Þjóðmál - 01.03.2012, Síða 28

Þjóðmál - 01.03.2012, Síða 28
 Þjóðmál VOR 2012 27 óbein þátttaka . Er þá ekki Rússland næsta mál á dagskrá? Aðrar þjóðir en aðildarríki Norður­ skautsráðsins reyna að þrengja sér að sem þátt tak endur . Þeim hefur verið haldið utan við þessa samvinnu . Frá Beijing hafa bor­ ist yfirlýsingar um að Kínverjar, sem öðr­ um fremur þurfa meiri orku og hráefni, muni sækja í Norðurskautið . Svo hugleikin ráðgáta sem þetta risaveldi og saga þess er, skal heldur ekki litið fram hjá herveldinu Kína og stefnunni varðandi vígbúnað . Kína er með 2 .3 milljónir manna undir vopnum og þar með stærsta landher heims . Herinn er búinn því nýtískulegasta í vopnum og Kínverjar framleiða t .d . ágætar orustuþotur, einnig fyrir helsta bandamanninn Pakistan, þann misjafna sauð . Með fasta setu í Öryggis­ ráðinu er Kína eitt af fimm ríkjum sem eru viðurkennd kjarnavopnaveldi . Í vopna búri sínu hafa þeir yfir að ráða langdræg um eldflaugum . Nú hefur það bæst við að Kína er að koma sér upp öflugum sjóher með fyrsta flugvéla móður skipinu . Hver er skyndilegur áhugi þeirra, fyrir milligöngu Huang Nabo, að kaupa eða taka á leigu stærðar­ landsvæði, einmitt í þeim landshluta sem á framtíðina fyrir sér í þróuninni á norður­ slóðum, annar en að koma sér fyrir á réttum stað? Grímsstaðir á Fjöllum eru væntanlega síðasti staðurinn fyrir golfvöll á Íslandi en ekki flugvöll, sem skáldið Huang hefur einnig viljað byggja . Þetta svæði er einmitt baklandið fyrir hugsanlega framtíðarhöfn fyrir norðursvæðið og viturlegast að það sé óskert í höndum okkar . Þessi landshluti var reyndar áður ofarlega á blaði fyrir vara­ flugvöll sem NATO fékk ekki leyfi fyrir og vafalaust hefði fullnægt kröfum nútímans betur en Egilsstaðaflugvöllur . Hernámið 1940 og herseta stríðsins varð til þess að landið fór úr fátækt í velmegun . Stríð og friður færðust beint inn í líf fólks . Sú spurning vaknar af hverju heimsstyrjöld og kalt stríð leiddi ekki til þess að Íslendingar gerðust almennt árvakrir og sinnugir um hvað þeir gætu sjálfir gert eða átt að frumkvæði í varnarsamvinnu við lýðræðisþjóðir . Af hverju gætir enn þeirrar skoðunar að það sé ekki okkar að sýsla með mál sem snerta öryggi og varnir þjóðarinnar því að við séum lítil, vopnlaus þjóð í einangrun sem enginn muni skaða? Fyrir því gætu verið ýmsar ástæður, en okkur, sem lifðum þennan tíma allan, er þó minnisstæðastur sá linnu lausi og harði áróður sem öfgamenn til vinstri og Þjóðvilj inn ráku gegn þeim sem studdu NATO­aðild og veru varnarliðsins og byrjaði með átökunum við Alþingishúsið 1949 . Sá áróður hefur skilið eftir sig spor . Þeir sem studdu vestræna varnar samvinnu gátu hafa veigrað sér við að fara í slag þar sem persónuníð var daglegt brauð . Allt tal um samvinnu við varnar liðið var stimplað sem landráð . En þetta var þá og er best gleymt . Í mars 2009 kom út Áhættumatsskýrsla fyrir Ísland sem unnin var af þverfaglegum hópi á vegum utanríkisráðuneytisins og höf und ur tók þátt í . Þar var fjallað um þær breytingar á skilningi á öryggi og ógnum sem orðið hafa frá dögum kalda stríðsins . Hér að framan er farið yfir sögu síðari heims styrjaldarinnar og kalda stríðsins og hernaðar legt mikilvægi Íslands, sem var úr sögunni á fyrri forsendum við að árásar­ hættan í austri hvarf með hruni Sovét ríkj­ anna og Varsjárbandalagsins 1991 . Þau ríki eiga nú annaðhvort aðild að NATO eða að sérstökum samstarfsvettvangi þess . Þetta stækkaða Atlantshafsbandalag sinnir öryggi ríkjanna sameiginlega við algjör lega breyttar aðstæður frá því sem var á liðinni öld . Þær breytingar eru sumpart skil greindar í Áhættumatsskýrslunni með því sem nefnast „nýjar ógnir“ (new threats), þ .e . hnatt ræna
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.