Gerðir kirkjuþings - 01.01.2014, Blaðsíða 22
2322
eru til umfjöllunar. Vígslubiskupar sitja fundi ráðsins þegar málefni biskupsstólanna eru
til umfjöllunar.
Starfshópar kirkjuráðs
Starfshópar kirkjuráðs, lagahópur, fjármálahópur og kirkjustarfshópur, eiga sér samsvörun
í föstum þingnefndum kirkjuþings og eru skipaðir formanni viðkomandi þingnefndar,
fulltrúa úr kirkjuráði og fulltrúa biskups Íslands.
Starfsfólk kirkjuráðs
Starfsmenn kirkjuráðs eru: Guðmundur Þór Guðmundsson, framkvæmdastjóri kirkjuráðs,
Guðrún Finnbjarnardóttir fulltrúi, Arnór Skúlason, arkitekt, verkefnastjóri viðhaldsmála
á fasteignasviði. Á sviði upplýsingatæknimála starfa Örvar Kárason, verkefnisstjóri. Með
samþykkt nýs skipurits Biskupsstofu árið 2013 heyrir fjármáladeild Biskupsstofu einnig til
kirkjuráðs en þar starfa sex starfsmenn; Hildur Gunnarsdóttir, aðalféhirðir, Magnhildur
Sigurbjörnsdóttir, verkefnastjóri á sviði fjármála sókna, Ólína Hulda Guðmundsdóttir,
bókari, Ólöf Kristjánsdóttir, aðalbókari, Sigríður Dögg Geirsdóttir, fjármálastjóri og
Vigdís Helga Eyjólfsdóttir, bókari.
Kirkjuráð samþykkti að veita framkvæmdastjóra kirkjuráðs leyfi frá störfum sínum í allt
að eitt ár og var Ragnhildi Benediktsdóttur, fv. skrifstofustjóra Biskupsstofu, falið að leysa
hann af. Lögfræðingur á fasteignasviði, Kristín Björg Albertsdóttir, sagði starfi sínu lausu
sl. haust og var ákveðið að ráða ekki í starfið að svo stöddu. Framkvæmdastjóri kirkjuráðs,
Guðmundur Þór Guðmundsson veitir fasteignasviðinu forstöðu í leyfi sínu.
Fundir Samstarfsnefndar Alþingis og þjóðkirkjunnar
Haldnir hafa verið tveir fundir Samstarfsnefndar Alþingis og Þjóðkirkjunnar. Sá fyrri
var haldinn þriðjudaginn 10. desember 2013 í Alþingishúsinu en hann sátu fulltrúar
frá hverjum þingflokki ásamt kirkjuráði. Á dagskrá voru þrjú mál: (1) Frumvarp til
laga um breytingu á lögum um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar, nr. 78/1997
(þjóðkirkjulög), sem kirkjuþing samþykkti að leggja til við innanríkisráðherra að yrði flutt
á Alþingi, (2) sóknargjöld þjóðkirkjusafnaða og var lagt fram minnisblað sem biskup gerði
grein fyrir, (3) kirkjujarðasamkomulagið, einnig lagt fram minnisblað.
Annar fundur var haldinn 7. október sl. á Biskupsstofu. Þar voru á dagskrá eftirfarandi
fjögur atriði (1) Kirkjujarðasamkomulagið. Sr. Gísli Gunnarsson fór yfir meginatriði
samkomulagsins og aðdraganda þess. (2) Sóknargjöld þjóðkirkjusafnaða. Biskup lagði fram
minnisblað um niðurstöðu nefnda innanríkisráðuneytisins um skerðingu sóknargjalda
og þróun síðustu ára. Biskup gerði grein fyrir helstu efnisatriðum þess. (3) Frumvarp
til laga um breytingu á lögum um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar. Ráðherra
flutti málið á liðnu þingi en það var ekki afgreitt. Nú hefur kirkjuráð óskað eftir því við
innanríkisráðherra að það verði flutt á ný. (4) Kirkjur í eigu ríkisins, ábyrgð á rekstri og
viðhaldi. Fundargerðir og minnisblöðin fylgja skýrslu þessari (fskj. A).
Fundur biskups Íslands og fulltrúa þjóðkirkjunnar með fjármála- og efnahagsráðherra
Síðastliðið haust fóru biskups Íslands og aðrir fulltrúar þjóðkirkjunnar á fund fjármála-