Gerðir kirkjuþings - 01.01.2014, Blaðsíða 82
82 83
2
Greining sóknargjalda 2014
Fjárlög 2013 ( án 45 m.kr. tímab.greiðslu) 1.680,0 m.kr.
Verðbætur 3% 50,4 m.kr.
Önnur hækkun (vegna fjölgunar í þjóðk.?) 3,0 m.kr.
Grunnur sóknargjalda 1.733,4 m.kr.
Tímabundin greiðsla 100,0 m.kr.
Fjárlög 2014 1.833,4 m.kr.
Hækkun grunns sóknargj. milli 2013 og 2014 53,4 m.kr.
Sóknargjald 2013 728 kr. á mán.fyrir einstakling
Sóknargjald 2014 með 3% hækkun v. verðbóta 750 kr. á mán.fyrir einstakling
Greining sóknargjalda 2015
Fjárlög 2014 ( með 100 m.kr. tímab.greiðslu) 1.833,4 m.kr.
Verðbætur 0% 0,0 m.kr.
Hækkun vegna umframskerðingar sóknargjalda 100,7 m.kr.
Aðhaldsaðgerðir í ríkisútgjöldum -27,5
Grunnur sóknargjalda 1.906,6 m.kr.
Tímabundið framlag 0,0 m.kr.
Fjárlagafrumvarp 2015 1.906,6 m.kr.
Hækkun grunns sóknargj. milli 2014 og 2015 73,2 m.kr.
Sóknargjald 2014 ( að meðtöldum 100 m.kr.) 793 kr. á mán.fyrir einstakling
Sóknargjald 2015 miðað við fjárlagafrumvarp 1. umræðu 825 kr. á mán.fyrir einstakling
Í frétt á vef innanríkisráðuneytisins frá 5. september 2014 segir m.a: „Hanna Birna
Kristjánsdóttir innanríkisráðherra fékk í dag heimild ríkisstjórnarinnar til að hefja
undirbúning að gerð samkomulags milli ríkis og kirkju á grundvelli tillagna starfshóps sem
gera ráð fyrir að umframskerðing sóknargjalda verði jöfnuð út á fjórum árum. Markmiðið
með samningnum er að upphefja þann hluta aðhaldskrafna árin 2009-2012 sem gekk lengra
en gert var gagnvart öðrum aðilum sem byggja rekstur sinn á framlögum af fjárlögum.
Fram kom í skýrslu fyrrnefnds starfshóps að Þjóðkirkjan hafi orðið fyrir mikilli
umframskerðingu borið saman við meðaltalsskerðingu gagnvart öðrum stofnunum sem heyra
undir innanríkisráðuneytið. Fram kemur að sé miðað við framlag fjárlaga 2014 sé þörf á
hækkunum til að jafna út umframskerðinguna samtals 663 m.kr.
Starfshópurinn leggur til að gert verði samkomulag milli innanríkisráðuneytisins, fjármála-
og efnahagsráðuneytisins og þjóðkirkjunnar um þessar hækkanir. Innanríkisráðuneytið hefur
brugðist við með tillögugerð við undirbúning fjárlaga 2015 og er þar gert ráð fyrir að farið
verði að tillögum starfshópsins á fjórum árum með leiðréttingu á sóknargjöldum til
Þjóðkirkjunnar og annarra trúfélaga. Þessi tillaga innanríkisráðherra var staðfest á
ríkisstjórnarfundi í morgun.“