Gerðir kirkjuþings - 01.01.2014, Blaðsíða 14
14 15
vil ég sérstaklega nefna fjölmenninguna, kannski vegna þess að hún er mér nærtæk og
hluti af brýnum verkefnum míns ráðuneytis. Það eru, og við verðum að horfa á það sem
aðalatriði, fjölmörg, óendanleg tækifæri fólgin í því að þjóðin okkar verði fjölbreytt. Það
er hluti af því að takast á við ný verkefni, að taka fagnandi á móti fólki sem hér vill búa,
lifa, og eiga sér líf. Það er hluti af tækifærum íslensks samfélags og það er hluti af því
að við getum horft í augun á börnunum okkar og sagt: „Hér er gott að vera! Hér viltu
vera!“ Vegna þess að ný kynslóð Íslendinga vill búa í þannig samfélagi. Hún vill búa í
samfélagi þar sem er fjölbreytt flóra fólks, þar sem fólk kemur héðan og þaðan, þar sem
fólk á ólíka reynslu, ólíkt líf en nýtur sömu mannréttinda og samfélagið tekur á móti því
með sama hætti og það væri úr okkar eigin samfélagi. Ég árétta það, vegna þess að margar
þjóðir hafa staðið frammi fyrir mörgum brýnum verkefnum vegna þessara breytinga sem
þessar breytingar hafa kallað yfir okkur. Ég hvet okkur til þess að taka þeim fagnandi og
líta á það sem tækifæri að það sé fólk sem hefur fæðst annars staðar sem sér Ísland sem
land tækifæranna. Það mun gefa okkur tækifæri og fjölbreytileika sem skiptir okkar góða
samfélag miklu. En ég veit, líkt og við öll sem hér erum að kirkjan stendur frammi fyrir
þeirri áskorun að aðlaga sig að breyttu samfélagi. Og það hefur kirkjan gert í gegnum
aldirnar, því um leið og kirkjan stendur vörð um grunngildi kristinnar trúar hefur hún
sýnt umburðarlyndi og kærleika á erfiðum tímum og þess vegna er kristin trú enn á meðal
okkar og eins ríkur þáttur í samfélagi okkar og í samfélögum sem við þekkjum. Þannig
mun hún lifa áfram í góðri sátt við þjóðina og verða áfram mikilvægur hluti hennar. En
það er líka mikilvægt að það ríki traust á milli okkar allra sem að verkefnum kirkjunnar
koma á vettvangi ríkisvaldsins. Það traust erum við að byggja upp, það tekur tíma, og það
munum við gera og tryggja að almenningur njóti góðs af.
Kæru gestir, nú er hafið nýtt kjörtímabil kirkjuþings og þið kæru þingfulltrúar þið takist á
hendur mikilvæg störf fyrir þjóðkirkjuna og um leið fyrir þjóðina alla. Frá mér eru aðeins
ein skilaboð; að biðja ykkur um að hafa það ávallt í huga að við erum að starfa fyrir fólkið
í landinu við erum að starfa, alveg sama á hvaða opinbera vettvangi við erum, við erum að
starfa að því að gera lífið í þessu litla og góða landi betra en það hefur verið og við erum að
tryggja það að samfélagið okkar byggi á trausti, við erum að ýta undir það að fólk treysti
hvert öðru og við erum að tryggja það að landið okkar verði sá góði staður sem það hefur
verið í langan tíma – og jafnvel enn betra.
Innilegar þakkir fyrir mig og gangi ykkur vel.