Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 22.10.2002, Page 13

Tímarit Máls og menningar - 22.10.2002, Page 13
samvinna meðfram viðskiptum getur verið hagfelld, því oft er auðveldara að koma hags- munamálum áfram í félagi við önnur ríki. Eystrasaltsríkin vilja t.d. ekki aðeins ganga í ESB af viðskiptalegum forsendum, heldur einnig til að styrkja pólitísk tengsl sín við Vest- ur-Evrópu og fá þannig óbeina vernd fyrir ásælni Rússlands. Sínum augum lítur hver silfrið þegar rætt er um ávinning af stjórnmálasamruna og þeir eru líklega fjölmargir sem vilja ESB-aðild fyrst og fremst af pólitískum ástæðum. En meðal hag- fræðinga ríkir ekki eining um hagræna kosti Evrópusambandsins. Vitaskuld vaxa mörg aldin í skógum sameinaðrar Evrópu, sem freistandi er að tína. En það er höfuðatriði hvort lands- menn geta lesið ávextina af þessum trjám – yfir girðingarnar – án þess að kaupa sér aðgang að garðinum sjálfum. EES-samningurinn opn- aði ýmsar gáttir fyrir Íslendinga, en samt sem áður er margt utan seilingar. Sumir markaðir Evrópusambandsins eru landsmönnum enn lokaðir með tollum. Raunar er erfitt að finna aðra ástæðu fyrir núverandi hindrunum, svo sem um innflutning hrossa, en að ESB vilji hafa eitthvað til þess að selja Íslendingum í aðildar- samningum. Það er vandi sem gæti undið upp á sig um leið og sambandið stækkar og fleiri viðskiptalönd Íslendinga fara undir einn hatt í Brüssel. Þá hefur ekki verið léð máls á upptöku evrunnar án formlegrar aðildar, en slík mynt- samvinna gæti falið í sér margvíslega kosti fyr- ir Ísland, þótt þeir verði ekki tíundaðir hér. Af þeim sökum er ekki að fullu ljóst hvernig EES- samningurinn muni standast tímans tönn, hvort hann muni standa í rúmar tvær aldir eins og samningur Íslendinga við Ólaf helga árið 1033. Þegar til framtíðar er litið munu áhrif Alþjóða- viðskiptastofnunarinnar (WTO) skipta miklu fyr- ir efnahagslegt sjálfsöryggi Íslendinga gagnvart ESB. Markmið þessarar mætu stofnunar er að tryggja öllum ríkjum, stórum sem smáum, jafn- ræði í utanríkisviðskiptum og frá seinna stríði hafa meðaltollar lækkað frá 40% niður í 5%. Ef þessi stofnun fær forræði yfir heimsviðskiptum mun svigrúm „klúbba“ eins og ESB minnka verulega til þess að nota markaðsaðgang sem skiptimynt í pólitískum samningum. Þó bendir margt til þess að hvorki Bandaríkin né Evrópa muni beygja sig undir vald þeirrar stofnunar þegar á reynir. Ennfremur verður vart vaxandi andstöðu andstæðinga hnattvæðingar af ýmsu tagi við frjáls alþjóðaviðskipti utan ríkjabanda- laga. En í hvert sinn sem fjölhliða viðræðum um viðskiptasamninga er hleypt upp í götuó- eirðum er jafnframt vegið að efnahagslegu sjálfstæði smáríkja. Um fullveldið Sú auðsveipni sem virðist hafa verið sýnd á Alþingi 1262 var aðeins á ytra borði. Gamli sáttmáli var með skýrum upp- sagnarákvæðum (sem Jón Sigurðsson nýtti síðar óspart í áróðurskyni í sjálfstæð- isbaráttunni). Það varð brátt bert að konungur nýtti hverja smugu til þess að efla vald sitt hérlendis, en Gissur jarl og menn hans höfðu sett konungs- valdinu mjög skýr mörk og sjö umboðsmenn konungs voru slegnir af á árunum 1300–1551, þegar þeir fóru út fyrir valdsvið sitt. (Þar af var einum biskupsvígðum erindreka drekkt í poka í Brúará.) Hirðstjórar konungs sátu á Bessastöð- um en þorðu lítið að fara um landið, utan þess að ríða til Alþingis. Konungi varð í raun ekki verulega ágengt fyrr en hann lét hernema land- ið og afvopna landsmenn árið 1551 í kjölfar tap- aðrar baráttu Jóns Arasonar Hólabiskups gegn lúterskum sið. Upphaf danskrar verslunarein- okunar 1602 og einveldishylling í Kópavogi 1662 eru síðan tvær aðrar vörður á leið til enn frekari konungsyfirráða. Þegar hér var komið sögu hafði konungur bæði tögl og hagldir í samskiptum sínum við landsmenn, en áhugi á því að ráðskast með málefni Íslands var tak- markaður. Danir komu sjaldan hingað út og vissu lítið um landið. Sumir höfðu stöku sinn- um einhverjar áhyggjur af kristindómi og sulti hérlendis, en annars voru þeir sáttir við að hirða arðinn af einokunarversluninni og láta landið eiga sig. Staðreyndin er sú að landsmenn héldu nær fullum og óskertum yfirráðum yfir innanlandsmálefnum í þær tæpu sjö aldir sem konungssambandið varði, m.a. vegna áhuga- leysis Dana. Ef landsmenn hefðu t.d. tengst bresku krúnunni en ekki þeirri dönsku hefði breskt fjármagn og verksvit líklega streymt til landsins og efnaleg velsæld Íslendinga hefði orðið mun meiri á fyrri tíð. Bæir hefðu byggst við sjávarsíðuna og þilskip gerð út mun fyrr en síðar varð. En þá hefði fullveldi þjóðarinnar lík- lega endað á hafsbotni, líkt og gerðist á Orkn- eyjum og Suðureyjum sem Danakonungur missti til Skota árið 1469. Aðeins tveim- ur öldum síðar var hið norræna tungutak eyjanna dáið út og þær eru nú óaðskiljanlegur hluti af Bretlandi. Konungsvaldið sem slíkt styrktist alls stað- ar í Evrópu á kostnað aðalsins frá og með þrettándu öld, og með aðild sinni að norska konungdæminu varð Ís- land vitaskuld aðili að þessari þróun. Þess vegna dró konungseiðurinn langan slóða á eftir sér sem fæstir gerðu sér grein fyr- ir á þeim tíma. Á sama hátt mundi ESB-aðild hafa gagngerar breytingar í för með sér fyrir ís- lenskar stofnanir, formlegar sem óformlegar, sem ekki eru að fullu ljósar nú. Að hluta til er þetta vegna þess að Evrópusambandið sjálft er í mikilli mótun og enginn veit neitt um fulla ásýnd þess að nokkrum áratugum liðnum. Tenging við Evrópu mundi einnig draga úr áhrif- um sumra hagsmunahópa hérlendis en jafn- framt öðluðust aðrir hópar bakhjarl og hefð- bundin valdajafnvægi mundu raskast. Þannig gætu töluverðar breytingar átt sér stað á Ísland, t.d. á vinnumarkaði, þar sem samleitni yrði á milli Íslands og ESB án þess þó að þess væri formlega óskað. Raunveruleikinn Það er kominn tími til að landsmenn láti af nei- kvæðni um konungseiðinn á Alþingi 1262. Að- ildin að norska konungdæminu var landinu um margt hagfelld og svar skynseminnar við að- stæðum á þrettándu öld. Ísland var í þeirri stöðu að verða að játast undir konung til þess að verða ekki utangarðs í evrópsku samfélagi. Gissur Þorvaldsson og samtímamenn hans sáu að vísu ekki fyrir að konungsvaldið yxi lands- mönnum yfir höfuð þegar fram liðu stundir, en það er önnur saga. Ekki þarf mikið ímyndunar- bls. 13Ásgeir Jónsson: Gamli sáttmáli og innganga í Evrópusambandið Þá Íslendinga sem sóru konungi hollustueið sumarið 1262 hefur þó örugg- lega ekki órað fyrir því að þessi gjörningur yrði álitinn sorgarviðburður – hvað þá landráð – nokkrum árhundruðum síðar. 09 ESB og gamli sáttmáli 17.10.2002 10:58 Page 13

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.