Þjóðmál - 01.03.2012, Qupperneq 68
Þjóðmál VOR 2012 67
Kallaði hann karlana til sín hvern af öðrum
og dældi efni í eistu þeirra, og var það
mjög sársaukafullt . Kvenfangarnir höfðu
hins vegar ekki eftir neinu að bíða . Að
kvöldi 11 . ágúst voru fimmtán kvennanna
reknar inn í afhýsi eitt, látnar afklæða sig
og leiddar inn í lítinn klefa, en síðan skellt
í lás . Eiturgufum var eftir það dælt um
rör inn í klefann . Konurnar brutust um,
börðu á veggi, hristu hurðir og æptu, en
misstu fljótlega meðvitund og dóu . Þær
Mágkona Hennýar GoldsteinOttósson, Erna Rosen
thal, með hvítvoðunginn Denny, son þeirra Sieg
berts, í skemmtigarði í Berlín 11 . nóvember 1939 .
Nasistar myrtu þau mæðgin bæði í helför gyð inga, í
Ausch witz vorið 1943 .
konur, sem voru eftir, voru myrtar á sama
hátt tveimur dögum síðar . Líkunum var
hlaðið á lítinn vörubíl og ekið með þau í
líffærafræðistofnun Strassborgarháskóla .
Siegbert Rosenthal og hinir karlarnir í
fangahópnum frá Auschwitz voru látnir lifa í
nokkra daga í viðbót, á meðan prófessor Hirt
kannaði áhrif efnisins, sem hann hafði dælt í
eistu þeirra . Þeir voru síðan myrtir á sama hátt
og konurnar í litla gasklefanum í Natzweiler
búðunum í tveimur hópum 17 . og 19 .
ágúst 1943 . Þegar líkin af körlunum komu í
líffærafræðistofnun Strass borgar háskóla, skar
einn aðstoðarmaður Hirts annað eistað af
mörgum fanganna, enda taldi prófessorinn
sig þurfa þau til frekari rannsókna á
ófrjósemi . Lík fanganna voru flest geymd í
vínanda, og þannig kom her bandamanna
að þeim í stríðslok . Þegar framkvæmdastjóri
Ahnenerbe, Wolfram Sievers, var dæmdur
til dauða og tekinn af lífi eftir stríð, var eitt
sakarefnið á hendur honum fjöldamorðin í
Natzweilerbúð unum, „beinagrindasafnið“
svonefnda . Prófessor Hirt hafði hins vegar
stytt sér aldur í stríðslok .10
Hér úti á Íslandi spurði stundum móðir
Siegberts, Minna Lippmann, hvað orðið
hefði um son sinn og sonarson . Minna
lést árið 1947 . Henný sagði henni aldrei
það, sem henni var tilkynnt eftir stríð, að
Siegbert og fjölskylda hans hefðu verið flutt
til Auschwitz vorið 1943, en síðan ekkert
af þeim frést .11 Sjálf vissi Henný ekki,
hvernig bróðir hennar hefði verið myrtur
í Natzweilerbúðunum . Fyrrverandi eigin
maður hennar og faðir sonar hennar, Robert
Goldstein, lést einnig í Auschwitz . Eftir að
Þjóðverjar hernámu norðurhluta Frakklands
sumarið 1940 og leyfðu samvinnuþýðum
Frökkum að stjórna suðurhlutanum, gekk
Robert í andspyrnuhreyfinguna frönsku .
Hann var tekinn höndum ásamt fjölda
annarra í mikilli aðgerð dagana 16 .–17 .
júlí 1942, þar sem franska lögreglan veitti