Gerðir kirkjuþings - 01.01.2014, Blaðsíða 146
146 147
• Lýsing á prestakallinu og sóknum þess, ef um er að ræða embætti sóknarprests eða
prests.
• Lýsing á umfangi prestsþjónustunnar, starfsaðstöðu o.fl. er varðar hið kirkjulega starf.
• Hvort lögð sé sérstök áhersla á hæfni umsækjenda til að sinna tilteknum þáttum
prestsþjónustunnar.
• Hvort embættið geri kröfu um sérstaka þekkingu eða reynslu af stjórnunarstörfum.
• Frá hvaða tíma og til hve langs tíma skipað er í embættið.
• Að umsækjendur leggi fram prófskírteini, staðfestingu um að viðkomandi hafi lokið
starfsþjálfun. Einnig vottorð um aðra menntun og þjálfun sem nýtist í starfi.
• Upplýsingar um starfsferil og annað það sem umsækjendur telja nauðsynlegt að fram
komi.
• Umsækjendur skili greinargerð, að hámarki 500 orð, um framtíðarsýn þeirra og
væntingar er varða embættið.
• Að umsækjandi skuli veita aðgang að hvers konar upplýsingum úrsakaskrá sinni og
heimilar að leitað sé upplýsinga úr kæruskrá lögreglu.
• Hvenær umsóknarfrestur um embættið renni út.
• Hver veiti nánari upplýsingar um embættið, starfskjör, erindisbréf og helstu lög og
reglur sem um starfið gilda.
• Hvort prestssetur fylgi embættinu.
• Að sótt skuli um embættið á þar til gerðu eyðublaði Biskupsstofu.
• Að matsnefnd fjalli um umsóknir, samkvæmt starfsreglum um val og veitingu
prestsembætta.
• Að heimilt sé að óska eftir almennum prestkosningum samkv. lögum nr. 78/1997.
• Að skylt er, sé þess óskað, að veita almenningi aðgang að upplýsingum um nöfn og
starfsheiti umsækjenda þegar umsóknarfrestur er liðinn.
Áður en biskup sendir umsóknir til meðferðar matsnefndar skal hann gæta þess að
umsækjandi uppfylli skilyrði til skipunar, samkv. 38. gr. laga nr. 78/1987, þar með talið
starfsþjálfun samkvæmt nánari ákvæðum í starfsreglum um þjálfun prestsefna nr. 788/2002.
Biskup Íslands skal leita eftir samþykki umsækjenda til þess að fá aðgang að upplýsingum
úr sakaskrá. Synji hlutaðeigandi umsækjandi um heimild til þess, er óheimilt að setja,
skipa eða ráða hann til starfa.
Óheimilt er að ráða til starfa einstakling til að sinna börnum og ungmennum undir 18 ára
aldri, sem hlotið hefur refsidóm vegna brota á eftirtöldum lagabálkum:
• Barnaverndarlög nr. 80/2002.
• Kynferðisbrot skv. 22. kafla, önnur ofbeldisbrot skv. 23. kafla og brot gegn frjálsræði
manna skv. 24. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940, þó ekki minniháttar
líkamsmeiðingar samkvæmt 217. gr. almennra hegningarlaga.