Þjóðmál - 01.03.2012, Blaðsíða 41
40 Þjóðmál VOR 2012
1993 og stærsta verkefni hans í byrjun var að
finna kaupanda að kjölfestuhlut í Samskip
um . Ólafur leitaði víða fyrir sér erlendis en
komst loks í samband við eigendur skipafé
lagsins Bruno Bischoff í þýska sambands
ríkinu Bremen og skyldu þeir eignast 34%
hlut í Samskipum í gegnum eignarhalds
félagið NAT, North Atlantic Transport .
Bruno Bischoff var gamalt fjölskyldufyrirtæki
í eigu Eriku Bischoff, ekkju Brunos og barna
þeirra, Nicolas og Brigit .
Stjórnendur Samskipa komust í kynni
við eigendur Bischoff Gruppe vegna þeirrar
óskar yfirvalda í þýska sambandsríkinu
Bremen að félagið sigldi til Bremerhaven
í stað Hamborgar . Landsbankinn átti um
þær mundir 85 af hundraði hlutafjár í Sam
skipum en fyrirhuguð var hlutafjár aukn ing .
Árið 1994 lagði Bischoff Gruppe fram tvær
milljónir marka, eða sem samsvaraði um
áttatíu milljónum íslenskra króna, til kaupa
á bréfum í Samskipum . Bruno Bischoff
var með ríkisábyrgð frá bremenska ríkinu
til kaupanna en skilyrði hennar var að
starfsemi Samskipa í Þýskalandi yrði flutt
frá Hamborg til Bremen og Bremerhaven,
þrátt fyrir að þeir flutningar teldust ekki
sérstaklega hagstæðir fyrir Samskip . Hér réð
því þýsk innanlandspólitík för . Bremen er
minnsta ríkið í þýska ríkjasambandinu með
um 700 þúsund íbúa . Ríkið er því smáríki
„og þar ráða smáklíkur för,“ eins og einn
heimildarmanna orðaði það . Landsbankinn
lánaði Bruno Bischoff til kaupanna .14
Bruno Bischoff var kynnt fyrir íslenskum
fjárfestum sem traust, þýskt aldargamalt
fyrirtæki og úr varð að nokkur íslensk
stórfyrirtæki og fjárfestingarsjóðir komu
með nýtt hlutafé inn í Samskip . Lands
bankinn fjármagnaði jafnframt að hluta
kaup í slensku félaganna, en þar var um að
ræða Hof, eignarhaldsfélag Hagkaups fjöl
skyldunnar, Samherja, Fóðurblönduna,
14 Ónafngreindur heimildarmaður .
Vinnslu stöðina í Vestmannaeyjum, Vá
trygg ingafélag Íslands (VÍS), Olíufélagið
hf . og Sam vinnu lífeyrissjóðinn .15 Ný stjórn
settist að völdum, en þar áttu sæti Gunnar
Jóhanns son í Fóðurblöndunni, formaður,
Þorsteinn Már Baldvinsson í Samherja, Geir
Magnússon, forstjóri Olíufélagsins, Axel
Gíslason, forstjóri VÍS, og Jón Pálmason,
fulltrúi Hagkaupsfjölskyldunnar . Kaup
þessi voru á margan hátt söguleg, því hér
tóku höndum saman fyrirtæki sem áður
höfðu tengst Sambandinu annars vegar og
hins vegar fyrirtæki sem höfðu verið um
árabil í framvarðasveit einkaframtaksins .
Blaðamaður lýsti þessu svo á sínum tíma:
Mikil ánægja ríkir innan hluthafahópsins með
þátttöku þýska skipafélagsins Bruno Bischoff í
Samskipum og gera menn sér miklar vonir um
að samstarf fyrirtækjanna tveggja og dóttur
fyrirtækis Bruno Bischoff, Team Line, muni
skila báðum aðilum aukinni hagkvæmni og
auknum tekjum .16
Rúmi ári síðar, eða í nóvember 1995, sagði
frá því í fréttum að Hof hygðist selja bréf sín
í Samskipum til annarra hluthafa . Í tengslum
við sölu hlutabréfanna sagði Ólafur Ólafsson
að Hof hefði ákveðið að selja hlutabréfin
„vegna þess að það hafi aldrei ætlað sér að
vera í flutningastarfsemi til langframa“ .17 Hér
hallaði Ólafur réttu máli . Jón Pálmason,
sonur Pálma í Hagkaupum, Gunnar
Jóhannsson og Þorsteinn Már Baldvinsson
seldu hluti fyrirtækja sinna í Samskipum
árið 1995 vegna þess að Ólafur hafði leynt þá
því að hann sjálfur var eigandi að helmingi
hlutafjár í NAT, North Atlantic Transport .18
15 „Ný fyrirtæki inn í Samskip“ . Morgunblaðið, 10 .
júlí 1994 .
16 „Átta íslenskir aðilar og einn erlendur lögðu félagi
nu til 510 milljónir króna“ . Morgunblaðið, 9 . júlí
1994 .
17 „Hlutabréf Hofs í Samskipum til sölu“ . Morgun
blaðið, 16 . nóvember 1995 .
18 Ónafngreindir heimildarmenn .