Þjóðmál - 01.03.2012, Side 71

Þjóðmál - 01.03.2012, Side 71
70 Þjóðmál VOR 2012 sem þegar er getið, Ahnenerbe . Heinrich Himmler, foringi svartliða, hafði sérstakan áhuga á Íslandi, eins og dr . Þór Whitehead prófessor hefur rakið í bókinni Íslands ævin­ týri Himmlers (1998), og hafði Schweizer komið nokkrum sinnum til Íslands . Nú undir bjó hann mikinn rannsóknarleið­ angur, sem Ahnenerbe hugðist gera út hingað . Kress kynnti Schweizer þá hug­ mynd sína að skrifa íslenska málfræði á þýsku . Schweizer leist vel á, og tókst honum eftir mikil bréfaskipti að útvega Kress styrk frá Ahnenerbe, 100 mörk á mánuði í eitt ár, til að skrifa þessa bók .23 Hófust greiðsl urnar frá og með 1 . maí 1939 .24 Bruno Kress var nú ekki aðeins orðinn styrk þegi Ahnenerbe, heldur hafði hann losnað við höfuðfjandmann sinn, Timmer­ mann ræðismann, sem kallaður var heim . Vorið 1939 var í stað hans sendur til Íslands höfuðsmaður í SS, dr . Werner Gerlach, sem var í vinfengi við Himmler og átti meðal annars að greiða fyrir fyrirhuguðum rannsóknarleiðangri Ahnenerbe til Íslands . Tók Gerlach til óspilltra mála við að endur reisa flokksdeildina í Reykjavík, sem var sundurtætt eftir átök þeirra Kress og Timmermanns . Var fyrsti fundur deildar­ innar í ræðismannstíð hans haldinn 14 . júní 1939, og sótti Kress hann eins og alla aðra fundi, sem deildin hélt eftir það fram að hernámi Breta .25 Nokkur munur var raunar á því, hversu ákafir flokksmenn þýsku nasistarnir á Íslandi voru . Flóttamaður hér af gyðingaættum, Hans Mann, sagði, að sumir þeirra hefðu verið kurteisir við sig og jafnvel ráðið sér til að að dveljast hér áfram, úr því að hann væri kominn hingað . Kress hefði hins vegar ekki virt sig viðlits . Hann hefði verið ruddalegur og komið fram við gyðinga hér eins og þeir væru réttlausir, svipað og gerðist í Þýskalandi . Hann hefði verið „vondur maður“ .26 Hendrik Ottósson, maður Hennýar Goldstein­Ottósson, var ekki aðeins í góðu sambandi við þýska flóttamenn af gyðinga­ ættum á Íslandi, heldur fylgdist hann líka vel með þýskum nasistum hér . Hann gerði lista yfir hættulegustu nasistana í Reykjavík, og var Kress ofarlega á honum .27 Þegar Bretar hernámu Ísland 10 . maí 1940, hraðaði Hendrik sér til njósnaforingja breska landgönguliðsins og afhenti honum listann . Var það því eitt fyrsta verk breska liðsins að leita Kress uppi til að flytja hann úr landi eins og aðra nasista . Fyrir orð Pálma Hannessonar menntaskólarektors var honum hins vegar leyft að vera á Íslandi, uns prófum lyki þá um vorið, gegn heiti um, að þá gæfi hann sig fram .28 Kress fór því ekki til Bretlands fyrr en í júlí 1940 . Hann var vistaður eins og margir aðrir þýskir stríðsfangar frá Íslandi á gömlum gisti heimilum á Mön á Írlandshafi, og var aðbúnaður prýðilegur .29 Kress bjó í Camp L í Ramsay, þar sem nú stendur Peveril Hotel . Frá Mön skrifaðist Kress ekki aðeins á við konu sína á Íslandi, heldur líka Ahnenerbe . Í bréfi til Ahnenerbe vorið 1942 kvaðst hann vera langt kominn með þýska málfræði, en sig vantaði ritvél með íslenskum stöfum til þess að geta lokið henni . Spurði hann, hvort Ahnenerbe gæti útvegað sér hana . Wolfram Sievers, framkvæmdastjóri Ahnenerbe, svar aði honum, kvaðst glaður að heyra, að hann væri á lífi, en taldi ólíklegt, að hann gæti útvegað honum ritvél, enda myndu Bretar væntanlega ekki hleypa slíkum grip inn á Mön .30 Bruno Kress var stríðsfangi á Mön í rösk fjögur ár, en ekki er þess getið, að hann hafi skrifast frekar á við framkvæmdastjóra Ahnenerbe, enda hafði Wolfram Sievers í nógu að snúast næstu árin, svo sem fyrr segir . Haustið 1944 bauðst þýskum stríðsföngum frá Íslandi að fara til Þýskalands í fangaskiptum . Sumir þeirra kærðu sig ekki um að snúa aftur til Þýskalands og þáðu því ekki boðið . Kress gerði það þó, og fóru fangaskiptin fram í Gautaborg í Svíþjóð .

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.