Þjóðmál - 01.03.2012, Qupperneq 58

Þjóðmál - 01.03.2012, Qupperneq 58
 Þjóðmál VOR 2012 57 Aðrar orkulindir: Ef mark er takandi á Rammaáætlun, er virkjanleg og sjálfbær orka í landinu úr hinum hefðbundnu orkulindum mun minni en áður var talið . Munar þar 100% m . v . hámarksgildið samkvæmt Rammaáætlun, sem er 22 579 GWh/a . Hér hefur þó ekki verið minnzt á ýmsa orkukosti, sem munu verða tiltækir . Þar má nefna vindorku, bylgjuorku hafsins, sjávarföll, gasvinnslu úr sorpi, sorpbrennslu til raforkuvinnslu og hitaveitu og ræktun repju til olíuframleiðslu fyrir dísilvélar . Reynsla er af raforkuvinnslu með vindorku frá um 1990 . Árið 2010 nam uppsett afl vind orkuvera í heiminum 150 GW (150 000 MW), sem er 60­falt uppsett afl í öllum virkj­ unum Íslands . Ekki er ólíklegt, að vindafl á Íslandi geti náð 1% af þessu eða 1500 MW og sparað mikið vatn í miðlunarlónum lands ins og/eða treint jarðvarmaforðann . Um hverfi s­ lega og tæknilega er þó að ýmsu að hyggja, t . d . fugladauða, hávaða og neikvæð um sjón­ rænum áhrifum . Vindmyllurnar fara stækk­ andi og nýtni þeirra hefur batnað . Ef meðal­ stærð íslenzkra vindmylla verður 10 MW, sem er reyndar tvöföldun algengrar stærðar erlendis nú, þyrfti aðeins 150 vindmyllur til að ná téðu gildi, sem er ekki yfirþyrmandi fjöldi fyrir Ísland . Tilraunir standa nú yfir á vegum ESB úti fyrir ströndum Skotlands og Frakklands með sjávarfallavirkjanir og bylgjuvirkjanir . Vandinn er að leiða orkuna í land og að viðhalda búnaðinum á hafi úti, þar sem gríðarleg vélræn og efnafræðileg áraun (tæring) er á búnaðinn . Þessar virkjanir kunna að verða hamlandi fyrir siglingar og munu tæplega hafa mikil áhrif á orkubúskap Íslendinga, þó e . t . v . góð búbót sums staðar . Sólarorka verður væntanlega aldrei fýsilegur valkostur, nema fyrir sumarhúsaeigendur . Stefnumörkun Á skal að ósi stemma . Það á ekki sízt við um orkumálin . Það er og verður orkuskortur í heiminum þar til tæknibylt­ ing verður við raforkuvinnslu, t . d . með sam run atækni, þ . e . við samruna tveggja vetn is atóma í eitt helíumatóm . Samkvæmt Ramma áætlun og viðbót frá óhefðbundnum orku verum má gera ráð fyrir, að um 25 000 GWh/a af raforku geti með sjálfbærum hætti verið til ráðstöfunar fyrir notkun utan heimilis notkunar, smáiðnaðar, landbúnaðar, fisk vinnslu, dælingar á heitu og köldu vatni, götu lýsingar og aðra lítt orkukræfa starfsemi. Sýnt hefur verið fram á í þessari grein, með samanburði á þjóðhagslegri hag­ kvæmni, að stórfelld orkusala um sæstreng virðist nú vera hreint óráð . Sú röksemd, að hagkvæmt sé að fá raforku um sæstreng til Íslands í þurrkaárum heldur ekki vatni . Miklu þjóðhagslega hagkvæmara er að virkja nokkurt varaafl, t . d . 300 MW af jarðvarma, og selja þá orku sem afgangsorku á lágu verði í 27 ár af 30, þegar tölfræðilega er ekki orkuskortur, til starfsemi, sem ekki þarf nauðsynlega forgangsorku . Sá markaður er nú þegar fyrir hendi . Vel kemur þó til greina í fyllingu tímans, e . t . v . 2015–2020, að leggja um 100 MW sæstreng til Færeyja og losa Færeyinga út úr orkuskorti sínum . Til ráðstöfunar af sjálfbærum orkulindum verða um 12 000 GWh/a raforku, sem hik­ laust á að nýta fyrir fjölbreytilega starfsemi, sem krefst mikillar raforku . Þar má nefna klór, magnesíum, kísil, járnblendi og ál . Þetta þýðir auðvitað engan veginn, að annars konar starfsemi („einhverju öðru“) verði ýtt til hliðar, eins og nauðhyggjumenn hafa verið iðnir við að halda að fólki, því að jarðvarminn mun standa undir slíkri starfsemi . Til að gefa hugmynd um framleiðslumagn ið
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97

x

Þjóðmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.