Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 22.10.2002, Qupperneq 30

Tímarit Máls og menningar - 22.10.2002, Qupperneq 30
Saga húsanna Villa Anbar í Dammam í Sádi-Arabíu eftir Peter Barber Halldóra Arnardóttir og Javier Sánchez Merina Rómantískur skáldsagnahöfundur frá Sádi- Arabíu bað breska arkitektinn Peter Barber árið 1992 að hanna hús fyrir sig í borginni Damman. Frú Anbar var ekkja sem bjó hálft árið í London en hinn helming ársins dvaldi hún í heimalandi sínu. Viðhorf hennar til austrænnar menningar mótuðust því af alþjóðlegum áhrifum. Aðstæður Barbers, sem vestræns arkiteks í Sádi-Arabíu, knúðu hann á hinn bóginn til að kynna sér vel margbreytileika íslamskrar menn- ingar. Innra rými sádi-arabískra heimila Hefðbundin skipan innri rýma á sádi-arabískum heimilum gerir greinilega ráð fyrir stéttaskipt- ingu milli karla og kvenna. Þetta viðkvæma mál- efni birtist í því að aðgengi að húsum er tvískipt en einnig er aðskilnaður kynjanna ítrekaður í innra skipulagi þannig að körlum er ætluð ein dagstofa og konum önnur. Þessi aðskilnaður er enn frekar útfærður í samskiptum þjónustuliðs við fjölskylduna og tengslum fjölskyldunnar við ytra umhverfi sem sjá má á því að rýmin verða sífellt persónubundnari eftir því sem innar kem- ur þar til staðnæmst er í garðinum í miðjunni. Án efa voru kringumstæðurnar ekki auðveld- ar þar sem Villa Anbar átti að rísa. Stjórnmálamenn og trúar- leiðtogar höfðu meira vald yfir húsagerðarlistinni en sjálfir arki- tektarnir. Má þar nefna að með- an á byggingu hússins stóð skipaði ríkisstjórnin svo fyrir að nærliggjandi miðaldabær yrði jafnaður við jörðu einungis vegna þess að flókið skipulag hans, byggt á þröngum húsa- sundum og torgum, hefti stjórn yfirvalda. Enski arkitektinn þurfti að takast á við þetta ókunna um- hverfi og hann viðurkenndi að vandlegur lestur bókanna Handan við blæjuna eftir Fatimu Mernissi og Kynferði og rými eftir Beatriz Colomina hefði haft áhrif á hann við sköpun hússins. Hann var ekki bara bundinn af því að uppfylla þarfir frú Anbar, barna hennar og barnabarna varðandi herbergjaskipan heldur líka, og um- fram allt, bar að túlka húsið sem pólitískt rými. Djúphugult augnaráð Peter Barber athugaði mátt augnaráðsins, gagngert til þess að ákvarða skiptingu rýmisins í Villa Anbar. Hann ákvað að beina sjónum manna eftir ákveðnum brautum, jafnt á al- menningssvæðum sem í sérherbergjum, og skapa þannig stigbreytilegt sjónarhorn; ýmist hefði fólk algjört útsýni eða takmarkaða sýn eða jafnvel væri aðeins gefið í skyn hvað lægi að baki. Hlið á lóðinni veitir útsýni inn í húsagarð þrátt fyrir að hliðarveggur varni því að augnaráðið nái lengra. Þröskuldurinn er afmarkaður af dyratré sem gengur yfir vegginn. Þetta dyratré gegnir tvenns konar hlutverki; annars vegar rennur vatn frá því og yfir í sundlaugina hinum megin við vegginn, hins vegar er táknrænt hlutverk þess að mynda umgjörð um augnaráðið og gef- ið er í skyn að eitthvað sé fyrir handan. Þegar gengið er inn ganginn, koma í ljós agnarlítil op sem rist eru í framvegg hússins og gefa þau til kynna návist íbúanna sem ekki sjást. Þó að innra skipulag fylgi þeirri hefð að skilja skuli að vistarverur karla og kvenna, þá er sneitt hjá þessari uppbyggingu með einföldum hætti. Lárétt rák, eins og sprunga, er skorin í einn veggjanna í dagstofu kvennanna og gerir þeim kleift að sjá inn í það óséða, karlaveldið. Eins og búast mátti við kröfðust karlarnir í fjöl- skyldunni þess að hleri yrði settur fyrir glugg- ann. Það var gert, en andstætt því sem gera hefði mátt ráð fyrir var honum komið fyrir í dag- stofu kvennanna. Horft inn í dagstofu karla út um glugga í dagstofu kvenna. Dagstofa karla. 30 Arkitektúr 17.10.2002 11:04 Page 30
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.