Þjóðmál - 01.03.2012, Side 81

Þjóðmál - 01.03.2012, Side 81
80 Þjóðmál VOR 2012 á gengisfellingu, en stjórn völd þráuðust við og afleiðingin var gjaldeyris skortur sem ekki var unnt að mæta nema með því að skammta gjaldeyri . Jón Þorláksson fjármálaráðherra hafði hækkað gengi krónunnar 1925 vegna þess að hann taldi útflutningsatvinnuveginn, sjávarútveginn, búa við góðæri . Það hefði því verið rökrétt að fella gengið strax haustið 1930 þegar saman fór mikið verðfall og samdráttur í eftirspurn eftir útflutningsafurðum okkar . En það var ekki gert og afleiðingin var ekki aðeins haftakerfið heldur var sjávarútveg in­ um nánast látið blæða út á kreppuára tugn­ um, 1930–1940 . Frá því heimsstyrjöldin síðari skall á 1939 bjuggum við svo við mun meiri verðbólgu hér á landi en í viðskipta­ löndum okkar og það náttúrlega rýrði verð­ mæti krónunnar . En gengisfelling var nánast bannorð í íslenskum stjórnmálum í þrjátíu ár . Almenn ingur hræddist þá kjaraskerðingu sem af henni myndi hljótast, ríkisvaldinu og inn flytjendum stóð stuggur af því að erlendar skuldir hækkuðu í krónum talið og í hugum sósíalista og kommúnista var gengisfelling einfaldlega vatn á myllu „stór gróða aflanna“ . Sjálf gengisfellingin hefði þó aðeins verið táknræn aðgerð, viðurkenning á orðnum hlut, — og ef hún var ekki framkvæmd, þá var óhjákvæmilegt að grípa til dulbúinna gengis­ fellinga til að laga okkur að þeirri staðreynd að raungengi krónunnar hafði lækkað . Og þær dulbúnu gengisfellingar voru höftin . Krónan var skráð of hátt og stjórnvöld þurftu því að skammta gjaldeyrinn, sem síðan kall aði á víðtækar verslunarhömlur og fjár­ fest ingar eftirlit, samfara flóknu milli færslu­ kerfi til að halda útflutnings atvinnu veg in um — sjávarútveginum — á floti . Afl eið ing arn­ ar voru rýrnandi lífskjör, minnk andi þjóða­ rtekj ur, minni hagvöxtur . Höftin lögðust eins og mara yfir allt atvinnulíf og ein staklings­ fram takið var drepið í dróma; hvarvetna blasti afkasta rýrnun við og hinir óheilbrigðu verslunar hættir bitnuðu á öllum . Skuldir hlóðust upp í útlöndum og gjaldeyrissjóðir landsmanna gengu til þurrðar . Hinar miklu haftastjórnir tímabilsins (1934–1939, 1947– 1949, 1956–1958) hrökkluðust allar frá völd­ um þegar ekki varð lengra komist á hafta­ brautinni og strandið blasti við — eða eins og efna hagsráðunautur vinstri stjórnarinnar 1956–1958 orðaði það: „Við erum að ganga fram af brúninni .“ Í landi mikillar utanríkisverslunar skiptir mestu að þeir atvinnuvegir sem afla gjaldeyris séu öflugir og verslunin frjáls . Forsenda hvors tveggja er raunhæf gengisskráning . Óðaverðbólga er til vitnis um sjúkt efna hags líf, en hún stofnar í sjálfu sér ekki verslun ar frels inu í hættu, eins og við reyndum á árunum 1971– 1991, svo fremi sem þess er gætt að láta það ekki dragast úr hömlu að leiðrétta hina opinberu gengisskráningu . Hversu mikil sem verðbólgan kann annars að vera, skiptir höfuðmáli fyrir lítið opið hagkerfi eins og Ísland að skrá gengi krónunnar jafnan í samræmi við raungildi hennar . Miklar gengissveiflur eru auðvitað óæski legar, gengisfelling er eðli máls samkvæmt neyðar úrræði, — en til að komast hjá sífelldum gengisfellingum er engin leið önnur en að halda verðþenslunni innanlands á svipuðum nótum og í öðrum vestrænum ríkjum . En hvers vegna átti haftastefnan þá svo miklu fylgi að fagna að þjóðin kaus hana yfir sig þrjátíu ár samfleytt þrátt fyrir alla hennar ókosti og enga auðsæja kosti? Eflaust réð þar mestu að láglaunafólk er ber skjaldað fyrir kjaraskerðingunni sem óhjá­ kvæmilega hlýst af gengisfellingu og miklum örðugleikum bundið að bæta því hana upp án þess að hleypa af stað verðbólguhrinu og þar með rýra krónuna á ný og kalla þannig á síbylju gengisfellinga . Ef snúa átti af haftabrautinni þurfti víðtæka samstöðu, eins konar þjóðarsátt, og hún náðist ekki fyrr en 1960; þá loks gat viðreisnin hafist úr rústum haftastefnunnar . Haftafyrirkomulagið virtist líka stundum þrauta minnstu ráðstafanirnar í bili til að mæta aðsteðjandi vanda . Kjaraskerðingin af gengis­ fellingu var augljós og hraðvirk en skað vænleg áhrif haftafyrirkomulagsins komu fram á lengri

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.