Þjóðmál - 01.03.2012, Qupperneq 46
Þjóðmál VOR 2012 45
mannvinur líkt og Albert Schweitzer,
staðfastur aðgerðasinni og sannur hug
sjónamaður líkt og Henry David Thoreau .
Margbreytileikinn kemur þó ekki í veg
fyrir að Paul sé, eins og sagt var um skáldið
Goethe, heill og óskiptur — greinar trésins
eru fastar við stofninn og stofninn við
ræturnar; hinir ólíku angar mynda lífræna
heild þrátt fyrir að teygja sig í allar áttir . En
hvernig er fræið sem varð að trénu? Hver er
kjarni Rons Paul? Segja má að kjarni hans
sé náungakærleikur og frelsi, sem birtist í
hugmynd um samfélag byggt á sjálfviljugri
þátttöku (e . voluntary society), samfélag
ofbeldisleysis í víðum skilningi, þar sem
fullveðja einstaklingar eru ekki þvingaðir
til athafna á nokkurn hátt, heldur geta
verið „ljóðskáld eigin lífs“, svo lengi sem
þeir skaða ekki aðra . Með öðrum orðum:
siðfræði sem byggist á gullnu reglu Krists og
stjórnspeki sem grundvallast á frelsisreglu
Mills .
Ron Paul hóf hugmyndabaráttu sína fyrir
hartnær fjórum áratugum og hann hefur
verið iðinn ræðumaður og afkastamikill
rithöfundur . Helstu áhrifavaldar hans eru
fræðimenn af „Austurríska skólanum“
í hagfræði, einkum Ludwig von Mises,
Friedrich von Hayek, Leonard E .
Read, Murray N . Rothbard og Hans F .
Sennholz, en að auki hefur skáldkonan og
heimspekingurinn Ayn Rand veitt honum
mikinn innblástur . Nýjustu bækur Pauls
eru Liberty Defined: 50 Essential Issues that
Affect our Freedom (2012), End the Fed
(2010), The Revolution: A Manifesto (2008),
Ron Paul Speaks (2008), Pillars of Prosperity:
Free Markets, Honest Money, Private Property
(2008) og A Foreign Policy of Freedom: Peace,
Commerce, and Honest Friendship (2007) .
Margar af ræðum Pauls eru aðgengilegar
á veraldarvefnum og myndbönd með hon
um þar hafa notið meiri vinsælda en mynd
bönd nokkurs annars stjórnmálamanns .
Netmyndböndin hafa komið boðskap hans
á framfæri með áhrifaríkum hætti og einkum
í gegnum þau hefur hann unnið hug og
hjörtu fólks, enda hefur málstaðurinn fallið
í frjóan jarðveg, sér í lagi meðal ungs fólks .
Ýmis grasrótarsamtök og stuðningsfélög
hafa sprottið upp eins og gorkúlur — og
myndað öfluga hreyfingu fyrir breyttum
Sístækkandi grasrótar hreyf ing
inn an Repúblikana flokksins er
kennd við eldhugann Ron Paul .
Þrátt fyrir háan aldur lætur Paul
engan bilbug á sér finna . Meðal
helstu baráttumála hans er að
auka frelsi einstaklinga, minnka
miðstýringu, tryggja frið helgi
eignarréttar og koma skikki á
inn flytj endamál . En þrátt fyrir
að vera rót tækur kapítal isti berst
hann manna harðast gegn því
sem hann álítur vera spillta ríkis
studda fjármálaelítu, enda sam
ræmi þar á milli, og þrátt fyrir
að vera eindreginn friðar sinni
er hann ekki andvígur öflugum
landvörnum .