Þjóðmál - 01.03.2012, Qupperneq 33
32 Þjóðmál VOR 2012
2 . mynd:
Jaðarskattar á
tekjur einstaklinga
miðað við skatta
annars vegar 2007
og hins vegar 2012 .
tekin af vefsíðunni thjod fund ur2010.is . Ég
hvet lesendur til að gefa jafnframt gaum
Excelskjali sem er að finna á vefnum
undir nafninu „Ábendingar frá gestum
Þjóðfundar“ . Þar eru 2 .758 stuttar og
krúttlegar ábendingar um hvað betur megi
fara, t .d . er Alþingi bent á „ekkert rugl!“
og „farið að vinna, hættið að rífast“ . Jafn
framt eru ábendingar til Alþingis á borð
við „Vinsamlega kynnið ykkur niður
stöður þjóðfundarins vel, þetta eru skila
boð frá þjóðinni“ . Stjórnlagaráð vann
loks frumvarp til stjórnskipunarlaga með
enda lausum óskum um mannréttindi,
heil brigði, virðingu gagnvart náttúrunni
o .þ .h . Frumvarpið er óraunverulegur
kostur, Nirvana goðsögn, og krafa um
gengdar lausan ríkisrekstur . Leiða má
líkur að því að brot á stjórnarskránni
verði daglegt brauð verði frumvarpið að
stjórnarskrá . Hvað þýðir t .d . 7 . gr .: „Allir
hafa meðfæddan rétt til lífs“? Eða 8 . gr .:
„Öllum skal tryggður réttur til að lifa með
reisn . Margbreytileiki mann lífsins skal
virtur í hvívetna .“? 200 blaðsíðna skýrslu
stjórnlagaráðs fylgja reyndar leiðbeiningar .
En mikilvægustu leiðbeininguna vantar:
Hvern ig á að fjármagna óskalistann? Það
vantar kredithliðina á umræðuna (gjöldin
eru debet megin, að sjálfsögðu vinstra
megin) .
80% til Steingríms — 20% til þín
K röfur krúttanna leiða það sjálfkrafa af sér að skattar verði háir . Það nefna
þau hins vegar aldrei enda er ekki hægt
að meta til fjár mannréttindabrot eins og
að veita ekki bestu heilbrigðisþjónustu
sem völ er á um gervalla heimsbyggðina .
Nýlega birti ríkisskattstjóri auglýsingu í
Morgun blað inu, þar tilgreinir hann helstu
skatta ársins . Tökum dæmi um smið sem
á 3 börn, þar af tvö undir 7 ára aldri .
Eiginkona hans (eða eiginmaður, kjósi
kynjafræðingar að stilla dæminu þannig
upp) er heima að sinna þeim og með lágar
tekjur í samræmi við það . Vaxtabætur og
barnabætur fær hann (eða hún, jú eða hann
ef um er ræða tvo feður) frá hinu opinbera .
2 . mynd (sjá að ofan) sýnir jaðarskatta
smiðsins og er miðað við að hann skrifi
reikning með virðisaukaskatti . Ef hann
er t .d . með 250 þúsund á mánuði og
honum hefur tekist að betla verkefni fyrir
10 þúsund með vsk . þá greiðir hann 80%