Þjóðmál - 01.03.2012, Side 63

Þjóðmál - 01.03.2012, Side 63
62 Þjóðmál VOR 2012 merkja ekki það sama og að ganga í banda­ lag við þær . Hagsmunahópar eiga að takast á, stjórnmálamenn eiga að hefja hug sinn upp yfir deilur og dægurþras . Pólitík er mikil jafnvægislist sem lærist hægt, en lærist samt, stundum þarf að grípa inn í, en oftast er best að láta borgarana um að leysa deilur sínar, þá verða mestar líkur á að sátt skapist að lokum . Vegsemd Sjálfstæðisflokksins er mikil, vandi hans er líka stór . Með því að leysa vandann smátt og smátt aukum við veg­ semdina um leið . Vert er að enda hér á litlu broti úr ljóði eftir sjálfs tæðis manninn Tómas Guðmundsson, en það ættu allir sjálfstæðismenn að kunna og kjörnum fulltrúum Sjálfstæðisflokksins ber skylda til að kunna það og skilja hvert orð sem þar stendur; Og stór er hlutur þinn ef þjóð þín byggir, á þér sitt traust og krefst af þér, þess fórnarstarfs sem frjálsum manni tryggir, það föðurland sem honum ber . Og enginn fær til æðri tignar hafist, né öðlast dýpri rétt en þann að geta vænst af sjálfum sér og krafist, að saga landsins blessi hann . Nú hefur Jóhann Hauksson loksins verið ráðinn blaðafulltrúi for sætis ráðuneytisins . Hann á eflaust að skrifa sví virð ingar um sjálfstæðismenn, eins og hann hefur verið iðinn við síðustu misserin . Áður var hann sem kunnugt er málaliði Baugs: Samkvæmt upplýsingum Arnþrúðar Karlsdóttur á Útvarpi Sögu borguðu Baugs feðgar beint fyrir útvarpsþátt sem hann hafði þar umsjón með . En vinstri stjórnin á sér fleiri blaðafull trúa . Tveir þeirra vinna einmitt á Fréttablað inu hjá Baugsfeðgum, þeir Þórður Snær Júlíusson og Kolbeinn Óttarsson Proppé . Þórður Snær tekur að sér að skýra og afsaka skattahækkanir stjórnarinnar (sem Ríkis stjórnarútvarpið er farið að nefna skatta breytingar) . Kolbeinn birtir fréttir í samfellu um að „reiði“ sé í Samfylkingunni með þá flokks menn sem greiddu atkvæði á móti því að ekki mætti ræða Landsdómsmálið gegn Geir á Alþingi og að „reiði“ sé í Vinstri grænum með þá flokksmenn þar sem greiddu atkvæði á sama veg . En er engin reiði í hinum herbúðunum í þessum flokk um? Eru ýmsir í Samfylkingunni og Vinstri grænum ekki reiðir vegna hótana og yfirgangs Jóhönnu Sigurðardóttur? Eru Össur og Ragnheiður Ásta ekki reið, bara fólkið sem var andvígt þeim? Af því skrifar Kolbeinn engar fréttir . Það komst heldur betur upp um Þórð Snæ sem vinir hans kalla „Dodda“ árið 2010 . Þá skrifaði aðstoðarmaður Katrínar Jakobsdóttur, Elías Jón Guðjónsson, í tölvupósti: Tussufínt. Það er spurning hvernig við prjónum þetta. Doddi vill ólmur fá að skúbba einhverju fyrir fundinn og sé ég ákveðið tækifæri í því að láta það eftir honum. Já, nú verður „Doddi“ látinn skúbba áfram, og allt verður það á einn veg: til að koma vinstri stjórninni vel og Sjálfstæðisflokknum illa . Og það verður í boði Baugsfeðga alveg eins og útvarpsþáttur Jóhanns Haukssonar fyrr á tíð . Jóhann Hauksson mun áreiðanlega sjá „tæki­ færi í því að láta eftir honum“ að skúbba . Blogg Skafta Harðarsonar á Eyjunni, eyjan .is, 28 . janúar 2012 . „Doddi“ og fleiri blaðafulltrúar

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.