Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 30.03.2001, Side 50

Tímarit Máls og menningar - 30.03.2001, Side 50
brúðkaupshestvagn. Áfangastaður hans er að sjálfsögðu húsið sjálft. Baráttan milli góðs og ills Að mörgu leyti eru LEGO og Playmobil sambærileg leikföng. Þó er eitt áberandi ólíkt. Í LEGO eru persónurnar bæði góðar og illar. Innræti persónanna er greypt í andlitsdrættina. Þannig er hið illa hluti af mannlífinu sem þarf að berjast gegn. Jafnvel í Duplo-línunni, sem er fyrir börn frá eins og hálfs árs aldri, er innbrotsþjófur sem lögreglan eltist við. Andlitsdrættir allra Playmobil-fígúra eru eins. Enda þótt nú hafi þær ýmiss konar útlitseinkenni eins og áprentað skegg og jafnvel glóðarauga (eftir skíðaslys, en ekki slagsmál) er sama glottið á þeim öllum. Playmobil brosið gefur til kynna að allir séu jafngóðir og hið illa sé ekki til. Þó eiga örfáar fígúrur greinilega ekki að vera algóðar, eins og galdrafólkið sem nefnt var hér að framan. Skrattinn er í svokallaðri Special-vörulínu, en í henni eru fígúrur sem ekki tilheyra neinum sérstökum heimi. Glott hans er breiðara en hinna karlanna og hann er fremur fyndinn en óhugnanlegur. Ýmsir hafa bent á að einn helsti kostur hefðbundinna ævintýra sem barnaefnis sé nærvera hins illa. Barnasögur þar sem allir eru góðir afneiti einfaldlega hluta af mannlegu eðli. Börn þurfi að fá að prufa hlutverk vondu stjúpunnar og illa galdrakarlsins til þess að geta valið sjálf að verða góðar manneskjur. Út frá því sjónarmiði þjóna LEGO-leikföngin þroska barnsins betur en leik- heimar Playmobil, sem eru nánast lausir við átök. Þessi leikföng eru búin til í tveimur Evrópu- löndum sem eiga sér ólíka sögu, Playmobil í Þýska- landi og LEGO í Danmörku. Það er áhugavert að velta því fyrir sér á hvaða hátt saga og menning þessara landa endurspeglast í eðli leikheimanna. Eftir að hafa tapað tveimur heimsstyrjöldum á einni öld og borið ábyrgð á voðaverkum nasista í síðari heimsstyrjöldinni eru átök tabú í þýsku samfélagi. Allir eiga að vera góðir og kurteisir, eins og í fullkomnum leikfangaheimi. Undir niðri krauma þó átök sem samfélagið bælir niður. Í Danmörku stendur styrr um þann fjölda innflytjenda sem býr í landinu. Ef marka má leikheima LEGO eru þeir ekki fullgildir borgarar enn sem komið er. Þegar leikheimar eru búnir til handa börnum ættu þeir að einhverju leyti að vera útópískir. Auð- vitað mega þeir einnig vera spennandi og æsilegir og ekki væri verra að „réttlætið“ sigraði að lokum, en þeir sem skapa þessa heima ættu að hafa það í huga að börnin sem leika sér með þá eiga eftir að vaxa úr grasi og verða virkir einstaklingar í raunverulegu samfélagi. Hvernig á börnunum að skiljast að karlar og konur af öllum kynþáttum heims geta í raun og veru lifað og unnið saman, ef ekki er hægt að sýna fram á það í þykjustuheimi? Ef til- gangur lífsins er að búa börnum okkar betri heim er ekki til betri staður til að byrja á en barnaherbergið. annars skipta um bleiu á barni og vikta sig á baðvog. Við skulum vona að þessar myndir endurspegli ekki áhugamál lítilla stúlkna. Eitt hafa stelpudúkkur LEGO þó fram yfir hefð- bundnar dúkkur. Þær hafa grip eins og stráka- leikföng og geta haldið á hlutum. Langflestar dúkkur hafa flatan lófa sem gerir það að verkum að þær geta ekki haldið á nokkrum sköpuðum hlut. Þá er rétt að benda á að allar fígúrur frá LEGO eru ljósar á hörund. Litlu fígúrurnar eru reyndar gular en tákna engu að síður hvítt fólk en Duplo-fólkið, Belville-liðið og Scala-fjölskyldurnar eru hvít á hörund. Hafi heimurinn einhvern tíma verið svona einfaldur, er hann það ekki lengur. Fyrirmyndaríkið Playmobil Hin þýsku leikföng Playmobil eru fyrir börn frá fjögurra ára aldri. Þar er staða kynjanna áberandi jafnari en hjá LEGO, þótt fullkomið jafnrétti sé ekki í sjónmáli. Mestu munar að kvenfígúrurnar eru gerendur í samfélaginu og vinna almenn störf og margar vinna hefðbundin karlastörf eins og að dæla bensíni. Þá eru kvenfígúrur einnig áberandi í ýmsum ábyrgðarstörfum, t.d. við læknisþjónustu, hjálpar- störf og í lögreglunni. Þó eru aðeins karlar í hörðustu vígjum karlmennskunnar; í slökkviliðinu og á gröfum og vegheflum. Kvenfígúrurnar passa hins vegar upp á börnin, því af þeim er nóg í heimi Playmobil. Í heimi Playmo-barnanna ríkir hins vegar fullkomið jafnræði milli kynjanna og það virðist ekki vera neinn munur á leik stráka og stelpna. Í þeim öskjum sem innihalda barnahóp, eru jafnmörg börn af hvoru kyni og venjulega eitt barn sem ekki er hvítt á hörund, en er engu að síður hluti af heildinni. Hörundsdökkar fígúrur í fullorðinsstærðum eru einnig til staðar, en þær eru einkum í aukahlutverkum og sjást ekki í ábyrgðarstöðum. Í nútímaheimunum eru hörunds- dökkir áhorfendur, farþegar og trúðar. Í öðrum vöru- línum tákna hörundsdökkar fígúrur ýmist framandi og vanþróaða þjóðflokka eins og indjána og afríska villimenn eða fulltrúa illra afla. Í töfraheimi Playmobil eru galdrahjón sem skera sig úr í sakleysislegum heimi einhyrninga og trjáálfa. Þau eru dökkklædd, hörundsdökk og umhverfi þeirra kuldalegt og dökkt. Þá er einnig hægt að kaupa hörundsdökkan skratta. Playmobil-fyrirtækið býður einnig upp á fortíðar- og ævintýraheima. Miðaldaheimur er til staðar og skiptist hann í nokkrar vörulínur sem allar geta tengst ef viljinn er fyrir hendi. Þar er t.d. kastali sem ótal riddarar verja. Ólíkt LEGO er fjöldi kvenna í kastalanum við ýmis hversdagsleg störf og svo er prinsessa í turninum. Þá er sérstakur töfraheimur og í honum búa drekar og galdrakarlar, skógardísir og einhyrningar, prinsar og prinsessur. Andstætt miðaldaheimum LEGO hafa kvenfígúrurnar ákveðnu og umfram allt jákvæðu hlutverki að gegna. Þá er einnig hægt að kaupa stelpulegra og friðsælla konungsríki, en aðaltrompið þar er björt og falleg draumahöll fyrir konungsfjölskyldu. Það er dæmigert að þessi sérstöku stelpnaleikföng einskorðast við heimilið og ólíkt drengjaleikföngum og dóti fyrir bæði kynin fylgja engin farartæki eða umhverfi kringum höllina. Staða kvenna er því greinilega á heimilinu. Í sama anda er bleikfjólublátt nítjándu aldar „brúðuhús“ frá Playmobil. Húsið er nokkuð nákvæm eftirmynd raunverulegs heimilis, en einu farartækin sem fást eru barnavagn og Þar að auki eru Emma, vinir hennar og fjölskylda í s n i ð u g u m skóm sem smellast við g ó l f f l e t i n a þannig að d ú k k u r n a r geta staðið u p p r é t t a r . Barbie hefur hins vegar aldrei getað staðið á eigin fótum.Margrét Tryggvadóttir er bókmenntafræðingur. Heimildir: Pickering, Davið (ritstj.). 1999. The Ultimate LEGO Book. London, Dorling Kindersley. Vörulistar LEGO 1996-2001. Vörulistar Playmobil 1997–1999. www.lego.com · www.playmobil.com G8126 tmm mars 22x27 Q.4.1 3/30/01 11:54 PM Page 50

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.