Þjóðmál - 01.03.2012, Síða 37
36 Þjóðmál VOR 2012
og eru aftur farnir að ganga . Ekki er ólíklegt
að við munum ranka við okkur eftir nokkur
ár og sjá að eigendur bankanna verða margir
hinir sömu og fyrir hrun . Þá geta þeir aftur
farið að semja við sjálfa sig .2
Því miður er flestöll umfjöllun um íslenskt
viðskiptalíf í samtímanum þessu marki
brennd . Einblínt er á fall bankanna haustið
2008, en sögulegar skírskotanir og skýringar
úr fyrri fortíð eru vandfundnar í opinberri
umræðu . Höfundur forystugreinarinnar gat
þess að auðmanninum hefði verið „bjargað
aftur“, en færa mætti rök fyrir því að verið
væri að bjarga viðkomandi „enn og aftur“ .
Ríkisbankinn Landsbanki Íslands kom Ólafi
til bjargar 1999 þegar rekstur Samskipa
var orðinn afar þungur svo dæmi sé tekið .
Þekking á sögu viðskiptalífsins er því miður
af skornum skammti og til að skilja feril
Ólafs Ólafssonar þarf að líta lengra aftur .
Stórkostleg lán frá Kaupþingi
Félög Ólafs Ólafssonar voru meðal stærstu hluthafa Kaupþings . Kaupþing
lánaði félögum tengdum Ólafi Ólafssyni
73 milljarða króna frá í janúar 2007 og þar
til bankinn féll tæpum tveimur árum síðar .
Skuldir félaga Ólafs við Kaupþing námu
96,2 milljörðum króna þegar bankinn
hrundi . Sú upphæð jafngilti um það bil
átján prósentum af eigin fé bankans . En
þetta eru einungis skuldir félaga Ólafs í
Kaupþingi . Skuldbindingar þeirra gagnvart
Glitni námu fimmtíu milljörðum króna .
Frá miðju ári 2006 voru félög Ólafs,
Kjalar og Egla, umfangsmestu lántakendur
Kaupþings, líkt og fram kemur í skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis . Hlutur Eglu í
Kaupþingi var færður í dótturfélagið Kjalar
Invest síðla árs 2006, en Kjalar var skráður
í Hollandi . Bandaríski bankinn Citibank
2 „Auðmanni bjargað aftur“ . DV, 12 . október 2011 .
endurfjármagnaði hlutafjáreignina sumarið
2007 og var hluturinn eftir það færður
í annað dótturfélag Eglu sem einnig var
skráð í Hollandi . Við fall bankans átti Egla
um tíu prósenta hlut og var næststærsti
hluthafinn .
Lán til félaga Ólafs Ólafssonar jukust
veru lega síðustu misserin sem bankinn starf
aði, en það var meðal annars tengt veðkalli
Citi banks á Eglu, sem krafðist aukinna
trygg inga eftir mikla lækkun á gengi krón
unnar og lækkunar á gengi hlutabréfa í
Kaupþingi . Bankinn kom Ólafi til bjargar
og lán aði honum 120 milljónir evra, eða
jafn virði rúmra ellefu milljarða króna til að
mæta veðkallinu . Glitnir kom Ólafi einnig
til hjálpar og í sumarbyrjun 2008 höfðu
bank arnir tveir lánað félögum Ólafs fjögur
hundruð milljónir evra, eða tæpa fjörutíu
milljarða króna til að forða því að Citibank
leysti til sín hlutabréf Ólafs í Kaupþingi, en
þá hefði Citibank orðið meðal allra stærstu
hlut hafa bankans .
Gríðarmiklum lánveitingum til varnar
hluta bréfaeign Ólafs var þó hvergi nærri
lokið því hálfum mánuði fyrir fall bankans
fengu tvö félög Ólafs 130 milljónir evra eða
17,7 milljarða króna að þávirði til kaupa á
skulda tryggingum á Kaupþing . Viku síðar
krafði Deutsche Bank félög Ólafs um auknar
trygg ingar og að því tilefni lánaði Kaupþing
hon um jafnvirði sautján milljarða íslenskra
króna .
Lánasamningar þeir sem Kaupþing
gerði við Ólaf og fleiri vildarviðskiptavini
bankans síðustu daga sem bankinn starfaði
voru þess eðlis að þeir gátu ekki tapað á
þeim . Umræddar lánveitingar voru ekki
samþykktar í lánanefnd bankans áður en
þær voru afgreiddar .3 Engu að síður var
áhættan af umræddum lánveitingum svo
mikil að rétt hefði verið að afla samþykkis
3 „Milljarðalán án áhættu“ . Morgunblaðið. Viðskipti,
20 . janúar 2010 .