Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 22.10.2002, Page 56

Tímarit Máls og menningar - 22.10.2002, Page 56
Borgfjörð minnist þess til að mynda að hún hafi snemma komist í skilning um það að hún væri sérlega ófrítt stúlkubarn og þar með ófullkomin kona. Sú vitneskja virðist hafa mótað sjálfs- mynd hennar alla tíð. Þegar hún loks settist niður til að skrá minningar sínar, þá sjötug að aldri, sagðist hún aldrei hafa fyrirgefið kerlingu einni sem ítrekað lét hana heyra hversu ljót hún væri í samanburði við snoppufríðan yngri bróð- ur. „Það særir og situr fast“ sagði hún um þennan þátt í sjálfsmyndarsköpuninni.5 Fyrsta minning Viktoríu Bjarnadóttur um sjálfa sig snýst hinsvegar um það að hún væri merkilegt og óvenjulegt fyrirbæri enda hét hún drottningarnafni sem henni þótti vegsemd að. Jákvæð upplifun af því tagi sem Viktoría lýsir heyrir til undantekninga í endurminningum kvenna. Miklu algengara er að fyrsta minningin sé neikvæð og snúist um eigin ófullkomleika, enda hefur það að efast um eigið ágæti lengi verið eitt af aðalsmerkjum „sannra kvenna“. Þegar Viktoría eltist var hún óvenju atorkusam- ur krakki og skeytingarlaus um klafa kvenleik- ans. „Ég hugsaði ekkert út í það að mér bæri að hafa hemil á athöfnum mínum vegna þess að ég var telpa.“6 Fljótlega varð hún þó meðvit- uð um kynferði sitt eins og aðrar stúlkur. Sum- ar harma það hlutskipti sitt að hafa fæðst stúlkubörn og ræða þá fjötra sem kvenleikinn setti þeim. Þarna gengur Guðrún Borgfjörð hvað lengst en hún segir í upphafskafla endur- minninga sinna. „Ég var svo óheppin að vera elst og þar að auki stúlka. Oft óskaði ég að ég hefði verið drengur.“7 Flestar reyndu konurnar þó að finna sköpunarmætti sínum og ævintýra- þrá farveg innan þess ramma sem tíminn og kvenleikinn setti þeim. Í þeirri viðleitni sinni víkkuðu þær þanþol kvenleikans og opnuðu nýj- ar glufur fyrir þær konur sem á eftir þeim komu. Menntun og ferðalög Sköpunarþráin tengist öðru fyrirferðarmiklu umræðuefni í endurminningum kvennanna, menntamálum. Möguleikar kvenna til skóla- göngu voru takmarkaðir langt fram á tuttugustu öldina en menntunarþrá höfunda kemur víða sterkt fram. Raunar virðist það að hafa hlotið formlega menntun af einhverju tagi vera ein af forsendum þess að konur létu sér yfirleitt detta í hug að skrá æviminningar sínar. Sögu þeirra fjölmörgu kvenna sem enga menntun hlutu fáum við yfirleitt ekki að heyra. Menntun var konunum hjartans mál sem ekki var haft í flimt- ingum. Því er írónísk lýsing Málfríðar Einars- dóttur á takmörkuðum möguleikum kvenna til skólagöngu einstök í sinni röð, enda laus við alla helgislepju. Í þúsund ár höfum við íslenskar konur norp- að hér í þessu hvumleiða landi án þess að eiga okkur nokkurn skóla að ganga í og fátt við að una nema helst karlmenn svo dáskemmtilegir sem þeir voru flestir, stígvélafullir, með riðu, út- tútnir af brennivíni, svartir fyrir neðan nef af tó- baki, hafandi ekki gaman af neinu nema að renna færi fyrir saklausa fiska sem synda í vötnum . . . Svona norpuðum við um aldir, konur á Ís- landi, eigandi varla nokkra bók, stundum ólæs- ar og dóu allar úr leiðindum sem hneigðar voru til lesturs, en hinar tórðu og fylla nú landið.“8 Iðulega kemur fram að þegar konur stóðu frammi fyrir því að velja menntun sinni farveg vógu möguleikarnir á atvinnu þar sem mennt- unin væri metin að verðleikum þungt og oft settu ytri aðstæður og skynsemin bönd á löng- unina. Flestar upplifðu það á eigin skinni að tækifæri kvenna til athafna og frama á lífsleið- inni voru á einhvern hátt skilyrt af þeirri stað- reynd að þær lifðu í veröld sem var stjórnað og stýrt af karlmönnum og ekki var ætlast til þess að þær settu eigin frama á oddinn. Þá ganga ferðalög, bæði innanlands og utan, eins og rauður þráður í gegnum endurminning- ar kvennanna. Í innganginum að bókinni bendir Ragnhildur á að „erkisagan,“ hið viðurkennda bókmenntaform sem konurnar voru þrátt fyrir allt að máta sig við, fjallar um karlhetjuna sem þarf að sanna sig með því að leysa þær þrautir sem fyrir hana eru lagðar, ferðast um og sigra heiminn. Að því loknu getur hún snúið aftur og notið verðlauna sinna og konunar sem bíður heima.9 Í „erkisögunni“ fylgir atburðarásin föst- um línulaga straumum og sambandið milli or- saka og afleiðinga er skýrt. Þótt konum hafi aldrei verið innrætt að þær ættu að sigra heim- inn eða talin trú um að þeirra biði öryggi og vel- sæld reyna þær samt oft að fella brotakennt lífshlaup sitt að formi ferðasögunnar. Ferðalög- in birtast þá sem einhvers konar manndóms- vígsla þar sem konurnar yfirgefa hið þekkta og örugga heima og halda á vit hins óþekkta. Margar lýsa þær nákvæmlega aðdraganda og fjármögnun ferðarinnar og hvernig þær yfirgefa ákveðið tímabil í lífi sínu til þess að geta tekist á við nýtt æviskeið. Það vekur raunar furðu hversu stór hluti kvennanna sigldi til útlanda einhvern tímann á lífsleiðinni. Fjórtán af konun- um átján í bókinni dvöldu erlendis um lengri eða skemmri tíma þótt ekki sé að finna lýsingu á öllum ferðalögunum í þessari bók. Oftar en ekki var megintilgangur ferðarinnar að afla sér menntunar þótt stundum hafi konurnar verið reknar áfram af hreinni ævintýraþrá. Ferðalögin verða ævintýralegri eftir því sem sögurnar yngj- ast enda eru konurnar þá farnar að ferðast til fjarlægari slóða. Lýsingin á flótta Katrínar Ólafs- dóttur þvert yfir Austurríki með tvö ungabörn í seinni heimsstyrjöldinni er ef til vill áhrifamesta sagan í bókinni. Þær Anna Borg og María Mark- an lýsa því hinsvegar báðar hvernig íslenski draumurinn um að „meika það“ á erlendri grundu varð að veruleika, en báðar urðu þær stórstjörnur erlendis, hvor á sínu sviði. Þá get- ur frásögn Höllu Linker af ferðum sínum um sléttur Afríku, þar sem hún þurfti meðal annars að flýja öskrandi fíl, ekki annað en vakið hjá les- endum þrá eftir ferðalögum og framandi lönd- um. Allmargir höfundar halda sig þó á heimaslóð- um og lýsa ferðalögum innanlands. Þær frá- sagnir eru þá gjarnan tengdar einhvers konar bernsku- og æskuminningum. Þótt þar sé spennan ef til vill minni vegna þess að ferðast er í kunnuglegu umhverfi eru grundvallar lög- málin þau sömu. Ferð frá einum stað til annars, ferð sem tákngerir einhvers konar umbreytingu eða þáttaskil í lífi sögupersónunnar. Þórunn Elva segir til að mynda frá því hvernig hún yfir- gaf móður sína og fjölskyldu barn að aldri og sigldi ein með vandalausri stúlku frá Reykjavík og alla leið norður á Húsavík, en þaðan fór hún landleiðina að Skógum í Öxarfirði til dvalar hjá Mörsu frænku sinni. Guðbjörg frá Broddanesi lýsir nákvæmlega ferðalagi sínu og því fólki sem á vegi hennar varð á leiðinni frá Ströndum og austur í Húnavatnssýslu en þangað fór hún unglingsstúlka til að dvelja sumarlangt hjá bróð- 54 Kvennasögubók 17.10.2002 11:07 Page 56

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.