Þjóðmál - 01.03.2012, Page 40
Þjóðmál VOR 2012 39
fjármagn inn í landið, en það var engu að
síður talin ein höfuðforsenda þess að hann
var valinn fram yfir fjárfestingarfélagið
Kaldbak sem einnig hugðist kaupa hlut
ríkisins í bankanum . Íslandsbanki var strax
í upphafi útilokaður frá kaupum þar sem
talið var að áhugi hans samræmdist ekki
markmiðum um samkeppni . Þrátt fyrir það
var sameining Búnaðarbanka og Kaupþings
heimiluð aðeins fáeinum mánuðum eftir
einkavæðingu, en fulltrúar Shópsins og
Kaupþings höfðu samið um sameiningu
löngu fyrir einkavæðingu Búnaðarbankans .
Þeir sameiningarfundir voru haldnir á
skrifstofum eignarhaldsfélagsins Sunds í
litla turni Kringlunnar . Þar lögðu Ólafur
Ólafsson og Sigurður Einarsson, forstjóri
Kaupþings, grunn að langvinnu samstarfi
sínu .12 Sameinaður banki Kaupþings og
Búnaðarbankans fjármagnaði fjöldamörg
verkefni félaga Ólafs á næstu árum . Þeir
Ólafur og Sigurður eru nú ákærðir í
12 Ónafngreindur heimildarmaður .
sameiningu fyrir ýmis brot í tengslum við
meint kaup AlThani á hlut í Kaupþingi .13
Einkavæðing Búnaðarbankans markaði
upphafið að uppskiptingu íslensks fjármálalífs
í þrjár meginblokkir . Í raun var tekin pólitísk
ákvörðun um að búa til tvær fylkingar í
viðskiptalífinu utan um bankana tvo og
skyldu þær í upphafi vera sem jafnastar að
stærð . Enn ein fylking hlaut óhjákvæmilega
að verða til um þriðja bankann í fyllingu
tímans líkt og raunin varð á .
Fjárhagsleg endurskipu
lagning Samskipa
Falið eignarhald undir merkjum Hauck & Aufhäuser og AlThani minnir á aðkomu
Bruno Bischoff að Samskipum árið 1994 .
Ólafur Ólafsson varð forstjóri Samskipa árið
13 Ákæra sérstaks saksóknara samkvæmt lögum
nr . 135/2008 á hendur Hreiðari Má Sigurðssyni,
Sigurði Einarssyni, Ólafi Ólafssyni og Magnúsi
Guðmundssyni, dags . 16 . febrúar 2012 .