Þjóðmál - 01.03.2012, Síða 97

Þjóðmál - 01.03.2012, Síða 97
96 Þjóðmál VOR 2012 Í bókinni um Jón forseta ræðir Páll Björnsson þessi sjónarmið stuttlega og bendir á að „staða ímyndar Jóns sé óvenju­ sterk í samanburði við svipuð tákn í ná­ grannalöndum okkar“ . Það sé „fremur sjaldgæft“ að „svo mikill samhugur sé um aðeins eina þjóðhetju“ eins og hér á landi um Jón Sigurðsson . Um þetta skal ekki deilt . Annað sameinar aðrar þjóðir, styrjaldir, einstakar orrustur eða þjóðardýrðlingar á borð við Jóhönnu af Örk í Frakklandi . Hitt er ljóst að atburðir úr þjóðarsögu eða samskiptum einstakra þjóða móta að sjálfsögðu samtímaviðhorf . Þetta skýrist þegar einræðisherrar sem haldið hafa ríkjum með ólík þjóðarbrot í greip sinni hverfa frá völdum eða stjórnkerfi hrynja . Þá setur slík minning í þjóðarsálinni æ meiri svip á samskipti þjóða innan Evrópusambandsins, meira að segja á milli Frakka og Þjóðverja . François Hollande, forsetaframbjóðandi sósíal ista í Frakklandi, sá sig til dæmis knú­ inn til þess fyrir skömmu að biðja flokks­ menn sína að gæta orða sinna um Þjóðverja þegar þeir gripu til sögulegra skírskotana til 19 . aldar kanslarans Ottos von Bismarcks í því skyni að varpa neikvæðu ljósi á Angelu Merkel, núverandi Þýskalandskanslara . Helsta gildi bókar Páls Björnssonar er að bregða ljósi á hvernig viðhorf Íslendinga til Jóns Sigurðssonar hefur þróast stig af stigi og hann hefur þrátt fyrir flokkadrætti orðið að samnefnara og þar með verðugu viðmiði þjóðar sem vill frekar verja málstað sinn með orðsins brandi en vopnum . Frásögnin er greinargóð og auðskilin, hún verður að vísu á stundum nokkuð staglkennd þegar tíundaðir eru viðburðir sem eru sam­ bæri legir víða um land . Undarlegt er að höfundur skuli láta kaupmanna ógetið undir lok bókarinnar þegar hann getur um framtak félagasamtaka til að halda minningu Jóns á loft . Þeir og aðrir athafna­ menn lágu ekki á liði sínu í því efni og á sínum tíma var aðdáunarvert hve mikla rækt verslunareigendur lögðu við að skreyta glugga sína til að minna á hlut Jóns í tilefni þjóð hátíðardagsins . Sú auglýsing skipti miklu, að minnsta kosti fyrir barnshugann . Í bókinni er lesandinn minntur á hve Melavöllurinn í Reykjavík gegndi mikil­ vægu hlutverki við að gera 17 . júní að þjóð­ hátíðardegi . Er undarlegt að ekki skuli hafa verið reist minnismerki um völlinn þar sem hann stóð á sínum tíma . Það er hins vegar táknrænt að hann skuli umlukinn Þjóðminjasafni og Þjóðarbókhlöðu og reisa megi hús um Árnastofnun og handritin á þeim stað þar sem hann stóð . Í tengslum við þá byggingu ætti að huga að minningarreit um völlinn . Bókin um Jón Sigurðsson er prentuð á vandaðan pappír enda prýdd mörgum myndum . Ekki hefur þó tekist betur til við val þeirra en að á bls . 87 er birt mynd af Benedikt Sveinssyni sem andaðist árið 1899 þegar sagt er frá fundi við Alþingishúsið mánudagskvöldið 17 . júní 1907, þar sem Benedikt Sveinsson (d . 1954), ritstjóri og síðar þingmaður, var meðal ræðumanna . Síðar segir Páll frá því að Benedikt hafi talað á Þingvöllum við stofnun lýðveldisins 17 . júní 1944 . Páll segir: „Á Jón Sigurðsson var minnst í sumum ræðunum [á Þingvöllum], til að mynda í ræðu landvarnarmannsins Benedikts Sveins ­ sonar, eins af forgöngumönnum 17 . júní há tíðarhaldanna í Reykjavík á árunum fyr­ ir 1911 . Nú var sá dagur orðinn að þjóð ­ hátíðar degi eins og forgöngumennirnir höfðu einmitt stungið upp á . Helgun dags­ ins var í höfn .“ Ítarleg heimildaskrá fylgir bókinni auk nafnaskrár . Fengur er að þessari bók í tilefni af 200 ára afmæli Jóns Sigurðssonar . Að hún verðskuldi bókmenntaverðlaun sýnir hve nafn Jóns má sín mikils enn þann dag í dag .
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.