Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 22.10.2002, Side 5

Tímarit Máls og menningar - 22.10.2002, Side 5
Osmo Lalli Ismael Ivarsson af slóðum þar sem tilveran lyktar af auðn, í útjaðri lenda Jahves þar sem jafnvel ræningjar eru náðaðir, í okkar enda- lausa landi sem teygði sig frá móunum hennar Önnu út að Hofsásnum þar sem sígaunarnir bjuggu og voru líka menn, já það náði lengra, til Salla og hinna miklu Sovétríkja þar sem menn úr þorpinu höfðu sópast burtu í stormum bylt- ingarinnar. Voj, ääretön helvetti, ó, endalaust helvíti í fjöldagröfum í Sandharmoj og Kotlas, Archangelsk og Kamtjatka. Ég var kominn á skellinöðrualdurinn. Ég var búinn að vera einn vetur í gagnfræðaskóla og farinn að hafa hugmynd um að ég myndi fara héðan til Svíþjóðar, ég hafði lært málið og söngvana og söguna í skólanum hjá fröken Önnu sem hafði átt sautján börn og hélt kýr í fjósi, þangað fór hún á finnskum tíma og var búin að mjólka þegar klukkan í eldhúsinu var sjö að sænskum tíma. Hún sleppti bókstöfun- um lausum svo að þeir klifruðu niður af spjöld- unum á veggnum og kynntu sig í nýjum orðum og nöfnum. Í skólanum heiti ég Bengt en heima Pänktti og hinum megin við landamærin Pentti. Það var eins og nýir söngvar sem hljóm- uðu með nýjum tónum. Það var söngur á finnsku og sænsku og okkar máli, meän kieli, og samísku og sígaunamáli í fjósum og viðar- hjöllum og á bekknum á timbursleðanum, þar sem ég vil sitja við hlið móðurbróður míns þeg- ar hann er að aka timbri, leggja snörur fyrir rjúp- ur og syngja. Ef hann fer ekki samstundis að fylla snævi þakinn daginn og skóginn með söngvum ýti ég við honum: „Noh, ala pithään rukkuuksia! Svona, farðu að flytja bænirnar!“ Hann hlær og fyllir kaldan daginn með friði sunnudagsins og ilmi af skógarliljum frá sumri þegar enginn var við vinnu og ég var einn inni í svölum bænum. Ég náði skellinöðrualdrinum daginn sem ég var að hreinsa fiskinn. Ég vissi þá þegar að ég myndi flytja úr þorpinu, fátækasta þorpinu í Tornedal. Næstum allir lifðu á smygli, jafnvel tollarar og löggur sem fengu prósentur af pislaaki-góssinu sem gert hafði verið upptækt – þetta var hatað orð. Fredriksson einseyringur var verstur. Hann varð lögga út á það að hand- taka föður sinn og hann hafði ekki einu sinni byggt húsið sitt sjálfur heldur keypt það af fá- tæklingi fyrir einn eyri. Af því hlaut hann nafnið. Og grobbaði af því að það væri eins og að ljúka fimmtíu kílómetra göngunni án þess að svo mikið sem svitna. Bara flytja inn í fullbúið hús. Sem fátæklingarnir höfðu komið upp með því að þræla. Og fá prósentur. Taka prósentur. Stela prósentum. Fredriksson var þjófur, sam- viskulaus þjófur. Hann var alls staðar, meig alls staðar til að helga sér svæði: hann skreið undir rúmin og rótaði á háaloftinu og hesthúsloftinu, undir baðhúsinu og úti í haga. Hann hefði mig- ið upp í sig ef hann bara hefði getað látið fruss- ast á aðra. Og fengið prósentur fyrir. Þetta var sagt og pískrað en nafninu Fredriksson tengd- ist hvorki skelfing né ótti, bara fyrirlitning. Ég var að flytja frá Fredriksson. „Þú skalt verða lögfræðingur, þú ert svo mikill námsmað- ur!“ sagði hetjan Hannes alltaf, „þá höfum við eitthvað á móti honum Fredriksson!“ Hvað átti ég að verða? Hvert átti ég að fara? Því ætti ég að fara út í þennan stóra heim þeg- ar heimurinn var nú þegar hér í öllum sögunum við kurlstokkinn. Í sögunum um Assar sem hafði skotið innfædda í Marokkó, um þorpsbúa sem höfðu ræktað kaffi í Brasilíu, byggt Paradís í austri og boðað kristni meðfram ströndum Kyrrahafsins og meðal Indíána í Klettafjöllum, verið í þjónustu soldánsins og flúið frá Póllandi. Ég sem var í miðjum heiminum og heimurinn endaði ekki hér, ekki einu sinni við ystu klappir landsins, heitar af minningum og sumarsól. Jæja, frásagnirnar tek ég með mér. Nafnið tek ég með mér. Ei nimi miestä pillaa! Nafnið setur ekki blett á manninn en maðurinn getur sett blett á nafn sitt. Það skipt- ir engu máli hvað maður heitir. Bara ef maður veit hvaðan maður er og hver maður er innst Ég gerði að afla næturinnar á lokinu á safn- þrónni hjá viðarhjallinum. Á kurlstokkunum sátu faðir minn smyglarakóngurinn og hetjan Hannes, sem bjó Finnlands megin landamær- anna. Þeir sátu á kurlstokkunum, reyktu rúss- neska líkkistunagla og hvísluðust á um Ismael Ivarsson; bróðir hans hafði látist á grunsamleg- an hátt. Þeir lækkuðu röddina til þess að ég heyrði ekki um hvað þeir töluðu: Ismael Ivarsson hafði líftryggt bróður sinn, haldið ball fyrir æskulýðs- fylkingu kommúnista, lagt rafmagnskapla út að danspallinum og hleypt á straumnum á meðan bróðir hans var að fást við tengingar á spenn- inum. Bróðirinn hafði látist samstundis. Jafnvel strigaskórnir höfðu brunnið til ösku og hann hafði fundist blásvartur innan um skógarliljurn- ar. Og Ismael hafði tekið út tryggingaféð. Nú var lýst eftir honum í sænskum og finnsk- um blöðum. Pabbi og hetjan Hannes lækkuðu röddina enn um hálfa áttund og bentu á frétt- ina. Þeir hvísluðu nafnið Osmo Lalli Ismael Ivarsson með sömu lotningu og þeir væru á bænastund í þorpinu þar sem dýrlingar og ræn- ingjar voru lagðir að jöfnu, eins og ilmur af skógarliljum og fnykur af svita og gatslitnum, forugum skóm vitnaði um skelfingu og ótta trú- arinnar frammi fyrir þeirri fegurð og helgi sem smýgur í gegn um manninn þegar Guð andar. Osmo Lalli Ismael Ivarsson var torráðið land, frekar umfang en persóna, svæði sem heillaði, andblær úr geimnum, söngur af ótta, heilög hrynjandi og margar tungur. Hann var landa- mæri og stríð. Og nafnlausir flóttamenn sem voru eltir og helgir af sjálfu nafnleysinu eins og Jahve við brennandi runnann, rödd og regla: Ég er sá sem ég er. Þeir eru það sem þeir eru, ihmisiä noon nekki, þeir eru líka menn. Maðurinn var helgur og þorpið svo stórt að því lauk hvergi. Við sátum á austustu klöppum Svíþjóðar og dorguðum, við hrópuðum yfir á hinn bakkann „fáiði eitthvað?“ „Tyhjän saapi onkimatta! Ekkert fæst nema dorga!“ hrópaði bls. 5 S m á s a g a 04 Smásaga Bengt 17.10.2002 10:57 Page 5

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.