Félagsbréf - 01.03.1962, Blaðsíða 9
BÓK MÁNAÐARINS
MAÍ
1962
eftir HERBERT KUBLY og EINAR PÁLSSON
ritstjóra tímaritsins Life. — íslenzkaSi
Ítulíu er þriðja bókin í bókaflokki AB LÖND OG ÞJÓÐIR. — Er hún
hliðstæð Frakklandi og Rússlandi, sem áður eru komnar út í þessum
flokki, — hátt á annað hundrað valinna mynda og um 160 hls. vandaður
texti uin landið og þjóðina, sögu hennar, menningu og daglegt líf.
Höfundur textans, Herbert Kuhly, er amerísk-svissneskur rithöfundur,
sem verið hefur langdvölum á ftalíu og því gagnkunnugur öllu þar. Frá-
sögn hans er skýr, lífræn og marghreytileg, og hann hefur glöggan skilning
á „hinu ítalska kraftaverki," þeirri miklu viðreisn á sviði menningar- og
efnahagsmála, sem átt hefur sér stað á þeim fáu árum, sem liðin eru, síðan
lýðveldi var stofnað í landinu eftir fasistíska harðstjórn, og vart á sér hlið-
stæðu í sögunni. Mun hver sá maður, sem kynnzt hefur eða dreymir um
að kynnast þessu yngsta lýðveldi hins vestræna heims, hafa margt að
sækja í frásögn hans.
Bókin er 160 bls. í stóru broti. Verð til félagsmanna kr. 185.00