Þjóðmál - 01.03.2012, Síða 64

Þjóðmál - 01.03.2012, Síða 64
 Þjóðmál VOR 2012 63 Í tveimur nýlegum, íslenskum skáld sög­um er nokkurt efni sótt í sögu tveggja útlendinga, sem settust að á Íslandi á mesta umbrotaskeiði síðustu aldar, annar til ævi­ loka, hinn í nokkur ár . Í Flóttanum eftir Sindra Freysson, sem kom út 2004, greinir meðal annars frá Íslendingi, sem hraðar sér á fund breskra yfirvalda strax eftir hernám Íslands vorið 1940 og varar við þýskum nasista: „Konan mín, sem er gyðingur, rekur kjólasaumastofu í Kirkjuhvoli og þessi maður notar hvert tækifæri til að sýna henni óvild og fjandskap .“1 Maðurinn var bersýnilega Hendrik Ottósson, en konan Henný Goldstein­Ottósson, sem flýði Þýska land skömmu eftir valdatöku Hitlers ásamt móður sinni og ungum syni, giftist Hendrik 1938, rak lengi saumastofu í Kirkju hvoli og bar hér beinin . Í Enn er morg unn eftir Böðvar Guðmundsson, sem kom út 2009, er stuðst við ýmis atriði úr ævi þýska málfræðingsins Brunos Kress, sem dvaldist hér fyrir stríð, kvæntist íslenskri konu og eignaðist með henni dóttur, en var sendur í breskar fangabúðir eftir hernám og sneri síðan aftur til Þýskalands . Örlög þeirra Hennýar Goldstein­Ottósson og Brunos Kress tengjast einkennilega í rannsóknarstofnun SS­sveitanna þýsku, Ahnenerbe, sem hafði sérstakan áhuga á Íslandi, og einnig í óvæntum endurfundum þeirra á Íslandi árið 1958, þegar Kress kom hingað í fyrsta sinn eftir stríð . Hér verður þessi saga rakin stuttlega eftir heimildum, sem flestar eru óbirtar, en óhætt er að segja, að veruleikinn sé þar lygilegri en nokkur skáldskapur . Gyðingakona á flótta Johanna Lippmann fæddist í höfuðborg þýska keisaradæmisins, Berlín, 28 . mars 1905 . Foreldrar hennar, Leo Lippmann og Minna, fædd Glass, voru bæði gyðingar frá austurhluta landsins, sem nú er vesturhluti Póllands . Henný, eins og hún var jafnan kölluð, átti tvo eldri hálfbræður, Harry og Siegbert Meinhardt Rosenthal, syni Minnu frá fyrra hjónabandi . Faðir Hennýar barðist í Norðurálfuófriðnum mikla 1914–1918, en Rússar tóku hann höndum, og hann lést farinn að heilsu sumarið 1919, skömmu Hannes Hólmsteinn Gissurarson Gyðingastjarnan og hakakrossinn Örlög tveggja útlendinga á Íslandi
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.