Þjóðmál - 01.03.2012, Page 14

Þjóðmál - 01.03.2012, Page 14
 Þjóðmál VOR 2012 13 ráðherra, á stöðu málsins 22 . febrúar 2012 . Hann sagði að nýtt ríkisstjórnarfrumvarp um fiskveiðistjórnun yrði lagt fram á næstu vikum . Hann hefði haldið „upp­ lýsingafundi með ýmsum í greininni, kynnt hvernig við nálgumst þetta“ . Nefndi hann útvegsmenn, sjómannasamtökin og Starfsgreinasambandið til sögunnar . Hann efndi til slíkra viðræðna til að það væri „talsamband á milli aðila“ . Þá hefði hann rætt við félaga sína í stjórnarflokkunum og auk þess hefðu „þau komið aðeins að þessu Guðbjartur Hannesson og Katrín Jakobsdóttir sem voru í ráðherranefndinni“ . Ekki væri hægt að neita því að vinnan væri nokkuð á eftir áætlun . Vinnan er ekki aðeins á eftir áætlun heldur fer á milli mála hvað fólst í samtölum Steingríms J . við hagsmunaaðila . Í Morgun­ blaðinu 23 . febrúar birtust samtöl við þrjá þeirra aðila sem hafa mikilla hagsmuna að gæta í sjávarútvegi, talsmenn samtaka sjó­ manna, útvegsmanna og fiskverkafólks . „Við höfum enga aðkomu að þessari vinnu,“ sagði Friðrik J . Arngrímsson, fram kvæmda­ stjóri LÍÚ, um gerð nýs laga frumvarps . Hann sagði að fulltrúar LÍÚ hefðu hitt ráð herra á stuttum fundi 19 . janúar . Sævar Gunnar sson, formaður Sjómanna sam bands Íslands (SSÍ), sagði að engin efni satriði væntanlegs frumvarps hefðu komið fram á fundi þeirra með sjávarútvegs ráð herra . Björn Snæbjörnsson, formaður Starfs greina­ sambands Íslands (SGS), sagði að ekki hefði verið haft samráð við þá um frum varps­ gerðina . Fiskverkafólk er innan SGS . Jóhanna Sigurðardóttir boðaði í lok janúar framlagningu nýs frumvarps um stjórn fiskveiða í febrúar 2012, eins og áður sagði . Hún sagði á alþingi 23 . febrúar 2012 að Steingrímur J . Sigfússon ynni að málinu af kappi . Þetta hefði verið forgangsmál hjá honum og hann ætlaði sér að leggja það fram eins fljótt og auðið væri . „Þær spurnir hef ég af því, eftir samtöl við hann, að eitthvað muni það dragast . Hann er í samráði við ýmsa aðila um þetta mál en vonandi kemst það það fljótt inn í þingið að við getum afgreitt það á þessu vorþingi . Það er mjög mikilvægt og er eitt af forgangsmálum ríkis­ stjórnarinnar,“ sagði í Jóhanna vegna fyrir­ spurnar frá Bjarna Benediktssyni, for manni Sjálf stæðisflokksins . Þegar litið er á stöðu þessa forgangsmáls ríkisstjórnarinnar í lok febrúar 2012 er hún ekki björguleg . Samráð virðist af skornum skammti milli Jóhönnu og Steingríms J . og enginn veit í raun um stefnu þeirra í málinu, farið er með hana eins og mannsmorð . Þá er samráð Steingríms J . við hagsmunaaðila frekar til að sýnast en að ræða efnisatriði og komast að sameiginlegri niðurstöðu . Menn þurfa ekki að vera mjög spámannlega vaxnir til að komast að þeirri niðurstöðu að Jóhanna Sigurðardóttir hafi ekkert vald á þessu forgangsmáli sínu, hvorki á efni málsins né tímamörkum . III . Sé staðan óbjörguleg varðandi fisk veiði­stjórnina, er hún ömurleg þegar kemur að stjórnarskrármálinu . Stjórn skip unar­ og eftirlitsnefnd alþingis gafst upp við að brjóta tillögur stjórnlagaráðs til mergjar og segja álit sitt á þeim . Nefndin fékk tillög urnar til meðferðar í október 2011 og afgreiddi þær óbreyttar frá sér 22 . febrúar 2012 í skjóli þingsályktunartillögu frá Þór Saari, þingmanni Hreyfingarinnar, og fleirum . Með samþykkt tillögunnar vannst tvennt: keyptur var stuðningur Hreyfi ngar innar við ríkisstjórnina og stjórnarskrár tillög urnar komust út úr alþingi til stjórn lag a ráðs . Hvernig stjórnlagaráð, sem er jafnvel um boðs lausara nú en það var áður, tekur á málinu er óljóst . Salvör Nordal . for­ maður hins afsetta stjórnlagaráðs, gagnrýndi

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.