Félagsbréf - 01.06.1963, Blaðsíða 7
ÁGÚST-BÓK AB 19G3
Tómas GuSmundsson íslenzkaSi
HLÉBARÐINN, skáldsaga eftir ítalska furstann Giuseppe Tomasi di Lampe-
dusa, verður ÚKÚstmánaðar-bók AB í þýðingu Tómasar Guðmundssonar,
skálds. I»etta er saga sikileyskrar furstaættar, eða nánar til tekið ættarsaga
höfundarins sjálfs, og hefst árið 18(50, þegar Garibaldi gerir innrás sína í
Sikiley, en endar árið 1910. Með ógleymanlegum hætti speglar frásögn bókar-
innar hinar miklu samfélaffslegu byltingar, sem gengu yfir Evrópu á þessu
merkilega tímabili, og þó að vel megi segja, að öll bókin sé glitrandi af fág-
aðri og elskulegri kímni, nær snilld höfundarins samt hæst í fágætri túlkun
lians á ást, hnignun, liverfulleik og dauða. Sagan er talin eitt mesta og
sérstæðasta afrek í bókmenntum þessarar aldar og hefur farið óslitna sigur-
för um allan liinn menntaða heim, allt frá því hún kom fyrst út árið 1959,
að höfundinum látnum. Kvikmynd gerð eftir þessari merku bók hlaut fyrstu
verðlaun á kvikmyndahátíðinni í Cannes í maí s. 1.
L