Þjóðmál - 01.03.2012, Side 65

Þjóðmál - 01.03.2012, Side 65
64 Þjóðmál VOR 2012 eftir að hann var látinn laus . Eldri bróðirinn, Harry, fékk hins vegar járnkrossinn tvisvar fyrir vasklega framgöngu á vígstöðvunum . Henný nam kjólasaum og giftist vorið 1926 manni af trúflokki sínum, Robert Goldstein . Hann var tólf árum eldri en hún, fæddur 1893 . Þau eignuðust soninn Peter Lothar í nóvember 1927, og stuttu síðar héldu þau til Kólumbíu, þar sem bróðir Roberts átti gistihús í Medellín, og störfuðu þar næstu árin . Þau Henný og Robert skildu hins vegar í ársbyrjun 1930 og sneru eftir það bæði aftur til Þýskalands .2 Henný fékk vinnu í tískuhúsi í Berlín og varð forstöðukona þess . Eftir valdatöku nasista í ársbyrjun 1933 ókyrrðust þau bæði í Þýskalandi . Robert, sem var mjög vinstri sinnaður, flýði til Frakklands, en Henný svaraði auglýsingu, sem birtist sumarið 1934 í þýsku blaði um, að kjólameistara vantaði á saumastofunni Gullfossi í Reykjavík . Hún var ráðin og hélt ein síns liðs til Reykjavíkur þá um sumarið . Hún gat sér gott orð, og ári síðar var hún endurráðin til þriggja ára og fékk líka dvalarleyfi þann tíma . Þá sendi hún eftir móður sinni og syni, sem komu til Íslands sumarið 1935 . Leigði þessi litla fjölskylda sér herbergi að Garðastræti 9 .3 Í Reykjavík kynntist Henný Hendrik Ottós syni, sem var ákafur andstæðingur nas­ ismans og reyndist mörgum þýskum flótta­ mönnum af gyðingaættum vel . Best reyndist hann þó Henný . Þegar ráðningarsamningur hennar var á enda sumarið 1938, hugðist hún stofna eigin saumastofu . Þá kærði vinnuveitandi hennar hana fyrir yfirvöldum, þar eð atvinnu­ og dvalarleyfi hennar var að renna út . Var þetta venjulega látið óátalið, ef athygli yfirvalda var ekki vakin sérstaklega á því . Skömmu áður en vísa átti Henný úr landi, greip Hendrik til þess ráðs að kvænast henni, en við það öðlaðist hún íslenskan ríkisborgararétt, svo að hún gat dvalist hér áfram ásamt móður sinni og syni, en ella hefði hún orðið að snúa aftur til Þýskalands, þar sem ofsóknir mögnuðust nú mjög gegn gyðingum . Vinnuveitandi hennar höfðaði samt sem áður mál gegn henni fyrir samningsrof, og dæmdi Hæsti­ réttur honum nokkrar bætur úr hendi hennar .4 Næstu árin rak Henný saumastofu í Kirkjuhvoli við Kirkjutorg nálægt dóm­ kirkjunni . Tókust góðar ástir með þeim Hendrik, og gekk hann syni hennar í föður stað . Haustið 1938 komst einnig eldri bróðir Hennýar, Harry Rosenthal, til Íslands . Í Þýskalandi hafði hann verið einn af forstjórum skófyrirtækisins mikla, Salamanders, og setið í íþróttaráði Berlínar, enda hafði hann iðkað knattspyrnu á yngri árum og verið dómari á Olympíuleikunum í Amsterdam 1928 . Hann skildi allar eigur sínar eftir í Þýskalandi, þar á meðal íbúð, bíl og sumarbústað, nema hvað hann tók með sér hingað gullúr og Leica­myndavél, sem hann seldi í Reykjavík og keypti fyrir andvirðið lítinn reit í jaðri bæjarins, þar sem hann ræktaði grænmeti og seldi bæjarbúum . Unnusta hans, Hildegard Heller, kom til landsins sumarið 1939, og þau gengu í hjónaband og fluttust til Akureyrar, þar sem þeim vegnaði vel . Gerðist Harry íslenskur ríkis borgari og kallaðist Höskuldur Mark­ ús son .5 Yngri bróðirinn, Siegbert Meinhardt, var kyrr í Berlín, þar sem hann var skrifstofu­ maður . Til þess var sú ástæða, að hann og kona hans, Erna, höfðu lengi þráð og reynt að eignast barn, en það tókst loks sumarið 1939, skömmu áður en Þjóðverjar réðust inn í Pólland og seinni heimsstyrjöldin hófst . Var hinum nýfædda syni þeirra gefið nafnið Denny . Hendrik og Henný buðust til að taka við sveininum til fósturs, en Siegbert og Erna gátu ekki hugsað sér að senda hann burt .6 Í stríðinu skrifuðust fjölskyldurnar í Berlín og Reykjavík á fyrir milligöngu Rauða krossins . Þá hafði Siegbert misst starf sitt, og

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.