Þjóðmál - 01.03.2012, Síða 55
54 Þjóðmál VOR 2012
Bjarni Jónsson
Orkunýtingarstefna
Það er kunnara en frá þurfi að segja, að orkuvinnsla og orkunýting eru undir
stöður nútíma velmegunarþjóðfélags . Hag
sæld og mannfjölgun á Vesturlöndum tóku
stakkaskiptum með iðnvæðingunni um
miðja 18 . öld, en undirstaða hennar var
gufuvél Watts, og við upphaf olíuvinnslu,
beizl un raforkunnar og smíði fyrstu raf
tækjanna, hreyfla, ljósgjafa ofl ., á síðari
hluta 19 . aldar . Síðan hefur mikið vatn
runnið til sjávar, og nú er svo komið, að
þessi sama orkuvinnsla og orkunýting
stendur mannkyninu fyrir þrifum .
Ástæðan er sú, að enn eru notaðar ósjálf
bærar og mengandi aðferðir við vinnslu
raf magns . Megnið af raforkuvinnslu heims
ins er með kolum og nýtni orkunnar er
ábótavant, t . d . í bensínog dísilhreyflum,
og í margs konar rafbúnaði . Kyotobókunin
reyndist gagnslítil, nema til að hamla
aukningu losunar á Vesturlöndum, því að
í þróunarríkjunum hefur orðið hömlulaus
aukning á losun gróðurhúsalofttegunda
og annarrar mengunar út í andrúmsloftið
með þeim afleiðingum, að upp úr miðri
21 . öldinni mun styrkur koltvíildis í and
rúmslofti ná gildi, sem talið er munu hækka
meðalhitastig á jörðunni um a . m . k . 2°C,
en eftir það telja sumir vísindamenn, að
hitastigshækkun andrúmslofts og sjávar
muni verða stjórnlaus, og þá verður úti um
lífið á jörðunni í sinni núverandi mynd .
Hér er um svo alvarlegt mál að ræða, að ná
verður alþjóðlegu samkomulagi um áhrifa
ríkar aðgerðir hið fyrsta til að ná tökum á
óheillaþróun .
Orkuumgjörð Íslands:
Auðlindir Íslendinga eru aðallega fólgnar í fiskveiðilögsögunni, sem er sjöföld
að flatarmáli á við landið, land inu sjálfu
með gnótt drykkjarvatns og miklu og lítt
menguðu landrými á íbúa, endur nýjan
legum orkulindum og harð dug legum og
sæmilega vel menntuðum íbúum .
Reiknað er með, að frumorkunotkun
lands manna hafi árið 2010 numið 185
Petajoule (PJ)(1), og eru 82% eða 152 PJ af
henni vistvæn, innlend orka .
Núverandi verðmæti þessarar orku má
áætla 330 milljarða kr . (m . v . gengi 120 ISK/
USD)(2), ef verðmæti olíujafngilda(3) eru
lögð til grundvallar . Þetta er svipuð upphæð
og útflutningsverðmæti iðnvarnings frá
landinu og jafngildir um 20% af VLF(4) .
Hér skal fullyrt, að þessi verðmæti skipta
sköpum um hagi landsmanna, og að orku
auðlindirnar, vatnsföllin og jarðhitinn eru
stökkbretti til enn meiri framfarasóknar og
lífskjarabata .
Um 18% frumorkunnar eða 33 PJ koma
frá innfluttum orkugjöfum, 16% frá bensíni
og olíu, sem námu 623 kt(5) árið 2010 að
andvirði 61 mia . kr .(6), og 2% frá kolum til
iðnaðar .