Tímarit Máls og menningar - 30.03.2001, Blaðsíða 11
Áhugaverðar bækur bls. 11
Fear and Loathing in America
The brutal odyssey of an outlaw journalist
„Hunter S. Thompson er brjálaður blaðamaður,
hann virðist haldinn ofskynjunum sem reynast
þegar á allt er litið fullkomlega heilbrigðar.“ Einhvern
veginn svona hafa gagnrýnendur í Bandaríkjunum
tekið bókum blaðamannsins Thompsons. Ótta og
andstyggð í Ameríku byggir hann á sendibréfum
sem hann stílar á vini, óvini, útgefendur og gagn-
rýnendur og jafnvel Jimmy Carter og Kurt Vonnegut.
Thompson tekur fyrir árin 1968–1976 og afhjúpar
merkilega mynd af bandarísku þjóðlífi; pólitík og
menningu. Thompson er sennilega eini maðurinn
sem bæði hefur ferðast með Hell’s Angels og
Richard Nixon.
Fyrra bindi sögunnar kallaðist The Proud High-
way og kom út árið 1997, tímaritið Rolling Stones
kallaði bókina ólýsanlega snilld „brilliant beyond
description“. Útgefandi er Simon & Schuster.
The Girl in the Picture
The remarkable story of Vietnam´s most famous
casualty
Sennilega hafa fáar ljósmyndir skapað jafnalmenna
andúð á stríðsrekstri og myndin af víetnömsku
stúlkunnni Kim Phuc sem birtist um allan heim árið
1972. Á myndinni sést Kim Phuc, 9 ára gömul, flýja
nakin og illa brennd eftir napalmárás. Margir telja að
myndin hafi breytt viðhorfum Bandaríkjamanna til
afskipta þeirra af Víetnamstríðinu. Færri vita kannski
að ljósmyndarinn kom Kim Phuc undir læknishendur
og hún var heilt ár á sjúkrahúsi í Saigon. Eftir það tók
við barningur við kommúnista frá Norður-Víetnam
sem vildu nota sögu hennar í áróðursskyni. Kim
Phuc flúði að lokum land og býr nú í Kanada ásamt
eiginmanni og tveimur börnum. Denise Chong ritar
sögu Kim Phuc. Simon & Schuster gefur út.
A Heartbreaking Work of Staggering
Genius
Dásamlega furðuleg, er sennilega það fyrsta sem
kemur upp í hugann þegar bók Daves Eggers er
flett. Reyndar er engin þörf á að lesa hana alla, ef
marka má orð höfundarins á fyrstu síðum. Blaðsíður
239-351 eru t.a.m. um fólk á þrítugsaldri sem svo
erfitt er að gera áhugavert, að hans sögn, að allt
eins gott er að fletta framhjá. Höfundur gengur
meira að segja svo langt að lofa fyrstu 200 les-
endunum sem geta staðfest að þeir hafi komist í
gegnum alla bókina fimm dala ávísun frá „góðum
bandarískum banka“.
Sé bókinni snúið við er þar önnur kápumynd og
yfirskriftin „Mistakes we knew we were making“.
Efnið er 50 síðna lausbeislaðar vangaveltur Eggers
um bókina eftir að hann sendi hana frá sér.
Dave Eggers stofnaði tímaritið Might í San
Francisco 1993. Hann hefur unnið við grafíska
hönnun, búið til teiknimyndir og skrifað í blöð. Þessi
fyrsta bók hans hefur fengið frábæra dóma, víðast
hvar og verið kölluð sérlega áhrifamikið byrjenda-
verk. Picador gefur út.
English Passengers
Ein þeirra bóka sem tilnefndar voru til Booker–verð-
launanna á síðastliðnu ári og hlaut nær einróma lof
lesenda jafnt sem gagnrýnenda. Sagan gerist um
miðja 19. öld og segir frá presti einum sem leggur
í ferð til Tasmaníu í leit að aldingarðinum Eden.
Frumbyggjar Tasmaníu hafa átt í útistöðum við
Breta og Paradís reynist víðs fjarri. Fyndin og
dramatísk í senn, kaldhæðin og heillandi, sögðu
bresku fjölmiðlarnir þegar bókin kom út. „Saga sem
fáir núlifandi rithöfunda hefðu ímyndunarafl til að
skrifa eða þol til að vinna til enda,“ sagði í Daily
Telegraph. Höfundur er Matthew Kneale en
Penguin gefur út.
Áhugaverðar bækur
Tilvalið lesefni í páskafríið
G8126 tmm mars 22x27 Q.4.1 3/30/01 11:47 PM Page 11