Gerðir kirkjuþings - 01.01.2014, Page 65
65
14
Þingsályktun um fasteignastefnu þjóðkirkjunnar
Samþykkt á kirkjuþingi 2011
I. Um fasteignir kirkjumálasjóðs
Almenn atriði
1. Til að styðja þjónustu þjóðkirkjunnar, hlutverk hennar og markmið skulu lagðar til fasteignir þar sem
nauðsyn krefur og eftir því sem fjárhagur leyfir og stefna þessi mælir nánar fyrir um.
2. Þjóðkirkjan varðveitir auk þess tilteknar fasteignir þyki sérstök söguleg, menningarleg eða önnur
veigamikil rök hníga til þess. Kirkjuþing ákveður hvaða fasteignir, aðrar en kirkjur, skuli varðveittar
hverju sinni, á þeim grundvelli.
Ráðstöfun þeirra fasteigna kirkjunnar sem falla undir 2. lið fer eftir stefnu þessari og gildandi
réttarheimildum á hverjum tíma.
3. Við varðveislu fasteigna sinna virðir þjóðkirkjan eftir því sem við á, umhverfi, fornminjar, sögu,
náttúrufar, friðun náttúru og mannvirkja og önnur þau sérkenni sem telja má að hafi varðveislugildi.
4. Leitast skal við að gefa almenningi kost á að njóta aðgangs að jörðum þjóðkirkjunnar til fræðslu og
útivistar í samráði við umráðanda hverju sinni. Virða skal rétt umráðanda til afnota og friðhelgi.
5. Við umsýslu fasteigna skal unnið á grundvelli stjórnsýslulaga og góðra stjórnsýsluhátta.
Fjárhagslegir þættir
6. Leitast skal við að hámarka arðsemi fasteignanna og fylgja fjárfestingarstefnu kirkjunnar í því
sambandi.
Arður af fasteignum kirkjumálasjóðs skal nýttur til styrktar þjónustu kirkjunnar. Meta má umráðanda
prestssetursjarða til tekna umsýslu og vinnuframlag vegna hlunninda og reksturs jarðarinnar.
7. Gæta skal hagkvæmni við rekstur og umsýslu fasteigna kirkjumálasjóðs í hvívetna. Bjóða skal
verkefni út í samræmi við gildandi lög um opinber innkaup hverju sinni svo og ef hagkvæmt þykir.
8. Öll fjármálaumsýsla vegna fasteigna kirkjumálasjóðs skal vera gagnsæ og sýnileg.
Viðhald og endurbætur
9. Fasteignir skulu almennt vera í góðu ásigkomulagi og líta vel og snyrtilega út. Virða skal upphaflega
útlitshönnun mannvirkja eftir því sem kostur er. Viðhald og endurbætur fasteigna skulu fara eftir
fyrirfram mótuðum verklagsreglum og viðmiðum um reglubundið viðhald. Gerðar skulu
framkvæmdaáætlanir til þriggja ára og framkvæmdum forgangsraðað eftir mikilvægi.
Réttindagæsla
10. Varðveita skal tryggilega réttindi og hlunnindi sem tengjast fasteignum kirkjumálasjóðs.
Þinglýsa skal eignarréttindum yfir fasteignum.
Landamerki jarða og landa skulu vera skýrlega mörkuð og lögum samkvæmt.
11. Kirkjuráð skal sjá til þess að skráning og mat á fasteignum kirkjumálasjóðs í fasteignaskrá sé ávallt
rétt.
12. Fasteignir kirkjumálasjóðs skulu vátryggðar fyrir bruna, en aðrar tryggingar skulu eigi vera nema
sérstök þörf sé talin á.
Hverjum skal leggja til fasteign
13. Leggja skal kirkjuþingi og Biskupsstofu (biskupi Íslands og kirkjuráði) til nægilegt og hæfilegt
húsnæði til starfsemi sinnar.