Þjóðmál - 01.03.2012, Side 49
48 Þjóðmál VOR 2012
arins sé hornsteinn hins frjálsa samfélags,
að án slíkrar verndar sé öllu frelsi teflt í
voða, viðskiptafrelsi jafnt sem persónulegu
frelsi . Mergurinn í róttækri frjálshyggju
er þannig róttækur kapítalismi; litið er á
séreignarréttinn og valdheimildir tengdar
honum sem undirstöðu einstaklingsfrelsis
og skynsamlegrar valddreifingar .
Nú kynnu einhverjir að halda að slík stefna félli í kramið hjá forríku fólki,
stórfyrirtækjum og þrýstihópum þeirra . Sú
er hins vegar alls ekki raunin . Sannleikur
inn er sá að „stórkapítalið“ hefur jafnan
ekki stutt hreinan kapítalisma, enda er vald
þess iðulega falið í pólitískum tengslum
eða lagasetningu sem tryggir fákeppni með
markaðshindrunum eða með öðrum hætti .
Enginn er harðari andstæðingur Wall Street
fjármálaklíkunnar og þrýstihópa hennar
í Washington en Ron Paul . Hann hefur
beint athygli almennings að uppgangi hálf
fasískrar fyrirtækjahyggju (e . corporatism)
í Bandaríkjunum, en slík hugmyndafræði
er andstæða þess róttæka kapítalisma sem
Paul boðar . Í forvalinu fyrir fjórum árum
var hann eini frambjóðandinn sem þáði
enga styrki frá stórum fjármálafyrirtækjum
eða þrýstihópum í Washington . Hið sama
er uppi á teningnum í forvalinu sem fer
fram um þessar mundir . Hins vegar skortir
framboð hans ekki fé, þar sem framlög til
hans frá almenningi eru meiri en til nokkurs
annars frambjóðanda .
Ekki aðeins „stórkapítalið“ heldur „kerfið“
(e . establishment) allt berst gegn Ron Paul
hreyfingunni, þar á meðal flestir stóru
fjölmiðlarnir . Sýnt hefur verið fram á skefja
lausa hlutdrægni stórra sjónvarpsstöðva
í Bandaríkjunum í umfjöllun um fram
bjóðendur, Paul í óhag . Stundum fær hann
litla sem enga athygli þrátt fyrir gott gengi .
Mótstaða kerfisins kemur þó ekki á óvart,
enda tilheyrir Paul hinu andkerfislega
hægri . Ekki aðeins róttæk frjálshyggja
gerir hann að andkerfislegum hægrimanni,
heldur er tvennt annað sem kemur til — og
gerir stefnu hans að byltingarkenndri hægri
stefnu .
Í fyrsta lagi tekur Ron Paul eindregna afstöðu gegn skipulagi peningamála .
Hann vill leggja niður seðlabankakerfi
Bandaríkjanna (e . Federal Reserve System)
og mælir með að gjaldmiðillinn verði
aftur settur á gullfót eða einhvers konar
málmfót, þannig að peningaseðlar og mynt
verði ávísun á tiltekið magn af gulli eða
viðkomandi málmi eða málmblöndu . Fyrsta
skrefið í þá átt, og ef til vill eina nauðsynlega
skrefið, fælist í því að gera slíkan gjaldmiðil
að löglegum og raunhæfum valmöguleika .
Bandaríski seðlabankinn var stofnaður
fyrir tilstuðlan stórra bandarískra fjármála
fyrirtækja árið 1913 . Skipulag bankans
þykir loðið; að hluta til er bankinn opinber
stofnun en að hluta til einkastofnun —
og hann lýtur ekki sama aðhaldi og sömu
endurskoðun og opinberar stofnanir . Ron
Paul er tíðrætt um valdheimildir seðla
bankans og afleiðingar gjörða hans . Þegar
bankinn eykur peningamagn í umferð rýrir
hann gildi gjaldmiðilsins; verðlag hækkar
smám saman og kaupmáttur minnkar nema
að laun hækki að sama skapi . Líkt og margir
hagfræðingar gera, þá bendir Paul á þann
falda skatt sem fólginn er í framangreindu
og þá millifærslu fjármuna sem fylgir í
kjölfarið . Þeir sem fá nýju peningana fyrst,
það er að segja þá peninga sem bætast við
vegna aðgerða seðlabankans, geta grætt með
því að nota þá áður en sú verðbólga sem
af hlýst mælist, en aðrir upplifa hins vegar
kaupmáttarrýrnun, hækkandi verðlag á
meðan laun hækka minna eða standa í stað .
Um er að ræða umfangsmikla millifærslu
fjármuna frá lágstéttar og millistéttarfólki
til ríkra og voldugra einstaklinga og