Þjóðmál - 01.03.2012, Qupperneq 61
60 Þjóðmál VOR 2012
Það sem helst háði þeim sem vildu
berjast fyrir frjálsum markaði og fullveldi
þjóðarinnar, þegar kom fram á 20 . öld, var
sundurlyndi þeirra, margir flokkar voru
stofnaðir en illa gekk að ná samstöðu . Þegar
Frjálslyndi flokkurinn og Íhalds flokkurinn
sameinuðust svo í Sjálf stæðis flokkn um,
náðist loksins samstaða um þessi mikil
vægustu hagsmunamál þjóð a r innar .
Helsta vegsemd Sjálfstæðisflokksins er sú, að hann var stofnaður sem flokk
ur allra stétta, en hinir flokkarnir voru ein
göngu hags munabandalög ákveð inna stétta,
Alþýðu flokkur og sósíalistar voru hags
muna bandalög verkalýðsins og Fram sókn ar
flokkurinn var hagsmuna banda lag bænda .
Hagsmunabandalög eru aldrei hæf til að
stjórna þjóð sem telur margar stéttir, þess
vegna hafa hinir flokkarnir aldrei getað
stjórnað án aðkomu Sjálfstæðisflokksins .
En vandi Sjálfstæðisflokksins var sá, að
hann þurfti alltaf að taka tillit til hinna
flokkanna .
Erfiðlega gekk þegar Ólafur Thors mynd
aði fyrstu ríkisstjórn sína með Framsóknar
mönnum og krötum . Fljótlega kom upp
ágreiningur um, hvernig taka skyldi á
verðbólguvandanum, svo sauð endanlega
upp úr, þegar sjálfstæðismenn vildu breytta
kjördæmaskipan, en sú kjördæmaskipan
sem þá ríkti gerði framsóknarmönnum
kleift að fá fleiri þingmenn en þeir áttu
skilið að fá, miðað við kjörfylgi .
Vandi Sjálfstæðisflokksins var mikill eftir
að fyrsta stjórnin, sem leidd var af Sjálf
stæðisflokknum, neyddist til að hverfa
frá völdum og við tók utanþingsstjórn
sem var eitur í beinum þingræðissinnans
Ólafs Thors . Honum þótt það afar sárt, að
utanþingsstjórn skyldi sitja við völd þegar
draumur hans um lýðveldið Ísland rættist
loks, árið 1944 .
Segja má að nýsköpunarstjórnin, sem
stofnuð var í upphafi lýðveldistímans,
hafi verið ansi mikil málamiðlun af hálfu
Sjálfstæðisflokksins, en hún var eini
kosturinn í þeirri stöðu sem uppi var
þá, framsóknarmenn voru öskuillir út í
sjálfstæðismenn og þeir gátu ekki hugsað
sér að starfa í ríkisstjórn sem leidd væri af
Sjálf stæðisflokknum . Færa má gild rök fyrir
því, að sú ríkisstjórn hafi að mörgu leyti
verið vinstri stjórn, en erfitt var fyrir Sjálf
stæðis flokkinn að vera eini hægri flokkur
inn í þriggja flokka stjórn .
Vegsemd Sjálfstæðisflokksins varð svo
mikil, þegar viðreisnarstjórnin var mynd uð,
þá voru höftin afnumin og á Íslandi hófst
langt og stöðugt hagsældarskeið . Það kom
reyndar talsvert bakslag þegar síldin hvarf .
Bjarni Benediktsson lést með hrylli legum
hætti, þannig að sorgin lá eins og mara á
sjálfstæðis mönnum og erfitt var að fylla það
stóra skarð, sem hinn mikli leiðtogi skildi
eftir sig .
Vinstri flokkarnir stökkva alltaf til, þegar Sjálfstæðisflokkurinn veikist, og þá
tekst þeim að telja þjóðinni trú um að þeir
geti stjórnað . Þeir vita sem er, að sjálfstæðis
menn eru friðsamir og svara oftast ekki fyrir
sig, þannig að vinstri flokkarnir eiga gjarna
umræðuna á hinu pólitíska sviði .
Sjálfstæðisflokkurinn var lamaður að
mestu leyti, frá því að viðreisnarstjórnin
hvarf frá völdum árið 1971 og þangað
til Davíð Oddsson tók við formennsku
tuttugu árum síðar og leiddi þjóðina inn í
nýtt hagvaxtarskeið sem ríkti árum saman,
vegna þess að sjálfstæðisstefnan fékk að
njóta sín .
Reyndar skal það viðurkennt, að þjónk un
við samstarfsflokkana hafi verið of mikil og
ríkisútgjöld jukust upp úr öllu valdi .
Svo kom bankahrunið og margir sjálf
stæði smenn skömmuðust sín fyrir að vera
til . Þá stukku vinstri flokkarnir fram og