Félagsbréf - 01.03.1962, Blaðsíða 6
eftir Charles W. Thayer og ritstjóra tímaritsins
Life.
Gunnar Ragnarsson og Thorolf Smith ís-
lenzkuðu.
Þetta er önnur bókin í bókaflokki AB LÖND OG ÞJÓÐIR.
Annar þýðandinn, Gunnar Ragnarsson, segir í formála sínum fyrir
bókinni:
„Bók sú, er hér birtist, ætti að verSa kærkomin öllum þeim, sem vilja
afla sér raunsærrar þekkingar á Rússlandi, staSháttum, stjórnarfari og
menningarsniði, og er mér til efs, að yfirgripsmeiri fræðsla um öll þau
efni sé annars staðar tiltæk í svo skýru og skemmtilegu formi. í bókinni
er ekki aðeins brugðið upp svipmyndum stórbrotinnar sögu, sem á sér í
heillandi baksýn hið víðáttumikla landflæmi, allt norðan frá Ishafi og
suður til Svartahafs, heldur leiðir hún okkur umfram allt á vit þess raun-
veruleika, sem oftast hverfur í skugga hinna heimspólitísku átaka. Hér
kemur fólkið sjálft til dyra eins og það er klætt, geðfellt og uppgerðar-
laust, í hversdagsönn og á hátíðarstundum, og hið mikla myndaval bók-
arinnar hjálpar ekki hvað sízt til að gera þessi kynni náin og minnisstæð.“
Bókin er 175 bls. í stóru broti. VerS til félagsmanna kr. 185.00.