Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 22.10.2002, Side 32

Tímarit Máls og menningar - 22.10.2002, Side 32
Hafa kvæða Jónasar Hallgrímssonar verið oftúlkuð? Kvæðin Grátittlingurinn og Alsnjóa og meint þunglyndi skáldsins Torfi K. Stefánsson Hjaltalín Áhugi landsmanna á listaskáldinu góða, Jónasi Hallgrímssyni, var mikill alla síðustu öld. Ekki minnkaði hann við útgáfu ritverka Jónasar árið 1989. Segja má að hámarki þessa áhuga hafi verið náð árið 1999 með útgáfu ævisögu Jónasar, sem Páll Valsson skráði. Samtímis jókst áhugi manna á trúarskoðunum skáldsins og hefur nokkuð verið skrifað um þær hin síð- ari ár. Eru þar einkum að verki bókmenntafræð- ingar sem skiljanlega hafa haft takmarkaða þekkingu á guðfræði og trúmálum, enda ekki sérgrein þeirra. Það hefur gert umfjöllunina ein- hliða og jafnvel villandi. Þetta á einkum við um greiningu Páls Valssonar og Svövu Jakobsdótt- ur á tveimur kvæðum Jónasar, Grátittlingnum og Alsnjóa. Full þörf er á að fjalla um niðurstöð- ur þeirra á gagnrýninn hátt. Á sama hátt má gera athugasemd við síendurteknar fullyrðingar margra Jónasarfræðinga um þunglyndi skálds- ins og áhrif þess á ótímabært andlát hans. Grátittlingurinn Matthías Johannessen er sá maður sem hvað mest hefur haldið fram trúaráhuga Jónasar Hallgrímssonar skálds og náttúrufræðings (1807–1845).1 Hann segir t.d. um kvæðið Grá- tittlinginn að þar setji Jónas sig í spor Guðs sem fer líknandi höndum um lítilmagnann, þ.e. grátittling sem er niðurfrosinn í hjarn eftir mik- ið vetrarveður og getur ekki losað sig. Kvæðið er þannig:2 Ungur var ég, og ungir austan um land á hausti laufvindar blésu ljúfir, lék ég mér þá að stráum. En hretið kom að hvetja harða menn í bylsennu, þá sat ég enn þá inni alldapur á kvenpalli. Nú var trippið hún Toppa, tetur á annan vetur, fegursta hross í haga, og hrúturinn minn úti. Þetta var allt, sem átti ungur drengur, og lengi kvöldið þetta hið kalda kveði ég þau bæði deyði. Daginn eftir var aftur upp stytt, svo að menn hittu leið um snjóvgar slóðir storðar, og frost var orðið. En það sem mest ég unna úti – Toppa og hrútur – óvitringarnir ungu einmana kuldann reyna. Sekur var ég, og sækja sjálfsagt hlaut ég með þrautum aleigu mína og ala ötull bæði við jötu. Hvurnig fór? Hér ég gjarna hjarta mannlegt um sanna, að hvað sem hinu líður hjarta gott skóp oss drottinn. Ég fann á millum fanna í felling á blásvelli lófalága við þúfu lítinn grátittling sýta. Flogið gat ekki hinn fleygi, frosinn niður við mosa, augunum óttabljúgum á mig skaut dýrið gráa. Hefði ég þá séð mér hefði hundrað Toppum og undrum ótal hornóttra hrúta heitið drottinn, ég votta: Abrahams dýrðardæmi drengur í litlu gengi aldrei á Ísafoldu eftir breytir, en neitar. Kalinn drengur í kælu á kalt svell, og ljúft fellur, lagðist niður og lagði lítinn munn á væng þunnan. Þíddi allvel og eyddi illum dróma með stilli sem að frostnóttin fyrsta festi með væng á gesti. Gesti yðar! því ástar óhvikul tryggð til byggða vorra leiðir á vorum vegarslynga tittlinga. Lítill fugl skaust úr lautu lofaði guð mér ofar, sjálfur sat ég í lautu sárglaður og með tárum. * Felldur em ég við foldu frosinn og má ei losast; andi guðs á mig andi, ugglaust mun ég þá huggast. Páll Valsson hefur hins vegar haldið því fram, bæði í grein í Tímariti Máls og menningar (3/1996) og svo í ævisögu Jónasar (frá árinu 1999), að ungi drengurinn geri þetta líknarverk þvert gegn skylduboði Guðs og fylgi þannig ekki dýrðardæmi Abrahams. Í kvæðinu setji Jónas sig í eigin spor ungs sveitadrengs sem 32 Grátittlingurinn Jónas Hall 18.10.2002 14:17 Page 32

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.