Tímarit Máls og menningar - 22.10.2002, Qupperneq 38
Ljóð eftir Nelly Sachs – Jóhannes úr Kötlum þýddi
Gunnar Stefánsson
Árið 1970 las Jóhannes úr Kötlum í útvarp
nokkrar þýðingar sínar á ljóðum eftir þýsku gyð-
ingaskáldkonuna Nelly Sachs í þætti um hana
sem Svava Jakobsdóttir stóð að. Þetta var eitt
síðasta bókmenntalega viðfangsefni Jóhannes-
ar. Hann hafði tveimur árum áður birt þýðingu
á ljóðaflokki eftir Nelly Sachs í Birtingi, Glóandi
gátur, sem raunar er aðeins fyrsti hluti flokks-
ins af fjórum. Sú þýðing er endurprentuð aftast
í síðustu bók Jóhannesar, Nýjum og niðum,
1970. En þýðingarnar sem skáldið las í útvarp
hafa aldrei verið birtar og finnast ekki í eftirlátn-
um handritum Jóhannesar. Lesturinn er varð-
veittur í segulbandasafni Ríkisútvarpsins. Nú
hefur orðið að ráði að láta prenta þessar þýð-
ingar eins og skáldið las þær, ásamt formála
sem fylgdi þegar lesturinn var endurfluttur í út-
varpinu nýlega.
Árið 1966 hlutu tveir gyðingar bókmenntaverð-
laun Nóbels. Ísraelsmaðurinn Samuel Josef
Agnon og Nelly Sachs, þýsk skáldkona, búsett
í Svíþjóð. Hún hlaut Nóbelsverðlaun fyrir „sína
frábæru ljóða- og leikritagerð þar sem örlög
Ísraelsþjóðarinnar eru túlkuð af hrífandi áhrifa-
mætti,“ eins og segir í rökstuðningi sænsku
akademíunnar. Daginn sem hún veitti bók-
menntaverðlaununum viðtöku varð hún 75 ára
gömul. Hún var raunar ekki Ísraelsmaður í land-
fræðilegum skilningi og varð aldrei, en þjóð
Ísraels heyrði hún til. Í rauninni var hún landlaus
skáldkona.
Skömmu áður en Nelly Sachs lést lýsti hún
lífi sínu, örlögum og ævistarfi í þessum þremur
látlausu setningum:
„Fædd í Berlín 10. desember 1891. Kom
sem flóttamaður ásamt móður minni til Sví-
þjóðar 16. maí 1940. Hef búið í Stokkhólmi síð-
an 1940 og fengist við ritstörf og þýðingar.“
Þegar Nelly Sachs varð að flýja land sitt og
setjast að í Svíþjóð sagði einn vina hennar við
hana: „Málið er það eina sem þú átt núna,
hugsaðu um það!“ Og þetta gerði hún. Máls-
ins list varð hennar dýrmætasta eign og bjarg-
aði sálarheill hennar og lífi, svipað og Agli forð-
um þegar hann varð fyrir sínum mesta harmi
og fannst ekki þess vert að lifa lengur.
Skáldskapur Nelly Sachs er umfram allt ljóð-
ræn og áhrifamikil tjáning á örlögum gyðinga í
stríðinu þegar nasistar unnu skipulega að því að
útrýma þeim. Sá ómælanlegi sársauki sem
þessi kynflokkur mátti þola gefur ljóðum henn-
ar áhrifamagn. Og í sögulegu ljósi er hún um-
fram aðra túlkur þessara örlagatíma í ljóðum
sínum. Hins vegar er Nelly Sachs sprottin upp
úr þýskri menningu, Þjóðverji sem var hrakinn
úr sínu eigin landi. En hún sneri ekki aftur heim
eftir að blóðveldi nasista hrundi. Hún var þá
gestur í föðurlandi sínu og skáldskapur hennar
varð umfram allt minnismerki um gyðingaof-
sóknir, dökkan kafla í sögu landsins, hún var
raunar „hinumegin“, eins og hún segir í Gló-
andi gátum.
Ingrid Stobl, róttæk, vesturþýsk mennta-
kona, skrifaði grein um Nelly Sachs sem Hjálm-
ar Sveinsson þýddi og birtist í Tímariti Máls og
menningar 1989. Þar er fjallað um tvíbent við-
horf Þjóðverja eftirstríðsáranna til hennar og
hvernig nafn hennar var notað í pólitísku upp-
gjöri, en höfundur er í flokki þeirra sem telja að
ráðandi öfl í Þýskalandi hafi aldrei gert upp við
fortíð landsins. „Nelly Sachs megnaði ekki að
verja sig gegn þeim sem afgreiða fortíðina af
fagmannlegu öryggi,“ er þar haft eftir þýskum
blaðamanni. „Það var svo þægilegt að taka
þennan þýska gyðing, sem hafði lifað í útlegð
síðan 1940, í helgra manna tölu til að losna við
að horfast í augu við eigin sekt.“ Nelly Sachs
var fórnarlamb þýskrar lygi, frá upphafi til enda,
segir Ingrid Stobl.
Viðhorf bókmenntamanna í gistilandi Nellyjar
Sachs, Svíþjóð, til hennar var miklu hreinna eins
og vænta mátti. Verður ekki annað sagt en Sví-
ar hafi kunnað vel að meta hana. Rithöfundur-
inn Olof Lagercrantz skrifaði greinaflokk um
Nelly Sachs og vann síðan úr honum bók sem
nefnist Den pågående skapelsen. (Hin sífellda
sköpun). En studie i Nelly Sachs diktning, 1966,
og er hún snjöll og djúpsæ túlkun á skáldskap
hennar og þeim menningarlega jarðvegi sem
hann er sprottinn úr. Einn helsti bókmennta-
gagnrýnandi í Svíþjóð, Bengt Holmquist, raunar
sænskumælandi Finni að uppruna, var persónu-
legur vinur skáldkonunnar. Hann samdi um
skáldskap hennar langa og fróðlega ritgerð,
Långtans språk, (Mál þrárinnar), sem er í
greinasafni Holmquists, Kritiska ögonblick,
1987. Meðal sænskra vina skáldkonunnar var
eitt helsta skáld módernismans þar í landi, Erik
Lindegren, sem þýddi ljóð hennar á sænsku, en
það hafa fleiri málsmetandi bókmenntamenn
sænskir gert.
En hver var Nelly Sachs? Hún fæddist í Berlín,
sem fyrr var sagt, dóttir og einkabarn velstæðra
gyðingahjóna. Hún ólst ekki upp í sérstakri trú-
ariðkun gyðinga en fékk gott uppeldi að þeirrar
tíðar hætti. Í æsku varð hún handgengin þýsk-
um skáldskap og menningararfi. Sautján ára
gömul varð hún ástfangin af sér eldri manni.
Hún fékk ekki að eiga hann þar sem hann var
fráskilinn, slíkt leyfðu siðaboð fjölskyldunnar
ekki, en hún bar ástarhug til þessa manns æ
síðan og elskaði engan annan. Hann lést í út-
rýmingarbúðum nasista. Í ljóðum hennar kem-
ur hann fyrir sem „brúðguminn“, í fyrstu bók
hennar eftir stríð er flokkur sem heitir „Bænir
fyrir hinum látna brúðguma.“
Þrítug að aldri gaf Nelly Sachs út bókina
Legenden und Erzählungen (Helgisögur og
frásagnir), verk í rómantískum anda aldamót-
anna. Ung hafði hún hrifist af Gösta Berlings
sögu eftir sænsku skáldkonuna Selmu Lag-
38 Ljóðaþýðingar Jóhannesar 22.10.2002 10:10 Page 38