Gerðir kirkjuþings - 01.01.2014, Blaðsíða 185
185
11. gr.
Heimilt er að kæra kosningar samkvæmt starfsreglum þessum. Yfirkjörstjórn
þjóðkirkjunnar, sbr. starfsreglur um kjör til kirkjuþings fer með endanlegt úrskurðarvald
í ágreiningsmálum vegna kosninga samkvæmt starfsreglum þessum. Fer um kærumál og
meðferð þeirra eftir gildandi starfsreglum um yfirkjörstjórn á hverjum tíma eins og við
getur átt, nema starfsreglur þessar mæli á annan veg.
Rétt til að kæra kosningu samkvæmt starfsreglum þessum eiga þeir einir sem hafa
kosningarrétt. Kærur vegna kosningar skulu hafa borist kjörstjórn eigi síðar en þremur
dögum eftir að atkvæði eru talin liggja fyrir. Beri síðasta dag kærufrests upp á frídag skal
næsti virki dagur teljast síðasti dagur kærufrests.
Kærur skulu hafa borist kjörstjórn með sannanlegum hætti fyrir kl. 16.00 á síðasta degi
kærufrests, eða hafa verið póststimplaðar í síðasta lagi þann dag. Leggur hún þær fyrir
yfirkjörstjórn þjóðkirkjunnar til úrskurðar ásamt athugasemdum sínum. Yfirkjörstjórn
úrskurðar innan viku um kæruna.
12. gr.
Starfsreglur þessar sem settar eru samkvæmt heimild í 59. gr. laga um stöðu, stjórn og
starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997 öðlast gildi 1. janúar 2015. Starfsreglur um kosningu
biskups Íslands og vígslubiskupa nr. 1108/2011 falla brott frá sama tíma.
Greinargerð
Við gerð þessarar tillögu var gengið út frá evangelísk lúterskum skilningi á prestsembættinu
og biskupsembættinu og það skoðað með hinn almenna prestsdóm í huga.
Þá var einnig litið sérstaklega til þeirra kirkna sem eru líkastar þjóðkirkjunni að
kirkjuskipan og skoðað á hvern hátt þær hátta vali á biskupum.
Ljóst er að í þeim kirkjum sem mest líkjast okkur að kirkjuskipan er biskupskosning byggð
á fulltrúalýðræði þess fólks sem virkt er í kirkjulegu starfi og þar er gætt jafnræðis milli
leikmanna og vígðra, þjónandi starfsmanna.
Með þessum tillögum er einnig leitast við að gæta jafnræðis milli þéttbýlis og
dreifbýlis. Ef litið er til fjölda vígðra kjörmanna þá eru þeir um 150, samkvæmt
upplýsingum frá Biskupsstofu. Hér er gengið út frá því að fjöldi leikmanna verði
svipaður og notuð hlutfallsskipting. Samkvæmt því myndi Austurlandsprófastsdæmi
fá sex leikmannakjörmenn, Eyjarfjarðar- og Þingeyjar-prófastsdæmi 18, Húnavatns- og
Skagafjarðarprófastsdæmi sex, Kjalarnesprófastsdæmi 30, Reykjavíkur prófastsdæmin 30
hvort, Suðurprófastsdæmi 18, Vestfjarðaprófastsdæmi sex og Vesturlandsprófastsdæmi
sex.
Hið heilaga prests- og predikunarembætti.
Við ákvörðun um val biskupa er mikilvægt að huga að þeim kirkjuskilningi sem liggur að
baki biskupsembættinu. Sá skilningur byggir á prestsembættinu og því er nauðsynlegt að
hefja leikinn þar til að skilja á hverju okkar lútherski skilningur byggir.