geir H . Haarde . Því miður fóru vitnaleiðslur rannsóknar­ nefndar Alþingis ekki fram fyrir opnum tjöldum, það kynni að hafa slegið eitthvað á áróðurinn í fjölmiðlum og á Netinu . Óskiljan legt er hvers vegna lands dóms­ réttar höld unum er ekki út varpað og sjón­ varpað beint til allra lands manna . Þótt frétta­ og blaðamenn geri vafa l aust sitt besta við að koma til skila til al menn ings því sem markverðast kemur fram er þeim, því miður, ekki öllum treystandi til að gæta hlutlægni . Hvað sem því líður leiddu yfir­ heyrsl urnar yfir Geir og öllum vitnum á fyrstu þremur dögum réttarhaldanna það glöggt í ljós á hve veikum grunni ákærurnar gegn honum eru byggðar . Frásögn hans af Þjóðmál VOR 2012 3

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.