Gerðir kirkjuþings - 01.01.2014, Blaðsíða 27
27
16. mál. Þingsályktun við tillögu að starfsreglum um samkirkjunefnd.
Kirkjuþing 2013 samþykkti að skipa þriggja manna starfshóp til að fara yfir núgildandi
starfsreglur um Samkirkjunefnd þjóðkirkjunnar nr. 1006/2005. Starfshópurinn skili skýrslu
og tillögum sínum til kirkjuráðs í september nk. sem leggur þær fyrir kirkjuþing 2014.
Í starfshópnum eru Magnea Sverrisdóttir, djákni, formaður, sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir,
fræðslufulltrúi á Biskupsstofu og sr. Sveinn Valgeirsson, prestur í Dómkirkjuprestakalli.
Kirkjuráð leggur fram á þessu þingi tillögur starfshópsins að breytingum á starfsreglunum.
18. mál. Þingsályktun um kaup og sölu fasteigna.
Kirkjuþing 2013 heimilaði sölu tiltekinna fasteigna og er vísað til Gerða kirkjuþings 2013
þar að lútandi.
21. og 22. mál. Starfsreglur um breyting á starfsreglum um þingsköp kirkjuþings.
Kirkjuþing 2013 samþykkti breytingar á starfsreglunum þar sem m.a er heimilað að fresta
þingfundum í allt að sex mánuði, styttri fresti til að leggja fram þingmál og um afnám
skyldu til að kynna þingmál á þingmálafundi svo og um varamenn.
23. mál. Starfreglur um breyting á starfsreglum um kirkjuþing unga fólksins.
Kirkjuþing 2013 samþykkti starfsreglur sem einkum fela í sér breytingu á málsmeðferð
þingmála.
24. mál. Þingsályktun um breyting á siðareglum vígðra þjóna og annars starfsfólks
þjóðkirkjunnar.
Biskup Íslands annast kynningu á málinu og framkvæmd þess.
25. mál. Þingsályktun um prestsþjónustu fyrir Íslendinga í Danmörku og Svíþjóð.
Kirkjuþing 2013 samþykkti svofellda ályktun:
Kirkjuþing 2013 samþykkir að stofnuð verði þriggja manna nefnd til að afla tengsla
og upplýsinga um hvernig megi efla kirkjustarf og auka prestsþjónustu fyrir Íslendinga í
Danmörku og í Svíþjóð. Nefndin verði skipuð af kirkjuráði og skili tillögum til kirkjuráðs í
janúar svo hægt verði að leggja þær fyrir vorfund kirkjuþings 2014.
Kirkjuráð samþykkti að skipa í nefndina séra Gísla Gunnarsson, kirkjuráðsmann, sem
jafnframt var formaður nefndarinnar, sr. Birgi Ásgeirsson, prófast í Reykjavíkur prófasts-
dæmi vestra og Sigurjónu Sigurðardóttur, fv. formann safnaðarstjórnar í Kaupmannahöfn.
Hlutverk nefndarinnar var að afla tengsla og upplýsinga um hvernig megi efla kirkjustarf
og auka prestsþjónustu fyrir Íslendinga í Danmörku og Svíþjóð.
Kirkjuráð samþykkti fjárveitingu að upphæð 500 þ.kr. vegna ársins 2014 til að tryggja
prestsþjónustu við íslensku söfnuðina í Svíþjóð og Danmörku. Íslenski söfnuðurinn
í Noregi hefur fjármagnað hálft prestsembætti við söfnuðina í Svíþjóð og Danmörku í
fimm mánuði á árinu 2014. Biskup Íslands fól séra Ágústi Einarssyni þjónustu við íslensku
söfnuðina í Svíþjóð og Danmörku í hálfu starfi frá og með 1. júní sl.
30. mál. Þingsályktun, um skipan nefndar til að vinna tillögur um fjármál og rekstur.
Kirkjuþing 2013 samþykkti svofellda ályktun: