Gerðir kirkjuþings - 01.01.2014, Side 44
44 45
Ef tekið er mið af þróun fjárveitinga til stofnana innanríkisráðuneytisins nemur uppsöfnuð
skerðing sóknargjaldanna frá árinu 2008-2013 um 2,3 milljörðum króna á verðlagi hvers árs
eins og neðangreind tafla nr. 2 sýnir. Miðað við þessar forsendur er hagræðingarkrafa ríkisins
til þjóðkirkjusafnaða 528,8 milljónir króna á árinu 2013.
Tafla 2
Breyting sóknargjalda í samræmi við
meðaltal stofnana
innanríkisráðuneytisins 2008 2009 2010 2011 2012 2013
Sóknargjald
pr. gjaldanda pr. mánuð í kr. 872,00 993,99 952,57 906,18 919,44 958,42
Fjöldi í gjaldenda í þjóðkirkjunni
1. desember sama ár 195.576 194.903 191.656 190.734 191.258
Sóknargjöld í þús.kr.
fj. gjaldenda árið áður x sóknargj. pr.
gjaldanda x 12 mán. 2.035.708 2.332.814 2.227.912 2.084.104 2.104.414 2.199.666
Hækkun / - lækkun sóknargjalds *
frá fyrra ári í % 13,99% -4,17% -4,87% 1,46% 4,24%
Skerðing sóknargjalda á ári í þús.kr. 0 377.836 434.024 478.793 499.960 528.836
Samtals skerðing sóknargjalda 2008 -
2013 í þús.kr. 2.319.449
*Þróun fjárveitinga til stofnana innanríkisráðuneytisins sem hlutu almennar verðbætur
fjárlaga (önnur gjöld en laun).
Kirkjujarðasamkomulagið
Kirkjujarðasamkomulagið frá árinu 1997 fjallar um afhendingu kirkjujarða til ríkisins á móti
skuldbindingu um að greiða laun presta og starfsmanna þjóðkirkjunnar. Á árunum 2010-2013
hefur ríkið gert hagræðingarkröfu á fjárlögum vegna kirkjujarðasamkomulagsins að fjárhæð
313,5 m.kr. á verðlagi hvers árs. Er það í hátt við hagræðingarkröfu til stofnana ríkisins.
Þjóðkirkjan hefur ekki vikist undan ábyrgð og fallist á skerðingu á kirkjujarðasamkomulaginu
undanfarin ár með viðaukasamkomulagi sem gert er til eins árs í senn. Í fjárlagafrumvarpi
ársins 2014 er gert ráð fyrir 0,75% hagræðingarkröfu miðað við fjárlög 2013 eða 14,1 m.kr. Í
fjárlagafrumvarpinu 2014 eru áætlaðar 3% launa- og verðlagshækkanir miðað við árið 2013.
Niðurskurður á kirkjujarðasamkomulaginu er um 21% miðað við forsendur í fjárlagafrumvarpi
2014 borið saman við óskertar greiðslur samkvæmt reiknilíkani 2014 byggðu á
kirkjujarðasamkomulaginu. Miðað við sömu forsendur er niðurskurður ársins í krónum talinn
áætlaður 378,9 m.kr. á verðlagi ársins 2014. Þessi niðurskurður jafngildir því að ríkið greiði
laun 109 presta í stað þess að greiða laun 138 presta eins og samningur ríkis og kirkju gerir
ráð fyrir – sjá meðfylgjandi töflu nr. 3.
Þjóðkirkjan hefur brugðist við með því að fækka prestum um 17 eða um 12 % og starfsfólki
Biskupsstofu (að meðtöldu starfsfólki Kirkjumálasjóðs) um 7 stöðugildi eða um 21%. Auk þess
hefur rekstrarkostnaður verið dreginn saman, prófastsdæmi sameinuð og þeim fækkað úr 16